Skaðlegt fyrir Djokovic og tennisíþróttina

Novak Djokovic.
Novak Djokovic. AFP

ATP, samtökin sem skipuleggja stærstu tennismót heims, segja í yfirlýsingu að vandræðin sem hafa fylgt umsókn Serbans Novaks Djokovic um vegabréfsáritun í Ástralíu svo honum yrði unnt að taka þátt á Opna ástralska mótinu sem hefst í næstu viku hafi verið skaðleg fyrir hann sjálfan og íþróttina.

Djokovic fékk í gær leyfi til að dvelja í land­inu eft­ir að dóm­ari ógilti þá ákvörðun að taka ekki vegabréfsáritun hans gilda þegar Serbinn kom til Mel­bour­ne síðasta fimmtu­dag. Hann sat í ein­angr­un í fjóra sól­ar­hringa á sótt­varna­hót­eli í borg­inni þar til mál hans var tekið fyr­ir í gær.

„Vandræðin sem snúa að komu leikmanna til Ástralíu undanfarna daga hafa varpað ljósi á nauðsyn þess að koma á fót betri skilningi, samskiptum og beitingu á reglum.

Þegar Novak Djokovic ferðaðist til Melbourne er það alveg ljóst að hann stóð í þeirri trú að honum hefði verið veitt sú læknisfræðilega undanþága sem þörf var á til þess að uppfylla þær kröfur sem gerðar eru til þeirra sem koma til landsins,“ sagði meðal annars í yfirlýsingu ATP.

Samtökin hvöttu í yfirlýsingunni alla tennisleikara til þess að þiggja bólusetningu við kórónuveirunni, en Djokovic hefur þráfaldlega hafnað því að þiggja hana.

Samkvæmt reglum í Ástralíu verða þeir sem koma til landsins að vera bólusettir og var Djokovic neitað um landvistarleyfi þar sem hvergi kom fram í pappírunum sem hann hafði undir höndum við komuna til Melbourne hvort hann væri bólusettur eður ei.

Úrsk­urður dóm­ar­ans fyrir réttinum í gær var þó á þá leið að ekki hefði verið rétt að því staðið hjá landa­mæra­vörðum að ógilda vegabréfsáritun­ina hjá Djo­kovic. Eftir sem áður hafa áströlsk yfirvöld rétt til að ógilda áritun hans og senda Djokovic úr landi.

„Atburðirnir sem leiddu til réttarhaldanna á mánudag hafa verið skaðlegir að öllu leyti, þar á meðal hvað velferð og undirbúning Novaks fyrir Opna ástralska mótið varðar,“ sagði einnig í yfirlýsingu ATP.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert