Innlent

26 sækjast eftir embætti héraðsdómara

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Í öllum tilfellum er um að ræða embætti dómara með fyrsta starfsvettvang hjá dómstólunum. Dómnefnd um hæfni umsækjenda um dómaraembætti mun fara yfir umsóknirnar.
Í öllum tilfellum er um að ræða embætti dómara með fyrsta starfsvettvang hjá dómstólunum. Dómnefnd um hæfni umsækjenda um dómaraembætti mun fara yfir umsóknirnar. Vísir/Vilhelm

Samtals bárust 26 umsóknir um embætti dómara við Héraðsdóm Reykjaness sem auglýst var til umsóknar á dögunum. 24 umsóknir bárust um embætti dómara hjá Héraðsdómi Reykjavíkur og níu umsóknir við Héraðsdóm Norðurlands eystra. Þetta kemur fram á vef dómsmálaráðuneytisins.

Stöðurnar voru auglýstar þann 25. september og rann umsóknarfrestur út á föstudaginn. Tvær stöður eru lausar við Héraðsdóm Reykjavíkur en eitt hjá hinum dómstólunum tveimur.

Umsækjendur um öll embættin:

Arnbjörg Sigurðardóttir, aðstoðarmaður héraðsdómara

Brynjólfur Hjartarson, lögfræðingur

Guðmundína Ragnarsdóttir, lögmaður

Herdís Hallmarsdóttir, lögmaður

Hlynur Jónsson, lögmaður

Höskuldur Þór Þórhallsson, lögmaður

Ólafur Helgi Árnason, lögmaður

Sigurður Jónsson, lögmaður

Karl Óttar Pétursson, lögmaður

Umsækjendur um tvö embætti dómara hjá Héraðsdómi Reykjavíkur og eitt hjá Héraðsdómi Reykjaness:

Arnór Snæbjörnsson, settur skrifstofustjóri

Auður Björg Jónsdóttir, lögmaður

Ásgeir Jónsson, lögmaður

Bergþóra Ingólfsdóttir, héraðsdómari

Björn. L. Bergsson, skrifstofustjóri

Björn Þorvaldsson, saksóknari og sviðsstjóri

Eva Halldórsdóttir, lögmaður

Hulda Árnadóttir, lögmaður

Jóhannes Rúnar Jóhannsson, lögmaður

Margrét Einarsdóttir, prófessor

Margrét Gunnlaugsdóttir, lögmaður

María Thejll, lögmaður

Nanna Magnadóttir, formaður og forstöðumaður

Valborg Steingrímsdóttir, lögfræðingur og verkefnastjóri

Þórhallur Haukur Þorvaldsson, lögmaður

Umsækjendur um embætti dómara hjá Héraðsdómi Reykjaness

Jón Auðunn Jónsson, lögmaður

Jónas Jóhannsson, héraðsdómari



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×