Blóðtappar skulu skráðir sem „afar sjaldgæf aukaverkun“ af AstraZeneca Kristín Ólafsdóttir skrifar 7. apríl 2021 14:03 Heilbrigðisstarfsfólk bólusett með bóluefni Astrazeneca. Vísir/Vilhelm Evrópska lyfjastofnunin (EMA) telur að möguleg tengsl séu á milli sjaldgæfra tilfella blóðtappa og bólusetningar með bóluefni AstraZeneca gegn kórónuveirunni. Slíkir blóðtappar skuli nú skráðir sem afar sjaldgæf aukaverkun af efninu. Ávinningur af notkun efnisins vegi þó áfram þyngra en áhættan af aukaverkunum þess.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá sérfræðinganefnd EMA sem birt var nú síðdegis. Notkun bóluefnis AstraZeneca var hætt tímabundið hér á landi og í fleiri Evrópuríkjum í mars eftir að tilkynnt var um nokkur tilfelli blóðtappa í kjölfar bólusetningar. Bóluefnið var aftur tekið í notkun á Íslandi 25. mars en þá aðeins fyrir fólk eldra en 70 ára. Flest tilvikin í konum yngri en 60 ára Í tilkynningu frá EMA segir að öll fyrirliggjandi gögn hafi verið tekin með í reikninginn við ákvörðun nefndarinnar í dag. Þá beinir stofnunin því til heilbrigðisstarfsfólks og þeirra sem fá bóluefnið að vera meðvitaðir um áhættu á blóðtappa. Flest tilfellin hafi greinst í konum yngri en 60 ára innan við tveimur vikum frá bólusetningu. Ekki hafa þó enn verið staðfestir sérstakir áhættuþættir fyrir umrædd tilvik sjaldgæfra blóðtappa. Ávinningurinn trompi áhættuna Nefndin leggur þó áherslu á að þessi tilvik séu ákaflega sjaldgæf. Heildarávinningur af notkun bóluefnis AstraZeneca gegn Covid-sýkingu vegi þyngra en áhætta af mögulegum aukaverkunum. Sérfræðinganefndin fundaði síðast 31. mars vegna blóðtappanna. Þá hafði ekki verið sýnt fram á orsakasamhengi milli notkunar bóluefnisins og tilvikanna, „en það er mögulegt og frekari greining fer nú fram,“ sagði í tilkynningu Lyfjastofnunar vegna málsins 31. mars. Fram kom í tilkynningu EMA 18. mars að stofnunin væri þeirrar skoðunar að ávinningur af notkun bóluefnisins vegi þyngra en áhættan af hugsanlegum aukaverkunum þess. Fréttin verður uppfærð.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Bólusetningar Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Lífið heldur áfram eftir svona áfall“ Innlent Halla Hrund eigi langt í land með að tryggja sér embættið Innlent Hvernig ætlar ríkið að sækja milljónirnar 360 sem Haraldur gaf? Innlent „Skrímsladeildin“ hafi skorið upp herör gegn mótframbjóðendum Katrínar Innlent Sló til starfsmanns og beit viðskiptavin Innlent Hefur ekki áhuga á slúðurfréttum af öðrum frambjóðendum Innlent Ríflega fjörutíu prósent líst illa á Katrínu Innlent Varaforsetaefni í bobba vegna hundsdráps og meints fundar með Kim Erlent Ók á tvö hundruð með lögguna á hælunum Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Fleiri fréttir Auka viðbúnað í aðdraganda Eurovision Forseti Argentínu skýtur föstum skotum á spænsku ríkisstjórnina Berlínarborg vill losna við glæsivillu Göbbels Flugvél Atlanta á tæpasta vaði í Ríad Varaforsetaefni í bobba vegna hundsdráps og meints fundar með Kim Kreml fordæmir ummæli Macrons og Camerons Reyna að sækja fyrsta sýnið frá fjærhlið tunglsins Hlustuðu á Trump og Cohen tala um þagnargreiðslu Danir rýmka reglur um þungunarrof Þrjátíu látnir og tuga saknað eftir flóð í Brasilíu Segja frumvarp um gyðingaandúð í andstöðu við Biblíuna Tyrkir stöðva öll viðskipti við Ísrael „Mun ekki halla mér aftur og leyfa deyjandi sjónvarpsstöð að ráðast á mig“ Segir fólk eiga rétt til mótmæla en ekki til óreiðu Umfangsmikil mótmæli vegna „rússneskra“ laga í Georgíu Enn í basli með skemmdir á hitaskildi Orion Vornanen kastað úr þingflokknum Hafa engin varnarvirki til að hörfa í Yfirstandandi kosningar á Englandi prófsteinn fyrir Íhaldsflokkinn Viðbrögð Hamas við vopnahléstillögunum „neikvæð“ Hundruð lögreglumanna í viðbragðsstöðu vegna mótmæla í UCLA Vilja endurupptöku í máli Weinstein Þrjú hundruð handtekin í Columbia-háskóla Stuðningur við dönsku ríkisstjórnina aldrei verið minni Mótmælendur og gagnmótmælendur tókust á Trump sektaður um meira en milljón króna Rússar sagðir nota skotflaugar frá Norður-Kóreu Þrettán ára drengur stunginn til bana með sverði Særði minnst fimm með sverði í Lundúnum Íslendingur sem lúbarði lögreglumenn í Varsjá þarf að borga brúsann Sjá meira