Enski boltinn

Liverpool sagt búið að bjóða í fyrirliða Roma

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Lorenzo Pellegrini er fjölhæfur og flottur miðjumaður.
Lorenzo Pellegrini er fjölhæfur og flottur miðjumaður. EPA-EFE/ETTORE FERRARI

Ítalskur landsliðsmaður gæti verið á leiðinni á Anfield í sumar ef marka má fréttir frá Ítalíu.

Liverpol er sagt búið að bjóða 25,8 milljónir punda í Lorenzo Pellegrini, fyrirliða Roma. Ítalska blaðið Corriere dello Sport slær þessu upp. Jose Mourinho tók á dögunum við sem knattspyrnustjóri Roma af Paulo Fonseca.

Pellegrini er 24 ára gamall miðjumaður og fengi þá það hlutverki að koma í staðinn fyrir Georginio Wijnaldum sem fór á frjálsri sölu til franska liðsins Paris Saint Germain. Liverpool komst ekki að samkomulagi við Wijnaldum um nýjan samning við hollenska landsliðsmanninn sem ætlaði að semja við Barcelona en fékk síðan miklu betra tilboð frá PSG.

Lorenzo Pellegrini er uppalinn hjá Roma og hefur spilað með aðallliði félagsins frá árinu 2017 þegar félagið nýtti sér endurkaupsrétt eftir að hafa selt hann til Sassuolo. Hann tók við fyrirliðabandinu á þessu tímabili.

Pellegrini er fjölhæfur miðjumaður, sem spilaði sem miðvörður í yngri flokkum og getur bæði sem afturliggjandi miðjumaður sem og fyrir aftan framherjana.

Jordan Henderson, Fabinho og James Milner eru allir varnarhugsandi miðjumenn og þeir Alex Oxlade-Chamberlain og Naby Keita glíma mikið við meiðsli. Curtis Jones vantar líka meiri reynslu. Jürgen Klopp veit því að hann þarf beittari hníf í leikmannahópinn.

Pellegrini var með 7 mörk og 7 stoðsendingar í ítölsku deildinni á nýloknu tímabili en á tímabilinu á undan var hann með 1 mark og 11 stoðsendingar.

Pellegrini er í EM-hópi Ítala og fær treyju númer sjö í ítalska landsliðinu á Evrópumótinu sem hefst með leik Ítala og Tyrkja á föstudagskvöldið.


EM 2020 verður sýnt á Stöð 2 Sport EM 2020 sem er hluti af Sportpakkanum, Stóra pakkanum og Risapakkanum. EM 2020 verður einnig hægt að kaupa stakt á kr. 6.990 en fyrir viðskiptavini með aðra áskrift en ofangreindar frá Stöð 2 kostar áskriftin kr. 3.990.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×