Náðu samkomulagi til að forða Bandaríkjunum frá greiðsluþroti Árni Sæberg skrifar 28. maí 2023 19:06 Kevin McCarthy vill hækka skuldaþakið. J. Scott Applewhite/AP Joe Biden Bandaríkjaforseti og Kevin McCarthy, forseti fulltrúadeildar Bandaríkjaþings, hafa náð samkomulagi um hækkun skuldaþaks Bandaríkjanna eftir stífar samningaviðræður undanfarið. Verði samningur þeirra ekki samþykktur af báðum deildum þingsins fara Bandaríkin í greiðsluþrot eftir rúma viku.
Fjármálaráðuneyti Bandaríkjanna hefur lýst því yfir að Bandaríkin muni hætta að geta staðið við fjárhagslega skuldbindingar sínar þann 5. júní næstkomandi, verði skuldaþak landsins ekki hækkað. Bandaríkjaforseti hefur undafarið staðið í miklu stappi við Repúblikana, sem hafa nýtt skuldaþaksvandann til þess að ná fram stefnumálum sínum með viðræðum við Hvíta húsið. Repúblikanar fara með nauman meirihluta í fulltrúadeild þingsins. Í mjög einföldu máli snýst deilan um það að skuldaþakið, eða það hvað Bandaríkin mega skulda samkvæmt lögum, er að verða of lágt. Skuldaþakið stendur nú í 31,4 billjónum dala (31.400.000.000.000) en áætlað er að Bandaríkin reki höfuðið í þakið, ef svo má að orði komast, snemma í júní. Biden og McCarthy tilkynntu í dag að þeir hefðu loksins komist að samkomulagi um hækkun skuldaþaksins. Forsetinn sagði að samið hafi verið með því að miðla málum en McCarthy virðist stoltari af samningum og sagði samninginn „verðugan bandarísku þjóðinni.“ Í frétt AP um málið segir að innihald samkomulags þeirra Bidens og McCarthy liggi ekki fyrir að svo stöddu. Þó sé vitað að samningurinn kveði á um að ríkisútgjöld, fyrir utan rekstur hersins, verði ekki aukin út árið 2024 og aðeins aukin um eitt prósent árið 2025. Þá hafi Biden náð áformum sínum um heilbrigðisþjónustu fyrir uppgjafarhermenn í gegn og McCarthy hafi fengið Biden til þess að samþykkja aukna vinnuskyldu fyrir fólk sem þiggur félagslega þjónustu. Repúblikanar hafa um nokkurt skeið barist fyrir því að fólk fái ekki þjónustu á borð við matarmiða, nema það sé í vinnu. Það telja þeir að myndi örva vinnumarkað og hækka skatttekjur Bandaríkjanna. Gætu enn farið á hausinn Þrátt fyrir að forsetarnir tveir hafi náð samkomulagi sín á milli er hættan á greiðslufalli ekki enn liðin hjá. Skuldaþakið verður ekki hækkað án samþykkis beggja deilda Bandaríkjaþings. Stjórnmálamenn lengst til hægri og vinstri hafa lýst yfir óánægju sinni með samninginn. Repúblikanar á hægri vængnum telja ekki nóg skorið niður og Demókratar lengst til vinstri telja of mikið skorið niður. Þar sem mjótt er á munum í báðum deildum Bandaríkjaþings er ljóst að hófsamari þingmenn í báðum flokkum þurfa að vera samstíga til þess að koma í veg fyrir það að Bandaríkin fari á hausinn.
Bandaríkin Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Of þung en annars hraust á Ozempic Innlent Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Innlent Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Innlent Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Innlent Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Innlent Segja grafalvarlegt mál að fresta atkvæðagreiðslu Innlent Myndband sýnir árás Diddy Erlent „Engu okkar er boðið að koma þarna og sjá“ Innlent „Það er miður að það falli til kostnaður vegna þessa“ Innlent Fleiri fréttir Myndband sýnir árás Diddy Færeyingar felldu frumvarp um fóstureyðingar Þrjátíu ár fyrir árásina á mann þingforsetans Segir Rússa ekki hafa í hyggju að taka Kharkív Viðtal á Stöð 2 kveikir upp í færeyskum stjórnmálum Reyndi að kveikja í bænahúsi gyðinga og var skotinn til bana Spánverjar neita skipi með vopn innanborðs um að leggja að bryggju „Einfari“ ákærður fyrir tilræðið við Fico Hver er Robert Fico? Neyðarástandi lýst yfir á Nýju-Kaledóníu eftir miklar óeirðir Ágreiningur innan stjórnarinnar brýst upp á yfirborðið Hægriflokkar ná saman um myndun ríkisstjórnar Samið um kappræður í júní og september Fico ekki talinn í lífshættu Þróun ES-30 flugvélarinnar flutt frá Svíþjóð til Kaliforníu Þetta er vitað um árásarmanninn Biden skorar á Trump Forsætisráðherra Slóvakíu í lífshættu eftir skotárás Þverpólitískar tillögur um viðbrögð vegna gervigreindar FIFA byrjað að vinda ofan af umbótum eftir spillingarhneykslið Fulltrúar Talíbana á ráðstefnu í Ósló Fyrsta opinbera málverkið af konunginum Karli III afhjúpað í gær Gróðureldar ógna olíuvinnslumiðstöð í Kanada Gríðarleg leit gerð að mönnum sem frelsuðu fanga í Frakklandi Skriðdrekar Ísraelshers komnir inn í íbúðahverfi í Rafah Framámaður AfD sektaður fyrir að nota slagorð nasista Vill bjóða NATO að byggja nýjan flugvöll í Færeyjum Þorir að veðja bjór á að hún verði áfram forsætisráðherra Lokað á grein um barnadráp í Bretlandi Drápu fangaverði og hjálpuðu fanga að strjúka Sjá meira