678 mínútum á undan pabba og yfir 1.560 mínútum á undan afa Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 12. október 2021 12:31 Andri Lucas Guðjohnsen fagnar marki sínu á móti Norður Makedóníu. Vísir/Hulda Margrét Andri Lucas Guðjohnsen var miklu fljótari að skora landsliðsmark númer tvö heldur en bæði faðir sinn og afi sinn sem báðir eru meðal markahæstu landsliðsmanna Íslands frá upphafi. Annað landsliðsmark Andra Lucasar kom í gær á móti Liechtenstein en hann var þá bara búinn að spila samanlagt 38 mínútur í íslenska landsliðsbúningnum. Andri Lucas hefur enn ekki fengið að byrja með íslenska landsliðinu en mörkin láta ekki á sér standa hjá þessum nítján ára stórefnilega strák. Hann er líka að gera miklu betri en goðsagnirnar í fjölskyldunni og þá er nú mikið sagt enda pabbi og afi hans í hópi bestu knattspyrnumanna sem Ísland hefur eignast. Andri Lucas var 678 mínútum á undan föður sínum Eiði Smára Guðjohnsen í landsliðsmark númer tvö og enn fremur 1.567 mínútum á undan afa sínum Arnóri Guðjohnsen. Meðal þeirra leikmanna sem hafa skorað tíu mörk eða fleiri fyrir íslenska landsliðið þá var Tryggvi Guðmundsson fljótastur í mark númer tvö. Tryggvi skoraði í fyrstu tveimur landsleikjum sínum þar af annað markið átta mínútum eftir að hafa komið inn á sem varamaður á móti Liechtenstein í undankeppni HM 1998. Næstur á eftir Tryggva er Ríkharður Jónsson sem skoraði tvennu í sínum öðrum landsleik og beið því bara í 178 mínútur eftir marki númer tvö. Ríkharður átti markametið í 59 ár. Kolbeinn Sigþórsson, sem nú deilir markametinu með Eiði Smára, var 191 mínútu að skora sitt annað landsliðsmark. Hér fyrir neðan má sjá lista yfir alla tíu marka menn íslenska landsliðsins og hversu langan leiktíma það tók þá að skora sitt annað landsliðsmark.
Annað landsliðsmark Andra Lucasar kom í gær á móti Liechtenstein en hann var þá bara búinn að spila samanlagt 38 mínútur í íslenska landsliðsbúningnum. Andri Lucas hefur enn ekki fengið að byrja með íslenska landsliðinu en mörkin láta ekki á sér standa hjá þessum nítján ára stórefnilega strák. Hann er líka að gera miklu betri en goðsagnirnar í fjölskyldunni og þá er nú mikið sagt enda pabbi og afi hans í hópi bestu knattspyrnumanna sem Ísland hefur eignast. Andri Lucas var 678 mínútum á undan föður sínum Eiði Smára Guðjohnsen í landsliðsmark númer tvö og enn fremur 1.567 mínútum á undan afa sínum Arnóri Guðjohnsen. Meðal þeirra leikmanna sem hafa skorað tíu mörk eða fleiri fyrir íslenska landsliðið þá var Tryggvi Guðmundsson fljótastur í mark númer tvö. Tryggvi skoraði í fyrstu tveimur landsleikjum sínum þar af annað markið átta mínútum eftir að hafa komið inn á sem varamaður á móti Liechtenstein í undankeppni HM 1998. Næstur á eftir Tryggva er Ríkharður Jónsson sem skoraði tvennu í sínum öðrum landsleik og beið því bara í 178 mínútur eftir marki númer tvö. Ríkharður átti markametið í 59 ár. Kolbeinn Sigþórsson, sem nú deilir markametinu með Eiði Smára, var 191 mínútu að skora sitt annað landsliðsmark. Hér fyrir neðan má sjá lista yfir alla tíu marka menn íslenska landsliðsins og hversu langan leiktíma það tók þá að skora sitt annað landsliðsmark. Styðsta bið eftir sínu öðru landsliðsmarki meðal leikmanna með tíu mörk eða fleiri: 53 mínútur - Tryggvi Guðmundsson í sínum öðrum landsleik 178 mínútur - Ríkharður Jónsson í sínum öðrum landsleik 191 mínúta - Kolbeinn Sigþórsson í sínum þriðja landsleik 203 mínútur - Alfreð Finnbogason í sínum sjöunda landsleik 450 mínútur - Matthías Hallgrímsson í sínum sjötta landsleik 503 mínútur - Eyjólfur Sverrisson í sínum sjöunda landsleik 550 mínútur - Þórður Guðjónsson í sínum níunda landsleik 572 mínútur - Helgi Sigurðsson í sínum þrettánda landsleik 619 mínútur - Ríkharður Daðason í sínum fjórtánda landsleik 716 mínútur - Eiður Smári Guðjohnsen í sínum ellefta landsleik 955 mínútur - Pétur Pétursson í sínum ellefta landsleik 987 mínútur - Birkir Bjarnason í sínum sextánda landsleik 1.131 mínúta - Gylfi Þór Sigurðsson í sínum þrettánda landsleik 1.141 mínúta - Heiðar Helguson í sínum 23. landsleik 1.605 mínútur - Arnór Guðjohnsen í sínum nítjánda landsleik
Styðsta bið eftir sínu öðru landsliðsmarki meðal leikmanna með tíu mörk eða fleiri: 53 mínútur - Tryggvi Guðmundsson í sínum öðrum landsleik 178 mínútur - Ríkharður Jónsson í sínum öðrum landsleik 191 mínúta - Kolbeinn Sigþórsson í sínum þriðja landsleik 203 mínútur - Alfreð Finnbogason í sínum sjöunda landsleik 450 mínútur - Matthías Hallgrímsson í sínum sjötta landsleik 503 mínútur - Eyjólfur Sverrisson í sínum sjöunda landsleik 550 mínútur - Þórður Guðjónsson í sínum níunda landsleik 572 mínútur - Helgi Sigurðsson í sínum þrettánda landsleik 619 mínútur - Ríkharður Daðason í sínum fjórtánda landsleik 716 mínútur - Eiður Smári Guðjohnsen í sínum ellefta landsleik 955 mínútur - Pétur Pétursson í sínum ellefta landsleik 987 mínútur - Birkir Bjarnason í sínum sextánda landsleik 1.131 mínúta - Gylfi Þór Sigurðsson í sínum þrettánda landsleik 1.141 mínúta - Heiðar Helguson í sínum 23. landsleik 1.605 mínútur - Arnór Guðjohnsen í sínum nítjánda landsleik
HM 2022 í Katar Mest lesið „Ég sakna hennar á hverjum degi“ Handbolti Bakgarðshlaupið í beinni útsendingu Sport „Hún er með hjartagalla en í góðum höndum núna og vonandi fer allt vel“ Íslenski boltinn „Þetta er ekki boðlegt finnst mér“ Körfubolti DeAndre Kane sleppur við bann og spilar í kvöld Körfubolti „Varhugavert er að ætla starfsmanni Stöðvar 2 að hafa brugðið talsvert“ Körfubolti Andrea á batavegi: „Gott fyrir alla að sjá hana brosandi“ Íslenski boltinn Arsenal menn kláruðu sitt og nú er pressan á Man. City Enski boltinn Hætti óvænt: Fannst hann skulda fjölskyldunni smá tíma Handbolti Lið Aþenu og Brynjar Karl einum leik frá Subway-deildinni eftir spennutrylli Körfubolti Fleiri fréttir Diljá og félagar töpuðu toppslagnum á heimavelli Arsenal menn kláruðu sitt og nú er pressan á Man. City Ipswich Town aftur upp í ensku úrvalsdeildina eftir 22 ára fjarveru Í beinni: FH - Vestri | Bæði liðin á sigurbrauinni Þórir bæði með mark og stoðsendingu Andrea á batavegi: „Gott fyrir alla að sjá hana brosandi“ Glódís Perla þýskur meistari annað árið í röð Arteta segir að Gabriel Jesus sé ekki á förum í sumar Með sjö í þremur: „Kannski margir sem afskrifa mann en mér finnst ég eiga nóg eftir“ Clattenburg hættur og segist hafa verið skotmark sérfræðinga Óvænt úrslit í fyrstu umferð Lengjudeildarinnar „Hún er með hjartagalla en í góðum höndum núna og vonandi fer allt vel“ „Ég er spennt að fara heim að sofa“ Luton mistókst að koma sér úr fallsæti „Við vissum að við þyrftum að þjást“ Uppgjör, viðtöl og myndir: Breiðablik - FH 3-0 | Blikar héldu uppteknum hætti Uppgjörið: Stjarnan - Tindastóll 0-2 | Fyrstu mörkin og fyrsti sigurinn hjá Stólunum Sveindís sneri aftur í stórsigri Wolfsburg Ísak skoraði og Dusseldorf enn í baráttunni um sæti í efstu deild Sala drykkjarins í hæstu hæðum eftir myndirnar af Haaland Klopp ósáttur við álagið: „Hádegisleikir eru glæpur“ Sveindís mætt aftur í leikmannahóp Wolfsburg eftir meiðsli FH-ingar kynna besta lið sögunnar Ten Hag vildi fá Kane í sumar: „Þú veist að hann skorar þrjátíu mörk“ Fékk hrós frá Klopp: Vingjarnlegasti maður sem ég hef hitt Stórleikur á Samsung-vellinum og meistararnir fara í Mosó Rúnar Már fann neistann Ánægjulegar myndir af Cecilíu Rán Börn Maradona vilja flytja jarðneskar leifar hans Eftirminnileg Skotlandsferð FC Sækó: Spiluðu við Celtic og heimsóttu Hampden Park Sjá meira