Lífið

Einvala lið með Hebba í nýjasta slagaranum

Stefán Árni Pálsson skrifar
Herbert Guðmundsson hefur sent frá sér nýtt lag þar sem hann syngur um einmana sálir.
Herbert Guðmundsson hefur sent frá sér nýtt lag þar sem hann syngur um einmana sálir. aðsend

Tónlistarmaðurinn Herbert Guðmundsson hefur sent frá sér lagið Með stjörnunum.

Lagið er samvinnuverkefni Herberts, Halldórs Á. Björnssonar hljómborðsleikara og framleiðanda, Þórsteins Inga Einarssonar og Brynju Lísu Þórisdóttur.

Halldór Á. Björnsson sá um upptökur á laginu en það var hljóðblandað í Austurríki af Lukas Hillebrand.

Lukas þessi og Þórsteinn hafa áður leitt hesta sína saman í laginu Schakles sem hefur notið mikilla vinsælda en Þórsteinn þessi varð í fjórða sæti í austurrísku hæfileikakeppninni Die große Chance árið 2014.

Lagið fjallar um mann í ástarsorg sem hugsar til konunnar sem hann elskar. Hann horfir til stjarnanna og finnst sem hann sjái hana þar og veltir fyrir sér hvort hún sé jafn einmana og hann.

Lagið er komið út á Spotify og má heyra hér fyrir neðan:

Það má sannarlega segja að Herbert, sem flestir þekkja sem Hebba, sé með mörg járn í eldinum. Hann er iðinn við að koma fram á allskyns viðburðum en auk þess var Herbert fenginn til að leika sjálfan sig í þáttanna Brúðkaupið mitt sem er framhald Jarðarfararinnar minnar. Þar er sjálfur Laddi í aðalhlutverki en Herbert leikur þar sjálfan sig sem og söngvararnir Kristján Jóhannsson og Björgvin Halldórsson.

Herbert ásamt Björgvini Halldórssyni og Kristjáni Jóhannssyni við tökur á þáttunum Brúðkaupið mitt.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×