Orðinn næst markahæstur í sögu Real

Benzema og Vínicius Júnior fagna marki hins síðarnefnda í gærkvöldi.
Benzema og Vínicius Júnior fagna marki hins síðarnefnda í gærkvöldi. AFP/Javier Soriano

Frakkinn Karim Benzema skoraði sitt 323. mark fyrir spænska stórliðið Real Madrid í 6:0-stórsigri á Levante í spænsku 1.deildinni í gærkvöldi.

mbl.is/sport/fotbolti/2022/05/12/meistararnir_skorudu_sex/

Með markinu komst Benzema upp að hlið spænsku goðsagnarinnar Raúl en þeir eru jafnir í öðru sæti listans yfir markahæstu menn í sögu félagsins.

Portúgalinn Cristiano Ronaldo er að sjálfsögðu á toppi listans en hann skoraði 450 mörk á tíma sínum hjá Real.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert