Benedikt: Fengum flugeldasýningu frá Óla Óla Smári Jökull Jónsson skrifar 25. október 2021 21:30 Benedikt Guðmundsson hefur byrjað vel með Njarðvíkurliðið sem tapaði þó í kvöld. Vísir / Hulda Margrét „Klárlega ekki okkar besta frammistaða en ýmislegt jákvætt. Ég er ekki að detta í þunglyndi þó við höfum tapað þessum leik, þetta var 50/50 leikur á erfiðum útivelli gegn góðu liði,“ sagði Benedikt Guðmundsson þjálfari Njarðvíkur eftir tapið gegn Grindavík í Subway-deildinni í kvöld. „
Það er erfitt að vinna á útivelli í þessari deild, þú þarft að hitta á toppleik og við náðum því ekki núna. Við fengum flugeldasýningu frá Óla Óla sem skipti algjörlega sköpum,“ en áðurnefndur Ólafur skoraði sjö þriggja stiga körfur í kvöld. Fotios Lampropoulos fékk þrjár villur í fyrsta leikhluta hjá Njarðvík og það gerði baráttuna undir körfunni gegn hinum geysiöfluga Ivan Aurrecoechea enn erfiðari. „Við erum búnir að vera alveg að sársaukamörkum varðandi meiðsli og það var vont að missa Loga Gunnarsson. Það síðasta sem við máttum við núna var að missa mann í villuvandræði og hvað þá Fotios. Ef einhver hefði átt að lenda í því þá mátti það ekki vera hann. Það gerðist og við vorum ekki sammála því.“ „Mér fannst við ná að halda okkur inni í leiknum á meðan. Síðan snerist þetta um hver ætlaði að setja stóra skotið í lokin og það kom frá þeim.“ Ákefðin var mikil hjá leikmönnum og þjálfurum í kvöld. Benedikt og Daníel Guðni Guðmundsson kollegi hans hinu megin fengu báðir tæknivillur og það var vel mætt í stúkuna þar sem stemmningin var frábær. „Ég er búinn að vera lengi í þessu og leikirnir í dag eru flestir eins og úrslitakeppnin var fyrir nokkrum árum. Áður fyrr var talað um að toppa í úrslitakeppninni og menn kannski ekki beint að spara sig, en mögulega ekki að setja allt sem þeir áttu svona snemma á tímabilinu.“ „Núna þarftu bara að gera það frá byrjun til þess að vera með í úrslitakeppninni því það eru alltaf einhver góð lið sem sitja eftir. Þess vegna eru leikirnir eins og þetta sé úrslitakeppni alltaf,“ sagði Benedikt að lokum.
UMF Grindavík UMF Njarðvík Íslenski körfuboltinn Tengdar fréttir Leik lokið: Grindavík - Njarðvík 87-82 | Grindvíkingar fyrstir að leggja Njarðvíkinga Grindavík vann góðan 87-82 sigur á Njarðvíkingum í 4.umferð Subway deildarinnar í kvöld. Leikurinn var frábær skemmtun og liðin skiptust á að hafa forystuna allan leikinn. Tapið er það fyrsta hjá Njarðvík á tímabilinu. 25. október 2021 22:15 Mest lesið Hefur fest rætur á Íslandi eftir örlagaríkt símtal Íslenski boltinn Jón Arnar grét það ekki að sjá Daníel slá þrjátíu ára Íslandsmet sitt Sport Leik lokið: FH-KR 1-2 | KR-ingar á sigurbraut eftir hark í Hafnafirði Íslenski boltinn Uppgjörið: Vestri-Víkingur 1-4 | Öruggur meistarasigur gegn nýliðunum Íslenski boltinn Klopp: Ulla konan mín mun segja mér hvað við erum að fara að gera Enski boltinn Leik lokið: KA-Fylkir 4-2 | Fyrsti sigur Akureyringa í hús Íslenski boltinn Gamli Íslandsvinurinn kraftaverkamaður í Mainz Fótbolti Í beinni: Grindavík-Valur | Valsmenn geta komist í 2-0 Körfubolti Fékk rautt spjald fyrir brot á Sveindísi sem fór meidd af velli Fótbolti Guardiola um framtíðina: Nær því að hætta en vera áfram Enski boltinn Fleiri fréttir Í beinni: Grindavík-Valur | Valsmenn geta komist í 2-0 Spilaði á móti Caitlin Clark og Paige Bueckers í háskóla „Það að við höfum ekki hjálpað honum meira fór mest í taugarnar á mér“ Keflavík er 10-0 á móti Njarðvík í körfunni í vetur Meistararnir úr leik eftir stærstu endurkomu sögunnar Indiana Pacers í úrslit Austurdeildarinnar eftir sigur í oddaleik „Þetta eru tvö dúndurlið“ „Þarf að sjá eld í staðinn fyrir einhverja hræðslu“ Uppgjör: Njarðvík - Keflavík 71-81 | Keflvíkingar nálgast titilinn Martin og félagar einum sigri frá undanúrslitum Dallas komið í úrslit Vestursins Elvar stigahæstur í grátlegu tapi Indiana svaraði fyrir og knúði fram oddaleik Jóhann: Brotnuðum auðveldlega Kristinn: Varnarleikur, varnarleikur og varnarleikur Valsmenn endurheimta Kára á besta tíma Uppgjör, viðtöl og myndir: Valur - Grindavík 89-79 | Valsmenn leiða í baráttunni um titilinn Martin og félagar hófu úrslitakeppnina á stórsigri 92 prósent sigurvegara leiks eitt frá árinu 2011 hafa orðið Íslandsmeistarar „Það helltust yfir mann bara alls konar tilfinningar“ Jafnaði met mömmu sinnar 29 árum síðar Stærsta tap meistara í sögu úrslitakeppninnar „Frábært að ná sigri í fyrsta leik og í svona svakalegum leik“ „Svíður mjög mikið að við séum ekki nógu klókar til að klára“ Uppgjörið og viðtöl: Keflavík - Njarðvík 94-91 | Tvíframlengdur spennutryllir Besti Belginn í Subway deildinni samdi við Hauka Hafa aðeins meiri trú á Keflavík en Njarðvík í úrslitaeinvíginu Feðgar þjálfa Breiðablik: „Gott fyrir okkur báða að vera saman“ Doncic rankaði við sér og Dallas einum sigri frá úrslitum Vestursins Einbeitir sér að því að komast í NBA frekar en að spila með pabba sínum Sjá meira
Leik lokið: Grindavík - Njarðvík 87-82 | Grindvíkingar fyrstir að leggja Njarðvíkinga Grindavík vann góðan 87-82 sigur á Njarðvíkingum í 4.umferð Subway deildarinnar í kvöld. Leikurinn var frábær skemmtun og liðin skiptust á að hafa forystuna allan leikinn. Tapið er það fyrsta hjá Njarðvík á tímabilinu. 25. október 2021 22:15