Neyðarástandi lýst yfir vegna Covid-19 Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar 11. janúar 2022 16:50 Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir. Vísir/Vilhelm Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra í samráði við sóttvarnalækni hefur lýst yfir neyðarstigi Almannavarna vegna kórónuveirufaraldursins. Þetta er fjórða skiptið sem neyðarstigi hefur verið lýst yfir hér á landi vegna stöðu faraldursins frá því að hann hófst.
Neyðarstigi var lýst yfir vegna veirunnar 6. mars 2020, 4. október 2020 og 24. mars 2021. Þetta segir í tilkynningu frá Almannavörnum. Þar segir að þrátt fyrir að staðan sé eins og hún er í faraldrinum séu bjartari tímar framundan og ljós við enda ganganna. „Allt mun þetta hefjast með samstöðunni sem við höfum ítrekað sýnt að er okkar besta vopn. Það er mat sóttvarnalæknis og Almannavarna að ef samfélagið tekur sig saman, hægi á, minnki samgang eins og hægt er, sé um tímabundið ástand að ræða og landsmenn geti með hækkandi sól lifað með mun minni samkomutakmarkanir en nú eru í gildi,“ segir í tilkynningunni. Faraldurinn hefur verið í miklum vexti hér á landi frá því að ómíkron-afbrigðið barst hingað til lands í byrjun desember. Sóttvarnaaðgerðir voru hertar til muna 23. desember síðastliðinn en þrátt fyrir það hefur hver metdagurinn tekið við af öðrum hvað varðar greiningu smitaðra hér á landi. Undanfarna daga hafa um 1.000 til 1.200 greinst smitaðir af veirunni innanlands dag hvern og sjaldan jafn margir á landamærunum. Þá er staðan í heilbrigðiskerfinu metin grafalvarleg. Landspítalinn var færður á neyðarstig 28. desember síðastliðinn og er það mat landlæknis að staðan muni þyngjast enn fremur á næstunni og á fleiri heilbrigðisstofnunum. Það verði bæði vegna fjölgun sjúklinga með Covid-19 og vegna fjölgunar starfsmanna í einangrun. Búast megi við mikilli fjölgun innlagna á næstunni ef spár standist. „Í ljósi framangreinds er það mat ríkislögreglustjóra að rétt sé að lýsa yfir Neyðarstigi Almannavarna. Með því virkja fyrirtæki og stofnanir viðbragðsáætlanir sýnar um órofinn rekstur á hæsta stigi. Slíkt hefur ekki almenn áhrif á almenning en lýtur fyrst og fremst að þeim fyrirtækjum, stofnunum og viðbragðsaðilum sem hlutverki hafa að gegna í viðbragðsáætlun almannavarna og sóttvarnalæknis,“ segir í tilkynningunni.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Almannavarnir Tengdar fréttir Leikskólabörnin verða líklegast boðuð í bólusetningu í næstu viku Annar dagur bólusetninga barna á aldrinum fimm til ellefu ára á höfuðborgarsvæðinu hófst í Laugardalshöll í hádeginu en alls fengu um 3.600 boð um mætingu í dag. 11. janúar 2022 16:28 Segir stefna í algjört neyðarástand með óbreyttri þróun Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir segir að með óbreyttri þróun kórónuveirufaraldursins stefni í algjört neyðarástand í heilbrigðiskerfi landsins og í margvíslegri innlendir starfsemi. Bæði vegna Covid-19 sjúkdómsins sjálfs og afleiddum áhrifum hans. 11. janúar 2022 16:06 Bindur vonir við að hjarðónæmi náist á næstu vikum eða mánuðum Sóttvarnalæknir segir Íslendinga nú standa á krossgötum með tilliti til faraldursins. Efla þurfi afkastagetu spítalans og ef það tekst ekki þarf að grípa til aðgerða til að draga úr útbreiðslu veirunnar. Hann bindur vonir við að með bólusetningum og útbreiddum sýkingum verði hægt að ná hjarðónæmi á næstunni. Yfirlæknir á Landspítala segir fyrir öllu að ná fjölda smitaðra niður til að Landspítali ráði við álagið. 11. janúar 2022 13:30 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Svakalegt að sjá fylgisaukningu Höllu Hrundar Innlent Mennirnir tóku annan starfsmannanna hálstaki Innlent Helga lenti einnig í vandræðum Innlent Líklegt að það styttist í brotmörk Innlent Gefur lítið fyrir útskýringar fréttastjórans Innlent Harvey Weinstein lagður inn á spítala Erlent Minni lyfjanotkun og meiri vellíðan í sérstöku heilabilunarþorpi Innlent Uppgangur Höllu Hrundar fari fyrir brjóstið á „valdastéttinni“ Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent „Það er enginn sem verndar son okkar“ Innlent Fleiri fréttir Svakalegt að sjá fylgisaukningu Höllu Hrundar Minni lyfjanotkun og meiri vellíðan í sérstöku heilabilunarþorpi Mennirnir tóku annan starfsmannanna hálstaki Líklegt að það styttist í brotmörk Helga lenti einnig í vandræðum Eiríkur og Ástþór fá frest til að bæta við undirskriftum Hættuástand í Grindavík og æsispennandi forsetakosningar Gefur lítið fyrir útskýringar fréttastjórans Handteknir á hlaupum eftir vopnað rán í Reykjavíkurapóteki Björk varar við frumvarpi um sjókvíeldi Uppgangur Höllu Hrundar fari fyrir brjóstið á „valdastéttinni“ Mikil gleði þegar Bergur komst í mark Segir engin annarleg sjónarmið að baki ákvörðun RÚV Hraun mjakast yfir varnargarð Ný gossprunga geti opnast fyrirvaralaust á næstunni Allt að gerast í Vík í Mýrdal um helgina Stór gossprunga gæti opnast fyrirvaralaust Fylgi Höllu Hrundar ekki fast í hendi Tíu kílómetrar eftir af hundrað: Gangan miklu erfiðari en hann óraði fyrir 800 milljóna króna hreinsistöð byggð á Selfossi Sveddi sagður með tengsl við ítölsku mafíuna Vara við því að fara gangandi að gosinu Kastaði glerflösku í höfuð manns og gisti í fangaklefa „Það er enginn sem verndar son okkar“ Krefjast skýringa á brotthvarfi Maríu Sigrúnar Veisluhöld forseta séu barns síns tíma Húsráðendum tókst að ráða niðurlögum elds í þakskyggni Landsréttur komi fram við ákæruvaldið eins og lítið barn Mannasættir sem óttist ekki að standa í fæturnar Mótmælendur fengu óvæntan liðstyrk frá Hollywood Sjá meira
Leikskólabörnin verða líklegast boðuð í bólusetningu í næstu viku Annar dagur bólusetninga barna á aldrinum fimm til ellefu ára á höfuðborgarsvæðinu hófst í Laugardalshöll í hádeginu en alls fengu um 3.600 boð um mætingu í dag. 11. janúar 2022 16:28
Segir stefna í algjört neyðarástand með óbreyttri þróun Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir segir að með óbreyttri þróun kórónuveirufaraldursins stefni í algjört neyðarástand í heilbrigðiskerfi landsins og í margvíslegri innlendir starfsemi. Bæði vegna Covid-19 sjúkdómsins sjálfs og afleiddum áhrifum hans. 11. janúar 2022 16:06
Bindur vonir við að hjarðónæmi náist á næstu vikum eða mánuðum Sóttvarnalæknir segir Íslendinga nú standa á krossgötum með tilliti til faraldursins. Efla þurfi afkastagetu spítalans og ef það tekst ekki þarf að grípa til aðgerða til að draga úr útbreiðslu veirunnar. Hann bindur vonir við að með bólusetningum og útbreiddum sýkingum verði hægt að ná hjarðónæmi á næstunni. Yfirlæknir á Landspítala segir fyrir öllu að ná fjölda smitaðra niður til að Landspítali ráði við álagið. 11. janúar 2022 13:30