Viðurkennir að hafa ekki innsiglað kjörseðla og ber fyrir sig hefð Vésteinn Örn Pétursson og Óttar Kolbeinsson Proppé skrifa 26. september 2021 21:23 Ingi Tryggvason, formaður yfirkjörstjórnar, og Magnús Davíð Norðdahl, sem leiddi lista Pírata í Norðvesturkjördæmi. dómsmálaráðuneytið/aðsend Formaður yfirkjörstjórnar í Norðvesturkjördæmi segir að kjörgögn hafi ekki verið innsigluð að talningu lokinni. Magnús Davíð Norðdahl, oddviti Pírata í kjördæminu, segir trúverðugleika kosninganna engan og segir einu færu leiðina vera að kosið verði aftur í kjördæminu. Magnús hefur gagnrýnt frágang kjörstjórnar í kjördæminu á kjörgögnum, sem virðist ekki í samræmi við lög, og furðar sig á ósamræmi sem kom fram í fjölda ógildra og auðra atkvæða milli fyrri talningar og endurtalningar. Eftir endurtalninguna hliðruðust nokkur atkvæði til milli flokka sem komu af stað mikilli hringekju við útdeilingu jöfnunarþingsæta í öllum kjördæmum landsins nema Norðausturkjördæmi. „Hvernig eiga kjósendur í þessu landi að treysta lýðræðislegu ferli þegar kjörgögn eru ekki innsigluð eftir talningu í morgun, umboðsmenn lista ekki látnir vita af endurtalningu atkvæða,“ spyr Magnús á Facebook-síðu sinni. Hann segir að kjörgögnin hafi verið geymd óinnsigluð í opnum sal Hótels Borgar í Borgarnesi í 6 klukkustundir milli talninga á meðan fólk fór heim. Það hafi til dæmis verið gestir á hótelinu. „Trúverðugleiki talningarinnar í Norðvesturkjördæmi er algjörlega farinn og þar með trúverðugleiki kosninganna sjálfra,“ segir hann. „Eina leiðin til að leysa úr þessu er að endurtaka kosningarnar í Norðvesturkjördæmi og tryggja gagnsæi og að farið sé eftir lögum og reglum. Það er sanngjörn og réttmæt krafa okkar frambjóðenda og ekki síst kjósenda í kjördæminu.“ Innsigluðu kjörgögn ekki um leið Í samtali við fréttastofu segir Ingi Tryggvason, formaður yfirkjörstjórnar í Norðvesturkjördæmi, að rétt sé að kjörgögn hafi ekki verið innsigluð um leið. Hann vísar gagnrýninni þó á bug og telur ekki tilefni til að bregðast sérstaklega við henni. Kjörgögnin hafi verið geymd inni í læstum sal á hótelinu. „Þetta er bara alveg sama skipulag og hefur verið mjög lengi,“ segir hann. En er þetta rétt, að þau hafi ekki verið innsigluð og skilin eftir? „Já, ekki innsigluð. Það hefur aldrei verið gert. Þau eru bara skilin eftir og læst inn í salinn. Svo förum við heim og hvílum okkur í smá tíma og förum aftur á staðinn. Þetta er bara vinnulag sem er búið að vera eins lengi og ég veit. Það er ekkert innsiglað, það er engin aðstaða til að innsigla þetta. Menn ganga ekkert alveg frá þessu. Auðvitað væri það hægt, það væri náttúrulega hægt að klára þetta en þá væru menn að bara fram á miðjan dag og væru þá kannski ekkert búnir að sofa í tvo sólarhringa.“ Þannig að þetta er rétt hjá honum, en þú vísar því á bug að það sé eitthvað athugavert við þetta? „Já, já. Eins og ég segi, þetta hefur bara tíðkast og er bara venjubundið. Það hafa aldrei verið nein vandamál í sambandi við þetta.“ Vísar til skýrra ákvæða kosningalaga Kristín Edwald, formaður Landskjörstjórnar, sagðist ekki geta tjáð sig um málið þegar fréttastofa hafði samband við hana. Almennt sagði hún þó að kosningalög væru skýr um þetta efni, og vísaði sérstaklega til 104. greinar þeirra, sem tekur til þess hvað gera skuli að talningu atkvæða lokinni. Í annarri málsgrein ákvæðisins segir: „Þá skal yfirkjörstjórn setja alla notaða kjörseðla undir innsigli og skal gildum og ógildum kjörseðlum haldið sér. Kjörseðlana skal geyma þar til Alþingi hefur úrskurðað um gildi kosninganna, sbr. 120. gr., enda sé þeirra eigi þörf vegna kæru sem beint hefur verið til lögreglustjóra. Að því búnu skal eyða kjörseðlunum og skrá yfirlýsingu um það í gerðabók yfirkjörstjórnar.“ Norðvesturkjördæmi Alþingiskosningar 2021 Endurtalning í Norðvesturkjördæmi Tengdar fréttir „Hryllileg rússíbanareið“ „Þetta er hryllileg rússíbanareið sem þetta jöfnunarsætakerfi býr til,“ segir Jóhann Páll Jóhannsson, sem nú er orðinn jöfnunarþingmaður Samfylkingarinnar í Reykjavíkurkjördæmi norður, eftir að endurtalning atkvæða í Norðvesturkjördæmi breytti stöðunni varðandi jöfnunarþingmenn víða um land. 26. september 2021 19:59 „Þetta voru góðir níu tímar“ Hljóðið var misgott í þeim sem fengu nú fyrir skemmstu þær fréttir að þeir væru dottnir út sem jöfnunarþingmenn flokka sinna eftir endurtalninguna í Norðvesturkjördæmi. Endurtalningin leiddi í ljós mistök í fyrri tölum sem urðu til þess að jöfnunarsæti í fimm kjördæmum breyttust. 26. september 2021 19:47 Vinstri græn biðja um endurtalningu í Suðurkjördæmi Yfirkjörstjórn Suðurkjördæmis hefur borist beiðni um endurtalningu atkvæða í kjördæminu. Mjótt var á mununum í kjördæminu og nokkur atkvæði til eða frá geta breytt stöðunni, líkt og endurtalning dagsins í Norðvesturkjördæmi hefur sýnt. 26. september 2021 19:18 Konur ekki lengur í meirihluta á Alþingi eftir endurtalningu Þegar lokatölur úr öllum kjördæmum í Alþingiskosningunum lágu fyrir í morgun var útlit fyrir að konur yrðu í meirihluta á Alþingi, í fyrsta sinn í sögunni. Eftir að endurtalning í Norðvesturkjördæmi breytti röðun jöfnunarþingmanna er sá meirihluti hins vegar að engu orðinn. 26. september 2021 18:47 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Hann hættir bara ekki” Fréttir Mótmælendur gegn brottvísun hindruðu för lögreglubíls Innlent Vilja að plássum í sumarfrístund sé útdeilt með sanngjarnari hætti Innlent Evrópa böðuð bleiku Erlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Hótaði lögregluþjónum og fjölskyldum þeirra Innlent Senda á tólf ára palestínskan dreng með hrörnunarsjúkdóm úr landi Innlent Var beðinn um upplýsingar um unga leikmenn vegna veðmáls Innlent Líklegt að Ísraelar hafi brotið alþjóðalög með bandarískum vopnum Erlent Nöfn þeirra sem létust í Eyjafirði Innlent Fleiri fréttir Rigning í kortunum í kvöld „Hann hættir bara ekki” Hótaði lögregluþjónum og fjölskyldum þeirra Vilja að plássum í sumarfrístund sé útdeilt með sanngjarnari hætti Mótmælendur gegn brottvísun hindruðu för lögreglubíls Gætu verið einhverjar vikur í næsta gos Forsetakosningar á Eyrarbakka – munu sakna buffsins frá Guðna Var beðinn um upplýsingar um unga leikmenn vegna veðmáls Um fimm prósent fjölskyldusameininga vegna flóttamanna og hælisleitenda Senda á tólf ára palestínskan dreng með hrörnunarsjúkdóm úr landi Hræðsla við brottvísun, fylgi á fleygiferð og veðjað á leiki barna Ísland greiddi atkvæði með auknum rétti Palestínu hjá SÞ Auknar líkur á nýju eldgosi á næstu dögum Reyndi að drepa mann eftir að upp úr sauð á gamlárskvöld Kári tekur ábyrgð á stuðningi Víðis og Þórólfs Stefnir í tveggja turna tal Guðmundur í Afstöðu hundskammar DV Stórri flotaæfingu NATO lauk í Reykjavík „Þegar hann loksins náði að bjóða mér út missti ég hnén“ Rafmagnslaust í Vesturbænum Viðhorf breytist ekki við það bara að klæða sig í lögreglubúning Þrír sóttu um stöðu dómara við Landsrétt Óhapp í fyrsta sinn í 25 ára sögu Dóra vill ekki búa við umræðu byggða á „falsvitnum“ Einn fluttur eftir þriggja bíla árekstur Óska eftir frekara gæsluvarðhaldi Skjálftahrina og skyndilegt brotthvarf þjálfara Raðrúðubrjóturinn enn á ferð í miðborginni Svona var Pallborðið með mökunum Mögulegt strok á laxi úr landeldi Sjá meira
Magnús hefur gagnrýnt frágang kjörstjórnar í kjördæminu á kjörgögnum, sem virðist ekki í samræmi við lög, og furðar sig á ósamræmi sem kom fram í fjölda ógildra og auðra atkvæða milli fyrri talningar og endurtalningar. Eftir endurtalninguna hliðruðust nokkur atkvæði til milli flokka sem komu af stað mikilli hringekju við útdeilingu jöfnunarþingsæta í öllum kjördæmum landsins nema Norðausturkjördæmi. „Hvernig eiga kjósendur í þessu landi að treysta lýðræðislegu ferli þegar kjörgögn eru ekki innsigluð eftir talningu í morgun, umboðsmenn lista ekki látnir vita af endurtalningu atkvæða,“ spyr Magnús á Facebook-síðu sinni. Hann segir að kjörgögnin hafi verið geymd óinnsigluð í opnum sal Hótels Borgar í Borgarnesi í 6 klukkustundir milli talninga á meðan fólk fór heim. Það hafi til dæmis verið gestir á hótelinu. „Trúverðugleiki talningarinnar í Norðvesturkjördæmi er algjörlega farinn og þar með trúverðugleiki kosninganna sjálfra,“ segir hann. „Eina leiðin til að leysa úr þessu er að endurtaka kosningarnar í Norðvesturkjördæmi og tryggja gagnsæi og að farið sé eftir lögum og reglum. Það er sanngjörn og réttmæt krafa okkar frambjóðenda og ekki síst kjósenda í kjördæminu.“ Innsigluðu kjörgögn ekki um leið Í samtali við fréttastofu segir Ingi Tryggvason, formaður yfirkjörstjórnar í Norðvesturkjördæmi, að rétt sé að kjörgögn hafi ekki verið innsigluð um leið. Hann vísar gagnrýninni þó á bug og telur ekki tilefni til að bregðast sérstaklega við henni. Kjörgögnin hafi verið geymd inni í læstum sal á hótelinu. „Þetta er bara alveg sama skipulag og hefur verið mjög lengi,“ segir hann. En er þetta rétt, að þau hafi ekki verið innsigluð og skilin eftir? „Já, ekki innsigluð. Það hefur aldrei verið gert. Þau eru bara skilin eftir og læst inn í salinn. Svo förum við heim og hvílum okkur í smá tíma og förum aftur á staðinn. Þetta er bara vinnulag sem er búið að vera eins lengi og ég veit. Það er ekkert innsiglað, það er engin aðstaða til að innsigla þetta. Menn ganga ekkert alveg frá þessu. Auðvitað væri það hægt, það væri náttúrulega hægt að klára þetta en þá væru menn að bara fram á miðjan dag og væru þá kannski ekkert búnir að sofa í tvo sólarhringa.“ Þannig að þetta er rétt hjá honum, en þú vísar því á bug að það sé eitthvað athugavert við þetta? „Já, já. Eins og ég segi, þetta hefur bara tíðkast og er bara venjubundið. Það hafa aldrei verið nein vandamál í sambandi við þetta.“ Vísar til skýrra ákvæða kosningalaga Kristín Edwald, formaður Landskjörstjórnar, sagðist ekki geta tjáð sig um málið þegar fréttastofa hafði samband við hana. Almennt sagði hún þó að kosningalög væru skýr um þetta efni, og vísaði sérstaklega til 104. greinar þeirra, sem tekur til þess hvað gera skuli að talningu atkvæða lokinni. Í annarri málsgrein ákvæðisins segir: „Þá skal yfirkjörstjórn setja alla notaða kjörseðla undir innsigli og skal gildum og ógildum kjörseðlum haldið sér. Kjörseðlana skal geyma þar til Alþingi hefur úrskurðað um gildi kosninganna, sbr. 120. gr., enda sé þeirra eigi þörf vegna kæru sem beint hefur verið til lögreglustjóra. Að því búnu skal eyða kjörseðlunum og skrá yfirlýsingu um það í gerðabók yfirkjörstjórnar.“
„Þá skal yfirkjörstjórn setja alla notaða kjörseðla undir innsigli og skal gildum og ógildum kjörseðlum haldið sér. Kjörseðlana skal geyma þar til Alþingi hefur úrskurðað um gildi kosninganna, sbr. 120. gr., enda sé þeirra eigi þörf vegna kæru sem beint hefur verið til lögreglustjóra. Að því búnu skal eyða kjörseðlunum og skrá yfirlýsingu um það í gerðabók yfirkjörstjórnar.“
Norðvesturkjördæmi Alþingiskosningar 2021 Endurtalning í Norðvesturkjördæmi Tengdar fréttir „Hryllileg rússíbanareið“ „Þetta er hryllileg rússíbanareið sem þetta jöfnunarsætakerfi býr til,“ segir Jóhann Páll Jóhannsson, sem nú er orðinn jöfnunarþingmaður Samfylkingarinnar í Reykjavíkurkjördæmi norður, eftir að endurtalning atkvæða í Norðvesturkjördæmi breytti stöðunni varðandi jöfnunarþingmenn víða um land. 26. september 2021 19:59 „Þetta voru góðir níu tímar“ Hljóðið var misgott í þeim sem fengu nú fyrir skemmstu þær fréttir að þeir væru dottnir út sem jöfnunarþingmenn flokka sinna eftir endurtalninguna í Norðvesturkjördæmi. Endurtalningin leiddi í ljós mistök í fyrri tölum sem urðu til þess að jöfnunarsæti í fimm kjördæmum breyttust. 26. september 2021 19:47 Vinstri græn biðja um endurtalningu í Suðurkjördæmi Yfirkjörstjórn Suðurkjördæmis hefur borist beiðni um endurtalningu atkvæða í kjördæminu. Mjótt var á mununum í kjördæminu og nokkur atkvæði til eða frá geta breytt stöðunni, líkt og endurtalning dagsins í Norðvesturkjördæmi hefur sýnt. 26. september 2021 19:18 Konur ekki lengur í meirihluta á Alþingi eftir endurtalningu Þegar lokatölur úr öllum kjördæmum í Alþingiskosningunum lágu fyrir í morgun var útlit fyrir að konur yrðu í meirihluta á Alþingi, í fyrsta sinn í sögunni. Eftir að endurtalning í Norðvesturkjördæmi breytti röðun jöfnunarþingmanna er sá meirihluti hins vegar að engu orðinn. 26. september 2021 18:47 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Hann hættir bara ekki” Fréttir Mótmælendur gegn brottvísun hindruðu för lögreglubíls Innlent Vilja að plássum í sumarfrístund sé útdeilt með sanngjarnari hætti Innlent Evrópa böðuð bleiku Erlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Hótaði lögregluþjónum og fjölskyldum þeirra Innlent Senda á tólf ára palestínskan dreng með hrörnunarsjúkdóm úr landi Innlent Var beðinn um upplýsingar um unga leikmenn vegna veðmáls Innlent Líklegt að Ísraelar hafi brotið alþjóðalög með bandarískum vopnum Erlent Nöfn þeirra sem létust í Eyjafirði Innlent Fleiri fréttir Rigning í kortunum í kvöld „Hann hættir bara ekki” Hótaði lögregluþjónum og fjölskyldum þeirra Vilja að plássum í sumarfrístund sé útdeilt með sanngjarnari hætti Mótmælendur gegn brottvísun hindruðu för lögreglubíls Gætu verið einhverjar vikur í næsta gos Forsetakosningar á Eyrarbakka – munu sakna buffsins frá Guðna Var beðinn um upplýsingar um unga leikmenn vegna veðmáls Um fimm prósent fjölskyldusameininga vegna flóttamanna og hælisleitenda Senda á tólf ára palestínskan dreng með hrörnunarsjúkdóm úr landi Hræðsla við brottvísun, fylgi á fleygiferð og veðjað á leiki barna Ísland greiddi atkvæði með auknum rétti Palestínu hjá SÞ Auknar líkur á nýju eldgosi á næstu dögum Reyndi að drepa mann eftir að upp úr sauð á gamlárskvöld Kári tekur ábyrgð á stuðningi Víðis og Þórólfs Stefnir í tveggja turna tal Guðmundur í Afstöðu hundskammar DV Stórri flotaæfingu NATO lauk í Reykjavík „Þegar hann loksins náði að bjóða mér út missti ég hnén“ Rafmagnslaust í Vesturbænum Viðhorf breytist ekki við það bara að klæða sig í lögreglubúning Þrír sóttu um stöðu dómara við Landsrétt Óhapp í fyrsta sinn í 25 ára sögu Dóra vill ekki búa við umræðu byggða á „falsvitnum“ Einn fluttur eftir þriggja bíla árekstur Óska eftir frekara gæsluvarðhaldi Skjálftahrina og skyndilegt brotthvarf þjálfara Raðrúðubrjóturinn enn á ferð í miðborginni Svona var Pallborðið með mökunum Mögulegt strok á laxi úr landeldi Sjá meira
„Hryllileg rússíbanareið“ „Þetta er hryllileg rússíbanareið sem þetta jöfnunarsætakerfi býr til,“ segir Jóhann Páll Jóhannsson, sem nú er orðinn jöfnunarþingmaður Samfylkingarinnar í Reykjavíkurkjördæmi norður, eftir að endurtalning atkvæða í Norðvesturkjördæmi breytti stöðunni varðandi jöfnunarþingmenn víða um land. 26. september 2021 19:59
„Þetta voru góðir níu tímar“ Hljóðið var misgott í þeim sem fengu nú fyrir skemmstu þær fréttir að þeir væru dottnir út sem jöfnunarþingmenn flokka sinna eftir endurtalninguna í Norðvesturkjördæmi. Endurtalningin leiddi í ljós mistök í fyrri tölum sem urðu til þess að jöfnunarsæti í fimm kjördæmum breyttust. 26. september 2021 19:47
Vinstri græn biðja um endurtalningu í Suðurkjördæmi Yfirkjörstjórn Suðurkjördæmis hefur borist beiðni um endurtalningu atkvæða í kjördæminu. Mjótt var á mununum í kjördæminu og nokkur atkvæði til eða frá geta breytt stöðunni, líkt og endurtalning dagsins í Norðvesturkjördæmi hefur sýnt. 26. september 2021 19:18
Konur ekki lengur í meirihluta á Alþingi eftir endurtalningu Þegar lokatölur úr öllum kjördæmum í Alþingiskosningunum lágu fyrir í morgun var útlit fyrir að konur yrðu í meirihluta á Alþingi, í fyrsta sinn í sögunni. Eftir að endurtalning í Norðvesturkjördæmi breytti röðun jöfnunarþingmanna er sá meirihluti hins vegar að engu orðinn. 26. september 2021 18:47