Gleymdu að minnast á Hauk Hilmarsson

Haukur Hilmarsson. Myndin er tekin úr myndskeiði sem útlendingahersveitin International …
Haukur Hilmarsson. Myndin er tekin úr myndskeiði sem útlendingahersveitin International Freedom Battalion birti árið 2018.

Forsætisráðuneytið biðst í tilkynningu afsökunar á því að hafa gleymt að geta þess að vitað sé um að einn Íslendingur hafi tekið beinan þátt í aðgerðum bandamanna gegn Ríki íslams í skýrslu þjóðaröryggisráðs. 

Í skýrslunni segir: „Auk þess hafa Íslendingar, einir Norðurlandaþjóða, ekki tekið beinan þátt í aðgerðum bandamanna gegn ISIS-hryðjuverkasamtökunum í Írak og Sýrlandi. Ekki er vitað til þess að einstaklingar búsettir hér á landi hafi haldið til Mið-Austurlanda í því skyni.“   

Í tilkynningu ráðuneytisins kemur fram að þarna hafi „augljóslega orðið mistök við vinnslu skýrslunnar“.

„Þar sem vitað er að minnsta kosti um einn Íslending, Hauk Hilmarsson, sem barðist með hersveitum Kúrda gegn ISIS, og verða þau leiðrétt. Skýrslan verður þannig leiðrétt og prentuð upp að nýju. Þessi leiðu mistök eru hörmuð og beðist er afsökunar á þeim sárindum sem þau hafa valdið.“

Haukur barðist með Kúrdum í Sýrlandi og er talið að hann hafi fallið í loftárás tyrkneska hersins 24. febrúar árið 2018.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert