Ragnhildur vill leiða lista Sjálfstæðisflokksins á Seltjarnarnesi Fanndís Birna Logadóttir skrifar 25. janúar 2022 22:09 Ragnhildur Jónsdóttir, hagfræðingur og varabæjarfulltrúi. Ragnhildur Jónsdóttir, hagfræðingur og varabæjarfulltrúi, mun gefa kost á sér í fyrsta sæti á lista Sjálfstæðisflokksins á Seltjarnarnesi í prófkjöri flokksins þann 26. febrúar næstkomandi.
Þar með hafa þrjú tilkynnt að þau sækist eftir að leiða lista flokksins á Seltjarnarnesi í komandi sveitastjórnarkosningum í vor en auk Ragnhildar hafa Magnús Örn Guðmundsson og Þór Sigurgeirsson tilkynnt um framboð. Ásgerður Halldórsdóttir, bæjarstjóri ætlar sér að hætta eftir kjörtímabilið. Ragnhildur hefur verið varbæjarfulltrúi frá árinu 2018 og hefur sinnt formennsku í skipulags- og umferðarnefnd, setið í skólanefnd og svæðisskipulagsnefnd Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu. Áður sat hún í foreldraráði Leikskóla Seltjarnarness 2015-2017. Að því er kemur fram í tilkynningu um málið leggur Ragnhildur áherslu á að álögur séu lágar á Nesinu og að þjónusta bæjarins sé framúrskarandi. „Við þurfum að fara vel með skattfé og gæta að því að rekstur bæjarins sé sjálfbær og staða hans sé þannig að við ráðum við sveiflur vegna utanaðkomandi áfalla. Skólarnir á Seltjarnarnesi eiga að vera fyrsta flokks og bærinn á að nýta sér tæknina bæði til sparnaðar og bættrar þjónustu við íbúa“ segir Ragnhildur. Þá eigi Seltjarnanesið að vera grænn og fjölskylduvænn bær og til þess þurfi íþrótta- og æskulýðsstarf að blómstra og félagsstarf eldri borgara að vera líflegt og skemmtilegt. „Það skiptir líka máli að hlúa að umhverfinu og gæta þess að það sé bæði snyrtilegt og fallegt. Okkur á að líða vel í heilbrigðu umhverfi í bæ sem við erum stolt af. Ég boða aukið gagnsæi í ákvarðanatöku og að unnið sé að bættri lýðheilsu, líðan og lífsgæðum bæjarbúa á öllum aldri,“ segir hún enn fremur. Auk starfa hennar sem varabæjarfulltrúi hefur Ragnhildur víðtæka og fjölbreytta reynslu úr atvinnulífinu, hefur unnið við rannsóknir og hagspár, efnahagsgreiningu og eignastýringu, kennslu, skrif og heilsueflingu og setið í stjórnum fyrirtækja og stofnana. Hún er gift Tryggva Þorgeirssyni, lækni og forstjóra heilbrigðistæknifyrirtækisins Sidekick Health, og eiga þau saman þrjú börn á grunnskólaaldri.
Sjálfstæðisflokkurinn Seltjarnarnes Sveitarstjórnarkosningar 2022 Tengdar fréttir Þór gefur kost á sér í fyrsta sæti á Seltjarnarnesi Þór Sigurgeirsson hefur ákveðið að gefa kost á sér í fyrsta sæti á lista Sjálfstæðisflokksins á Seltjarnarnesi fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. 23. janúar 2022 22:19 Magnús Örn vill leiða lista Sjálfstæðisflokks á Seltjarnarnesi Magnús Örn Guðmundsson viðskiptafræðingur hefur boðið sig fram í oddvitasætið í prófkjöri Sjálfstæðismanna á Seltjarnarrnesi fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. Prófkjörið mun fara fram fyrir kosningarnar í febrúar á nýju ári. 16. desember 2021 18:45 Miklar breytingar fram undan Barist verður um eftirsóttar bæjarstjórastöður í sveitarfélögum í kringum Reykjavík í komandi sveitarstjórnarkosningum að sögn stjórnmálafræðings. Rúmir fimm mánuðir eru til kosninga og línurnar eru farnar að skýrast. 15. desember 2021 09:58 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Lítilsvirðing gagnvart konum eigi ekki að líðast hjá RÚV Innlent Spurningar til Baldurs minni á árið 1980 Innlent Flugvöllur Færeyinga fær að taka við stærri þotum Erlent Veðmálaauglýsingar með stærstu stjörnum landsins „fá að grassera“ Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Hættur við að styðja Höllu Hrund Innlent Þættirnir rími við margt í raunveruleikanum Innlent „Ég held að Landskjörstjórn þurfi að endurskoða sína lögfræðiþekkingu“ Innlent Segir upp hjá RÚV og snýr sér að pólitík Innlent Guðrún á Glitstöðum segir vaðið yfir vilja almennings Innlent Fleiri fréttir Lítilsvirðing gagnvart konum eigi ekki að líðast hjá RÚV Spurningar til Baldurs minni á árið 1980 Veðmálaauglýsingar með stærstu stjörnum landsins „fá að grassera“ Utankjörfundaratkvæðagreiðsla hefst í síðasta lagi á fimmtudag Aðalsöngvari the Commitments stígur á svið í Háskólabíói Samningar við sjómenn til níu ára í höfn Vinstri græn aldrei með minna fylgi Þættirnir rími við margt í raunveruleikanum Ógild framboð, flug í lamasessi og draumaferð í Disney „Ég held að Landskjörstjórn þurfi að endurskoða sína lögfræðiþekkingu“ Hættur við að styðja Höllu Hrund Meðferðarstöðinni Vík lokað í sumar Boða verkfallsaðgerðir á Keflavíkurflugvelli í maí Kjörinn heiðursmeðlimur í bandarísku lista- og vísindaakademíuna Guðrún á Glitstöðum segir vaðið yfir vilja almennings Helmingurinn af búslóðinni í ruslið Fyrstu tilnefningar til Vigdísarverðlauna Evrópuráðsþingsins kynntar á Alþingi Segir upp hjá RÚV og snýr sér að pólitík Ellefu verða í framboði til embættis forseta Íslands Landlæknir fer með ákvörðun Persónuverndar fyrir dóm Stór hópur fanga sem ekki treystir stofnunum Viktor og Kári heltast úr lestinni Ástand hinnar látnu bar þess merki að henni hefði verið ráðinn bani Dramatík þegar tveimur var tilkynnt um ólögleg framboð Best ef forseti hefur ekki verið í stjórnmálastarfi Ráðherra kynnir nýtt mælaborð farsældar barna Skjálfti við Bláfjöll í morgun og óbreytt við Sundhnúk Ætlaði að ganga frá álverinu og upp á Keflavíkurflugvöll Halla Hrund fremst í nýrri könnun og Katrín dottin niður í þriðja sæti Vopnuð rán tíðari en fólk gerir sér grein fyrir Sjá meira
Þór gefur kost á sér í fyrsta sæti á Seltjarnarnesi Þór Sigurgeirsson hefur ákveðið að gefa kost á sér í fyrsta sæti á lista Sjálfstæðisflokksins á Seltjarnarnesi fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. 23. janúar 2022 22:19
Magnús Örn vill leiða lista Sjálfstæðisflokks á Seltjarnarnesi Magnús Örn Guðmundsson viðskiptafræðingur hefur boðið sig fram í oddvitasætið í prófkjöri Sjálfstæðismanna á Seltjarnarrnesi fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. Prófkjörið mun fara fram fyrir kosningarnar í febrúar á nýju ári. 16. desember 2021 18:45
Miklar breytingar fram undan Barist verður um eftirsóttar bæjarstjórastöður í sveitarfélögum í kringum Reykjavík í komandi sveitarstjórnarkosningum að sögn stjórnmálafræðings. Rúmir fimm mánuðir eru til kosninga og línurnar eru farnar að skýrast. 15. desember 2021 09:58