Lekar í Nord Stream 1 og 2 mögulega skipulagðar árásir Atli Ísleifsson skrifar 27. september 2022 08:03 Gasleiðslunar hafa flutt gas frá Rússlandi og til Þýskalands um Eystrasalt. EPA Lekar sem uppgötvuðust í báðum Nord Stream-gasleiðslunum Eystrasalti í gær - Nord Stream 1 og 2 - kunna skýrast af því að skipulögð árás hafi verið gerð á leiðslunar.
Þýska blaðið Tagesspiegel segir frá þessu og vísar í ónafngreindan heimildarmann innan þýska stjórnkerfisins. „Allt mælir gegn því að um sé að ræða tilviljun.“ Sænskir fjölmiðlar segja að göt hafi uppgötvast í báðum leiðslum í gær, sem varð til þess að gas sem er að finna í leiðslunum byrjaði að leka út í Eystrasalt. Viðvaranir voru sendar út til skipa undan ströndum Karlskrona í Svíþjóð og norður af Borgundarhólmi. Lekarnir urðu með einungis nokkurra klukkustunda millibili, fyrst í Nord Stream 2 og síðar Nord Stream 1, en gasleiðslunar hafa flutt gas frá Rússlandi og til Þýskalands um Eystrasalt. Orsök leikanna var fyrst sagt vera „skyndileg breyting á þrýstingi“. Nú segir hins vegar Tagesspiegel að mögulegt sé að kafbátur eða kafarar hafi valdið skemmdum á leiðslunum, en fulltrúar þýskra yfirvalda rannsaka nú skemmdirnar. Í frétt SVT segir að talsmaður Nord Stream 1 vilji hvorki tjá sig um fréttir af meintum skemmdarverkum, né gefa upp hvenær ráð sé fyrir gert að hægt verði að gera við þær. Nord Stream 1 var tekin í notkun árið 2011, en í byrjun september lokuðu rússnesk stjórnvöld á gasflutning um leiðsluna og vísaði þar til tæknilegra vandræða. Framkvæmdum við Nord Stream 2 lauk á síðasta ári en hefur þó aldrei verið tekin í notkun, fyrst og fremst vegna innrásarstríðs Rússlands í Úkraínu. Þó að ekki sé verið að flytja gas um leiðslurnar þá er gríðarlegt magn af gas í þeim.
Rússland Svíþjóð Þýskaland Orkumál Innrás Rússa í Úkraínu Nord Stream-leiðslurnar í Eystrasalti Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Ætlaði að koma upp um barnaníðing en lenti í klóm hans Innlent Steinunn Ólína segir landráðamál í uppsiglingu Innlent Segir lág laun leikskólakennara mýtu Innlent Hafi líka reynt að bana eldri syni sínum Innlent Leikskólakennarar ósáttir við vettlingagjörning Innlent Steinunn Ólína skýtur föstum skotum á Katrínu Innlent Mikill reykur þegar kviknaði í einangrunarplasti Innlent Alls konar fabúleringar um vinskapinn við Bjarna Ben Innlent Fleiri löggur á leiðinni Innlent Leiðin í vinnuna smám saman þrefaldast: „Þetta er eins og í einhverri bíómynd“ Innlent Fleiri fréttir Segir ekki af sér þrátt fyrir njósnir aðstoðarmannsins Aðstoðarvarnarmálaráðherra ákærður fyrir mútuþægni Upptök eldsins í gömlu kauphöllinni enn ókunn Settur út af sakramentinu fyrir að stýra minningarstund um Navalní Handtóku barnunga öfgamenn eftir stunguárás í Sydney Ekki ólöglegt fyrir konur að brjóta gegn körlum Grunuð um að hafa banað tveimur börnum Vitni greinir frá ráðabruggi og lögmaður Trump fær viðvörun Öldungadeildin samþykkti 95 milljarða dala aðstoð við Úkraínu, Ísrael og Taívan Reyna að sigla um geiminn á geislum sólarinnar Lýsa yfir áhyggjum af fregnum af fjöldagröfum á Gasa Fá aftur gögn frá tæplega hálfrar aldar gömlu geimfari Umdeildur flutningur á hælisleitendum til Rúanda samþykktur Starfsmaður hægrijaðarflokks handtekinn fyrir njósnir fyrir Kína Gera alvarlegar athugasemdir við verðlaunakerfi Tik Tok Tugir handteknir á mótmælum háskólanema gegn aðgerðum Ísraels Undirbúa stærðarinnar sendingar til Úkraínu Engin sönnunargögn bendla UNRWA við árásina Hættu við umfangsmiklar árásir á Íran Sakaði Trump um að reyna að spilla kosningunum 2016 Dæmdu samskiptastjóra Meta fyrir að „verja hryðjuverk“ Modi sakaður um múslimaandúð í miðjum kosningum Dregur úr vinnu og verkefnum Evrópa hlýnar hraðast heimsálfanna Duda segir Pólverja reiðubúna til að geyma kjarnorkuvopn Segir af sér vegna mistaka í kringum árás Hamas Rallýbíll ók á áhorfendur á Sri Lanka Ísraelar æfir yfir fyrirhuguðum þvingunum á Netzah Yehuda herdeildina Ríki heims verja metupphæðum til hermála Kynferðisafbrotamanni bannað að nota gervigreind Sjá meira