Árásarmaðurinn sagður 37 ára danskur ríkisborgari Hólmfríður Gísladóttir skrifar 14. október 2021 06:23 Lögregla bað íbúa um að vera heima á meðan hún rannsakaði þá staði þar sem árásarmaðurinn fór um. epa/Hakon Mosvold Larsen Fimm eru látnir og tveir særðir eftir árás bogamanns í bænum Kongsberg í Noregi í gær. Lögregla hefur handtekið 37 ára Dana sem er grunaður um hroðaverkið. Lögregla telur hann hafa verið einan að verki en mögulega sé um hryðjuverk að ræða.
Forsætisráðherrann Erna Solberg sagði málið „hryllilegt“ á blaðamannafundi í gær. „Ég skil að margir séu hræddir en það er mikilvægt að leggja áherslu á að lögreglan er nú við stjórnvölinn,“ sagði hún. Árásin er sögð hafa hafist í Coop Extra-verslun í vesturhluta Kongsberg. Annar særðu er lögreglumaður sem var ekki á vakt en var að versla í versluninni. Talsmaður Coop staðfesti að „alvarlegt atvik“ hefði átt sér stað í einni verslun en enginn starfsmanna hefði særst. Lögreglustjórinn Oyvind Aas sagði að árásarmaðurinn hefði sloppið frá lögreglu í fyrstu en hefði verið handtekinn um það bil hálftíma eftir að hann lét til skarar skríða. Lögregla telur mögulega um hryðjuverk að ræða.epa/Torstein Boe Vitni sagðist hafa orðið var við að eitthvað var að gerast og séð konu leita skjóls. Í framhaldinu hefði hún séð „mann standa á horninu með örvar í örvamæli á öxlinni og boga í höndinni“. „Eftir á sá ég fólk hlaupa til að bjarga lífi sínu. Ein þeirra var kona sem hélt í höndina á barni,“ sagði sjónavotturinn í samtali við TV2. Lögregla hefur greint frá því að það sé einnig í skoðun hvort maðurinn kunni að hafa beitt öðrum vopnum en boganum í árásinni. Hverfi í borginni voru lokuð af í gær og íbúar beðnir um að halda sig innandyra á meðan lögregla rannsakaði þá staði þar sem grunaði fór um og safnaði sönnunargögnum. Bæjarstjórinn Kari Anne Sand segir alla íbúa sem þess þurfa munu fá áfallahjálp. Hinn grunaði, sem er sagður hafa búið í Kongsberg, var fluttur á lögreglustöð í Drammen og hefur reynst samstarfsfús, að sögn lögmannsins sem honum var skipaður. Sá staðfesti að móðir mannsins væri dönsk en vildi ekki tjá sig um skjólstæðing sinn að öðru leyti.
Noregur Fjöldamorð í Kongsberg Danmörk Tengdar fréttir Íslendingur í Kongsberg sleginn eftir árás bogamannsins Guðrún Elsa Giljan Kristjánsdóttir, íbúi í Kongsberg í Noregi, segir samfélagið í sjokki eftir að minnst fimm létust og nokkrir særðust í árás bogamanns í bænum í kvöld. Árásarmaðurinn hefur verið handtekinn og virðist hafa verið einn að verki. 13. október 2021 22:54 Lögreglan útilokar ekki hryðjuverk Minnst fimm létust og nokkrir eru særðir eftir árás bogamanns í norska bænum Kongsberg í kvöld. Árásarmaðurinn var handtekinn í umfangsmiklum aðgerðum lögreglu. Lögreglan útilokar ekki að um hryðjuverk hafi verið að ræða. 13. október 2021 20:52 Minnst fjórir létust í árás bogamanns í Kongsberg Lögreglan í Kongsberg í Noregi tilkynnti fyrr í kvöld að fólk hafi látist í árás bogamanns í Kongsberg síðdegis. Árásarmaðurinn hefur verið handtekinn. 13. október 2021 18:50 Umfangsmiklar lögregluaðgerðir vegna bogamanns Aðgerðir lögreglu í Kongsberg í Noregi standa nú yfir vegna bogamanns sem sást til í miðbæ Kongsberg. Maðurinn á að hafa skotið á eftir fólki með boga. 13. október 2021 18:24 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Getur gosið hvenær sem er Innlent Tók upp þegar hann nauðgaði kærustu sinni í tvígang Innlent Að taka afstöðu er einkamál hvers og eins Innlent Íkveikjan ekki talin hafa beinst að Trump eða réttarhöldunum Erlent Þjófunum yfirsást taska með milljónum króna Innlent Tilkynnti sig tvisvar til barnaverndar til að fá aðstoð fyrir einhverfa dóttur Innlent Pollrólegur í viðtali í 45 metra hæð yfir borginni Innlent Besti vinur úlfanna hlakkar til að tengjast áhorfendum í Hörpu Innlent Kveikti í sér fyrir utan dómshúsið þar sem réttað er yfir Trump Erlent Átta forsetaefni klár með listana Innlent Fleiri fréttir Íkveikjan ekki talin hafa beinst að Trump eða réttarhöldunum Kveikti í sér fyrir utan dómshúsið þar sem réttað er yfir Trump Fyrstu loftárásir Ísraela í Íran frá 1979 Fengu aðstoð Demókrata við að koma hernaðaraðstoð úr nefnd Hefur mátt sitja undir svívirðingum um sjálfan sig Segjast hafa skotið niður dýrmæta sprengjuflugvél Handtekinn í tengslum við áform um að ráða Selenskí af dögum Ísraelar gera árás á Íran Kennedy-fjölskyldan lýsir yfir stuðningi við Biden Bandaríkin stöðvuðu fulla aðild Palestínumanna að SÞ Hrunið í gömlu kauphöllinni heldur áfram Afsalta sjó til drykkjar í þurrki í Barcelona Eiginmaður Sturgeon ákærður fyrir fjárdrátt Mega koma til að snæða í Grindavík en aðeins í rútu Johnson í erfiðri stöðu Hafa vitneskju um mögulegan dvalarstað Íslendings sem flýr réttvísina Útsendarar Rússa sakaðir um skipulagningu árása í Þýskalandi Mikill mannskaði eftir sögulegt úrhelli í eyðimörkinni Kjarnorkuknúin drónaþyrla mun leita að lífrænum sameindum á Títan Sendi ösku í allt að þriggja kílómetra hæð Ákærður fyrir að nota slagorð SS-sveitanna á fjöldafundi Stjórnvöld í Katar að endurskoða sáttasemjarahlutverk sitt Réði lífvörð eftir árásina á bandamann Navalnís Borgarstjóri sakaður um brot gegn dóttur sinni Hæsta vindmylla heims á landi reist í Danmörku Þingforsetinn segist ekki ætla að fara fet Ísraelar sagðir búnir að ákveða að svara fyrir sig Boðflennusæfíll hrellir Kanadamenn Mannskæð loftárás Rússa í Norður-Úkraínu Toppurinn á spírunni fundinn: „Margir í sjokki og enn að ná sér“ Sjá meira
Íslendingur í Kongsberg sleginn eftir árás bogamannsins Guðrún Elsa Giljan Kristjánsdóttir, íbúi í Kongsberg í Noregi, segir samfélagið í sjokki eftir að minnst fimm létust og nokkrir særðust í árás bogamanns í bænum í kvöld. Árásarmaðurinn hefur verið handtekinn og virðist hafa verið einn að verki. 13. október 2021 22:54
Lögreglan útilokar ekki hryðjuverk Minnst fimm létust og nokkrir eru særðir eftir árás bogamanns í norska bænum Kongsberg í kvöld. Árásarmaðurinn var handtekinn í umfangsmiklum aðgerðum lögreglu. Lögreglan útilokar ekki að um hryðjuverk hafi verið að ræða. 13. október 2021 20:52
Minnst fjórir létust í árás bogamanns í Kongsberg Lögreglan í Kongsberg í Noregi tilkynnti fyrr í kvöld að fólk hafi látist í árás bogamanns í Kongsberg síðdegis. Árásarmaðurinn hefur verið handtekinn. 13. október 2021 18:50
Umfangsmiklar lögregluaðgerðir vegna bogamanns Aðgerðir lögreglu í Kongsberg í Noregi standa nú yfir vegna bogamanns sem sást til í miðbæ Kongsberg. Maðurinn á að hafa skotið á eftir fólki með boga. 13. október 2021 18:24