Einlægur Kolbeinn tjáir sig um prófkjörsugg Jakob Bjarnar skrifar 8. apríl 2021 09:56 Kolbeinn Óttarsson Proppé tjáir sig einlæglega um prófkjörsugg en rafrænt forval verður haldið um helgina og ræðst þá hvernig raðast á lista VG í Suðurkjördæmi. vísir/vilhelm Kolbeinn Óttarsson Proppé þingmaður Vinstri grænna birtir einlægan pistil um komandi prófkjörsslag og segist hreinlega ekki nenna að láta sem hann hafi ekki áhrif á sig andlega. „
Þessi vinna mín er skrýtin, ólík öllum öðrum. Nú um helgina ræðst það hvort ég hafi möguleika á að sinna henni áfram eða ekki.“ Svo hefst pistill sem Kolbeinn birtir á Facebooksíðu sinni nú í morgun: „Annað hvort gengur vel í forvali og ég get einhent mér í það verðuga verkefni að tryggja VG þingsæti í Suðurkjördæmi, eða það gengur illa og ég veit að ég þarf að hætta á þingi og finna mér eitthvað annað að gera í haust. Og þó það gangi vel um helgina getur nákvæmlega sama staða komið upp í haust, ef ekki tekst að ná inn á þing.“ Harður slagur um efsta sæti á lista Rafrænt forval Vinstri grænna í Suðurkjördæmi fer fram nú um helgina. Átta gefa kost á sér í fimm efstu sætin í forvali VG í Suðurkjördæmi: Almar Sigurðsson, ferðaþjónustubóndi og formaður svæðisfélags Vg í Árnessýslu, Heiða Guðný Ásgeirsdóttir, bóndi og sveitarstjórnarmaður í Skaftárhreppi, Hólmfríður Árnadóttir, skólastjóri og formaður svæðisfélags Vg á Suðurnesjum, Róbert Marshall, leiðsögumaður og upplýsingafulltrúi ríkisstjórnarinnar og svo Kolbeinn bjóða sig fram í fyrsta sæti. Ljóst er að hart verður barist um efsta sæti á lista og líkt og Kolbeinn kemur inn á sínum pistli getur enginn gengið að neinu vísu, ekki einu sinni því að Vinstri græn fái þingmann í kjördæminu. Tekur á andlega Kolbeinn segir að hann hafi sem blaðamaður skrifað um þingmenn í prófkjöri, talað við þá sagt af þeim fréttir. En aldrei almennilega skilið hvernig þeim líður. „Auðvitað er fólk líka ólíkt og það hvernig mér líður segir ekki til um hvernig öðrum gerir það. Helst minnir þetta mig á mörg mánaðamótin á Fréttablaðinu eftir hrun, þegar maður mátti alltaf eiga von á því að einhverjum yrði sagt upp. Verð það ég núna?“ Þessi vinna mín er skrýtin, ólík öllum öðrum. Nú um helgina ræðst það hvort ég hafi möguleika á að sinna henni áfram eða...Posted by Kolbeinn Óttarsson Proppé on Fimmtudagur, 8. apríl 2021 Síðustu vikur og mánuðir hafa verið hektískir, að sögn Kolbeins. Hann segist hafa, eftir að ákvörðun lá fyrir, einsett sér að fara um allt og hitta sem flesta. Kynnast stöðunni og heyra í fólki. Þegar það svo leggst saman við þing- og nefndafundi og aðra fundi fækkar frídögum snarlega. „Þetta tekur furðulega á andlega. Ég nenni ekki að þykjast láta sem þetta hafi engin áhrif, það væri einfaldlega rangt,“ segir Kolbeinn, einlægur á Facebook-síðu sinni.
Vinstri græn Alþingiskosningar 2021 Suðurkjördæmi Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Krefjast þess að HÍ beiti sér með sama hætti gegn Ísrael og Rússlandi Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Flóttamannastofnun SÞ gerir athugasemdir við útlendingafrumvarpið Innlent Apple biðst afsökunar á auglýsingu fyrir nýjan iPad Erlent Stöðugt landris og hugað að rýmingu Innlent Færeyingar áforma 4.500 króna aðgangseyri á alla ferðamenn Erlent Ísraelsstjórn vígreif þrátt fyrir viðsnúning Bandaríkjamanna Erlent Tveir fluttir á Landspítala eftir árekstur á mótorkrossbrautinni í Mosfellsbæ Innlent Dýrin séu dauð, veik, horuð og í miklum vanhöldum Innlent Skjálftavirkni aukist í kjölfar gosloka Innlent Fleiri fréttir Flóttamannastofnun SÞ gerir athugasemdir við útlendingafrumvarpið Krefjast þess að HÍ beiti sér með sama hætti gegn Ísrael og Rússlandi Tveir fluttir á Landspítala eftir árekstur á mótorkrossbrautinni í Mosfellsbæ Skjálftavirkni aukist í kjölfar gosloka Stöðugt landris og hugað að rýmingu Ræktar 95 tegundir af túlípönum í Mosfellsdal Dýrin séu dauð, veik, horuð og í miklum vanhöldum Ríkisstjórn þurfi að gera meira í þágu vopnahlés Dauð lömb á túni, árás á Rafah og Eurovision Maður sem áreitir börn í Hafnarfirði til rannsóknar Sýknaður af nauðgun en enginn vafi að konan telji á sér brotið Fylgi Höllu hrundi eftir kappræðurnar á RÚV Sinubruni við Hellisskóg á Selfossi 150 þolendum sinnt vegna ofbeldis í nánu sambandi Meintur fjárdráttur mikið áfall fyrir starfsfólk skólans Stóra Svört bar fimm svörtum lömbum Eldgosinu lokið, meintur fjárdráttur og manndrápsrannsókn Eldvörp líkleg næst Rannsókn vegna meints manndráps í Kiðjabergi miðar vel Samanburður við lóðamál olíufélaganna eins „fjarri sannleikanum og hægt er“ Guðríður Hrund skipuð skólameistari MK Eldgosinu lokið eftir 54 daga Leggja aftur fram tillögu um að selja húsnæði MÍR Facebook bannar Ástþóri að auglýsa Býður þjóðarhöll Færeyja undir landsleiki Íslands Reykjavík lækkar gjaldskrár vegna þjónustu við barnafjölskyldur Fylgjast grannt með gangi mála Margt bendi til þess að gosinu sé lokið María Sigrún birtir tölvupósta Dags „Á endanum snýst þetta allt um peninga“ Sjá meira