Sigurvegarinn í leik eitt orðið Íslandsmeistari í 78 prósent tilfella Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 23. maí 2023 15:01 Sagan er með Eyjamönnum í liði. vísir/anton Tölfræðin er ekki beint hliðholl Haukum í einvígi þeirra við ÍBV um Íslandsmeistaratitilinn í handbolta karla. Eyjamenn unnu fyrsta leik liðanna í Vestmannaeyjum á laugardaginn, 33-27, og liðin mætast öðru sinni á Ásvöllum í kvöld. Frá því úrslitakeppnin var sett á laggirnar tímabilið 1991-92 hefur liðið sem vann fyrsta leikinn í úrslitaeinvígi orðið Íslandsmeistari í 21 skipti af 27. Liðið sem vann fyrsta leikinn í fyrstu fimm úrslitaeinvígunum varð Íslandsmeistari, eða allt þar til Aftureldingu mistókst að verða meistari 1997 eftir að hafa unnið fyrsta leikinn gegn KA. Það gerðist svo þrjú ár í röð um aldamótin að liðið sem vann fyrsta leikinn í úrslitaeinvígi varð ekki meistari. Þessi óheppnu lið voru Fram 2000 (töpuðu fyrir Haukum), KA 2001 (töpuðu fyrir Haukum) og Valur 2002 (töpuðu fyrir KA). ÍBV varð Íslandsmeistari í fyrsta sinn 2014 þrátt fyrir að hafa tapað fyrsta leiknum gegn Haukum. Eyjamenn tryggðu sér titilinn með sigri í eftirminnilegum oddaleik á Ásvöllum. Afturelding varð svo ekki meistari 2016 þrátt fyrir að hafa unnið fyrsta leikinn gegn Haukum. Hafnfirðingar urðu meistarar eftir sigur í oddaleik á Ásvöllum. Lið sem hafa unnið fyrsta leik í úrslitaeinvígi 1992: FH - meistari 1993: Valur - meistari 1994: Valur - meistari 1995: Valur - meistari 1996: Valur - meistari 1997: Afturelding - ekki meistari (KA) 1998: Valur - meistari 1999: Afturelding - meistari 2000: Fram - ekki meistari (Haukar) 2001: KA - ekki meistari (Haukar) 2002: Valur - ekki meistari 2003: Haukar - meistari 2004: Haukar - meistari 2005: Haukar - meistari 2009: Haukar - meistari 2010: Haukar - meistari 2011: FH - meistari 2012: HK - meistari 2013: Fram - meistari 2014: Haukar - ekki meistari (ÍBV) 2015: Haukar - meistari 2016: Afturelding - ekki meistari (Haukar) 2017: Valur - meistari 2018: ÍBV - meistari 2019: Selfoss - meistari 2021: Valur - meistari 2022: Valur - meistari 2023: ??? Nú er að sjá hvort Haukar nái að snúa á söguna og verða meistarar þrátt fyrir að hafa tapað fyrsta leiknum. Þeir geta einnig komið sér í sögubækurnar með því að verða fyrsta liðið sem endar í 8. sæti til að verða meistari. Leikur Hauka og ÍBV hefst klukkan 18:00 og verður sýndur beint á Stöð 2 Sport. Upphitun Seinni bylgjunnar hefst klukkan 17:20. Olís-deild karla Haukar ÍBV Mest lesið „Til skammar að koma úr atvinnumennsku eins og hann er að koma“ Íslenski boltinn Lést í fyrsta bardaga sínum Sport Telja að hann hafi sent tvíburabróðurinn til Rúmeníu í sinn stað Fótbolti Fernandes íhugar að stökkva frá borði Enski boltinn Lygileg toppbarátta í Danmörku Fótbolti Var með 0,99 í xG en skoraði samt ekki Enski boltinn „Auðvitað voru einhverjir villtir draumar um að fara í úrslitin“ Körfubolti Ólafur Gústafsson aftur heim í FH: „Gleðidagur fyrir okkur FH-inga“ Handbolti „Ef KR-ingar vita að Óskar sé til í að koma, skiptir einhverju máli hvað Gregg gerir?“ Íslenski boltinn Hrósaði karakter leikmanna eftir að liðið henti frá sér unnum leik Enski boltinn Fleiri fréttir Ólafur Gústafsson aftur heim í FH: „Gleðidagur fyrir okkur FH-inga“ Einar hættir með kvennalið Fram „Við erum alveg róleg“ Uppgjör: Haukar - Valur 22-30 | Meistararnir í 2-0 Algjör niðurlæging sveina Dags sem hafa aldrei tapað stærra Vonar að pabbi sinn komist ekki á ÓL Heimsmeistararnir stöðvaðir á síðustu stundu Uppgjörið: Eistland - Ísland 24-37 | Gengu örugglega frá Eistum og tryggðu farseðil á HM Frost í sókn en sveinar Dags mörðu sigur Segja Ísland hafa skorað fimmtíu án þess að svitna „Annað hvort gera þeir eins og Man. City eða eins og Liverpool“ Grafalvarleg staða: „Við verðum að breyta þessu strax“ Einar Bragi skrifaði undir tveggja ára samning í Svíþjóð Slóvakía skellti Póllandi óvænt í umspili HM „Við vorum skugginn af sjálfum okkur“ Uppgjörið og viðtöl: Valur - Haukar 28-27 | Íslandsmeistarnir sluppu með skrekkinn Gagnrýnir lítinn stuðning við afreksíþróttafólk: „Upphæðin ein og sér er grín“ Myndaveisla frá risasigrinum á Eistum Færeyingar hársbreidd frá fyrsta heimsmeistaramótinu Uppgjörið: Ísland - Eistland 50-25 | Stigu bensínið í botn frá fyrstu mínútu „Ánægður að við sýndum þá hlið að við getum verið góðir í sextíu mínútur“ Þakklátur eftir fyrsta landsleikinn: „Tek bara einn dag fyrir í einu“ „Ekkert sjálfgefið að valta yfir lið“ Skyldusigur í kvöld: „Þurfum að koma okkur inn á HM“ Einar Bragi verður einn af strákunum okkar í kvöld „Það er stórmót í húfi“ Stjörnumarkvörðurinn í vandræðum með augað á sér Ísland eignast nýtt EHF dómarapar Bleyjur og klósettpappír áhorfenda kostuðu ÍBV Enn hægt að fá miða á HM-leikinn í kvöld Sjá meira
Eyjamenn unnu fyrsta leik liðanna í Vestmannaeyjum á laugardaginn, 33-27, og liðin mætast öðru sinni á Ásvöllum í kvöld. Frá því úrslitakeppnin var sett á laggirnar tímabilið 1991-92 hefur liðið sem vann fyrsta leikinn í úrslitaeinvígi orðið Íslandsmeistari í 21 skipti af 27. Liðið sem vann fyrsta leikinn í fyrstu fimm úrslitaeinvígunum varð Íslandsmeistari, eða allt þar til Aftureldingu mistókst að verða meistari 1997 eftir að hafa unnið fyrsta leikinn gegn KA. Það gerðist svo þrjú ár í röð um aldamótin að liðið sem vann fyrsta leikinn í úrslitaeinvígi varð ekki meistari. Þessi óheppnu lið voru Fram 2000 (töpuðu fyrir Haukum), KA 2001 (töpuðu fyrir Haukum) og Valur 2002 (töpuðu fyrir KA). ÍBV varð Íslandsmeistari í fyrsta sinn 2014 þrátt fyrir að hafa tapað fyrsta leiknum gegn Haukum. Eyjamenn tryggðu sér titilinn með sigri í eftirminnilegum oddaleik á Ásvöllum. Afturelding varð svo ekki meistari 2016 þrátt fyrir að hafa unnið fyrsta leikinn gegn Haukum. Hafnfirðingar urðu meistarar eftir sigur í oddaleik á Ásvöllum. Lið sem hafa unnið fyrsta leik í úrslitaeinvígi 1992: FH - meistari 1993: Valur - meistari 1994: Valur - meistari 1995: Valur - meistari 1996: Valur - meistari 1997: Afturelding - ekki meistari (KA) 1998: Valur - meistari 1999: Afturelding - meistari 2000: Fram - ekki meistari (Haukar) 2001: KA - ekki meistari (Haukar) 2002: Valur - ekki meistari 2003: Haukar - meistari 2004: Haukar - meistari 2005: Haukar - meistari 2009: Haukar - meistari 2010: Haukar - meistari 2011: FH - meistari 2012: HK - meistari 2013: Fram - meistari 2014: Haukar - ekki meistari (ÍBV) 2015: Haukar - meistari 2016: Afturelding - ekki meistari (Haukar) 2017: Valur - meistari 2018: ÍBV - meistari 2019: Selfoss - meistari 2021: Valur - meistari 2022: Valur - meistari 2023: ??? Nú er að sjá hvort Haukar nái að snúa á söguna og verða meistarar þrátt fyrir að hafa tapað fyrsta leiknum. Þeir geta einnig komið sér í sögubækurnar með því að verða fyrsta liðið sem endar í 8. sæti til að verða meistari. Leikur Hauka og ÍBV hefst klukkan 18:00 og verður sýndur beint á Stöð 2 Sport. Upphitun Seinni bylgjunnar hefst klukkan 17:20.
1992: FH - meistari 1993: Valur - meistari 1994: Valur - meistari 1995: Valur - meistari 1996: Valur - meistari 1997: Afturelding - ekki meistari (KA) 1998: Valur - meistari 1999: Afturelding - meistari 2000: Fram - ekki meistari (Haukar) 2001: KA - ekki meistari (Haukar) 2002: Valur - ekki meistari 2003: Haukar - meistari 2004: Haukar - meistari 2005: Haukar - meistari 2009: Haukar - meistari 2010: Haukar - meistari 2011: FH - meistari 2012: HK - meistari 2013: Fram - meistari 2014: Haukar - ekki meistari (ÍBV) 2015: Haukar - meistari 2016: Afturelding - ekki meistari (Haukar) 2017: Valur - meistari 2018: ÍBV - meistari 2019: Selfoss - meistari 2021: Valur - meistari 2022: Valur - meistari 2023: ???
Olís-deild karla Haukar ÍBV Mest lesið „Til skammar að koma úr atvinnumennsku eins og hann er að koma“ Íslenski boltinn Lést í fyrsta bardaga sínum Sport Telja að hann hafi sent tvíburabróðurinn til Rúmeníu í sinn stað Fótbolti Fernandes íhugar að stökkva frá borði Enski boltinn Lygileg toppbarátta í Danmörku Fótbolti Var með 0,99 í xG en skoraði samt ekki Enski boltinn „Auðvitað voru einhverjir villtir draumar um að fara í úrslitin“ Körfubolti Ólafur Gústafsson aftur heim í FH: „Gleðidagur fyrir okkur FH-inga“ Handbolti „Ef KR-ingar vita að Óskar sé til í að koma, skiptir einhverju máli hvað Gregg gerir?“ Íslenski boltinn Hrósaði karakter leikmanna eftir að liðið henti frá sér unnum leik Enski boltinn Fleiri fréttir Ólafur Gústafsson aftur heim í FH: „Gleðidagur fyrir okkur FH-inga“ Einar hættir með kvennalið Fram „Við erum alveg róleg“ Uppgjör: Haukar - Valur 22-30 | Meistararnir í 2-0 Algjör niðurlæging sveina Dags sem hafa aldrei tapað stærra Vonar að pabbi sinn komist ekki á ÓL Heimsmeistararnir stöðvaðir á síðustu stundu Uppgjörið: Eistland - Ísland 24-37 | Gengu örugglega frá Eistum og tryggðu farseðil á HM Frost í sókn en sveinar Dags mörðu sigur Segja Ísland hafa skorað fimmtíu án þess að svitna „Annað hvort gera þeir eins og Man. City eða eins og Liverpool“ Grafalvarleg staða: „Við verðum að breyta þessu strax“ Einar Bragi skrifaði undir tveggja ára samning í Svíþjóð Slóvakía skellti Póllandi óvænt í umspili HM „Við vorum skugginn af sjálfum okkur“ Uppgjörið og viðtöl: Valur - Haukar 28-27 | Íslandsmeistarnir sluppu með skrekkinn Gagnrýnir lítinn stuðning við afreksíþróttafólk: „Upphæðin ein og sér er grín“ Myndaveisla frá risasigrinum á Eistum Færeyingar hársbreidd frá fyrsta heimsmeistaramótinu Uppgjörið: Ísland - Eistland 50-25 | Stigu bensínið í botn frá fyrstu mínútu „Ánægður að við sýndum þá hlið að við getum verið góðir í sextíu mínútur“ Þakklátur eftir fyrsta landsleikinn: „Tek bara einn dag fyrir í einu“ „Ekkert sjálfgefið að valta yfir lið“ Skyldusigur í kvöld: „Þurfum að koma okkur inn á HM“ Einar Bragi verður einn af strákunum okkar í kvöld „Það er stórmót í húfi“ Stjörnumarkvörðurinn í vandræðum með augað á sér Ísland eignast nýtt EHF dómarapar Bleyjur og klósettpappír áhorfenda kostuðu ÍBV Enn hægt að fá miða á HM-leikinn í kvöld Sjá meira
„Ef KR-ingar vita að Óskar sé til í að koma, skiptir einhverju máli hvað Gregg gerir?“ Íslenski boltinn
„Ef KR-ingar vita að Óskar sé til í að koma, skiptir einhverju máli hvað Gregg gerir?“ Íslenski boltinn