Hart sótt að Katrínu vegna verðbólgunnar Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 31. janúar 2023 14:37 Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar, og Logi Gunnarsson, þingmaður Samfylkingarinnnar, kröfðu Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra um svör vegna verðbólgunnar Vísir/Vilhelm Hart var sótt að Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra í óundirbúnum fyrirspurnatíma á Alþingi í dag, þar sem ríkisstjórn hennar var ýmist sökuð um að bera töluverða ábyrgð á hækkun verðbólgu í upphafi árs eða skort á aðgerðum gegn henni.
Verðbólga síðustu tólf mánaða mælist nú 9,9 prósent og hefur hún því náð fyrri toppi frá því í sumar, þvert á spár um að verðbólga myndi fara hjaðnandi. Ríkistjórn hefur verið gagnrýnd að undanförnu fyrir að hafa kynt undir verðbólguna með ýmsum hækkunum um áramótin. Sá þráður var tekinn upp á Alþingi í dag. Hafi gefið sveitarfélögum og fyrirtækjum fjarvistarsönnun fyrir hækkunum Þorgerður Katrín Gunnarsdóttur, formaður Viðreisnar, sagði þar að ákvarðanir ríkisins um ýmsar hækkanir á gjöldum um áramótin hafi verið fordæmisgefandi. Vísaði hún í frétt Vísis frá því í gær þar sem formaður Neytendasamtakanna sagði hið opinbera vera leiðandi í hækkunum. „Hún kynti undir með því að ríða á vaðið í hækkunum og veitti þar með talið sveitarfélögunum og fyrirtækjunum ákveðna fjarvistarsönnun í sínum hækkunum eins og við sjáum nú,“ sagði Þorgerður Katrín. Bent hefur verið á að hið opinbera hafi ákveðið að hækka krónutölugjöld um 7,7 prósent, leggja fimm prósenta vörugjald á allar nýjar fólksbifreiðar og hækka almennt allar gjaldskrár um fimm til sjö prósent. Þetta skýrir að mati sérfræðinga megnið af hækkun vísitölu neysluverðs, verðbólgunnar, í janúar. „En hverjir eru það sem borga? Það eru auðvitað fyrst og fremst heimilin í landinu sem borga brúsann. Við þessum hækkunum var hins vegar ítrekað varða. Af hálfu launþegahreyfinginna, Samtökum atvinnulífsins og Neytendasamtakanna. En á þau var ekkert hlustað hér fyrir jól,“ sagði Þorgerður Katrín. Breiðu bökunum væri hlíft en heimilunum ekki. Ekki réttlætanlegt að tekjustofnarnir rýrni meira Spurði Þorgerður Katrín hvað ríkisstjórnin ætlaði sér að gera til þess að spyrna við verðbólgunni. Katrín Jakobsdóttur, forsætisráðherra, var til andsvara og sagði hún að verðbólgan hafi einmitt verið á dagskrá ríkisstjórnarinnar á fundi hennar í morgun. Svaraði hún fyrir þá hækkun opinbera gjalda sem Þorgerður Katrín minntist þá. „Þá getum við ekkert litið fram hjá því, og allar þessar staðreyndir lágu fyrir þegar við gengum frá fjárlögum og tekjubandormi hér fyrir áramót, þá gerðum við okkur algjörlega grein fyrir því að þetta hefði áhrif á verðbólgu. En það breytir því ekki að þessir tekjustofnar hafa rýrnað að raunvirði á undanförnum árum, vegna þess að við höfum verið að halda hækkunum á þeim í algjöru lágmarki,“ sagði Katrín. Sagði hún hið opinbera hafa verið mjög hófstillt í hækkunum á þessum gjöldum. „Ég tel ekki að það sé réttlætanlegt að þeir rýrni meira við þessar aðstæður sem eru uppi,“ sagði Katrín. Logi breytti um kúrs Logi Einarsson, þingmaður Samfylkingarinnar, greip þessi svör Katrínar á lofti en ráða mátti af fyrirspurn hans að hann hafi ætlað sér að spyrja um eitthvað annað en verðbólguna, áður en Katrín svaraði Þorgerði Katrínu. „Ég held að ég þurfi að breyta aðeins um kúrs frá því sem ég ætlaði vegna þess að þetta eru ekki fullnægjandi svör hjá hæstvirtum forsætisráðherra. Það er auðvitað bara augljós vöntun á pólitískri stefnu til að takast á við verðbólguna og þó að einhverjir tekjustofnar hafi mögulega rýrnað að raungildi þá breytir það því ekki að ríkisstjórnin ber ábyrgð á að halda verðbólgunni í skefjum,“ sagði Logi. Sagði hann að enginn væri að tala um að hækkun á áfengi og tóbaki væru eini verðbólguþrýstingurinn. „En það sem einkennir aðgerðir ríkisstjórnarinnar gegn verðbólgunni eru gjaldahækkanir, frestun á mikilvægum fjárfestingum sem allar eru bornar uppi af almenningi á meðan ríkisstjórnin þorir ekki að sýna aðhald með því að breyta auðlindagjaldi eða fjármagnstekjum,“ sagði Logi. Samhengið mikilvægt Hvatti Logi Katrínu til að taka upp stefnu Samfylkingarinnar í þessum málum, hinn svokallaða kjarapakka. Sagðist Katrín skoða allt frá Samfylkingunni með opnum hug. Bað Katrín þingmenn um að setja gjaldskrárhækkanir í samhengi við aðrar aðgerðir ríkisstjórnarinnar. „Þegar við setjum það í samhengi við stóru myndina þar sem við erum einmitt að horfa á tekjuskattslækkanir sem koma best þeim sem eru tekjulægstir, sem er miklu öflugri jöfnunaraðgerð en að horfa á þessi gjöld, þegar við horfum á þær aðgerðir sem við gripum til til að verja kjör þeirra sem eru með greiðslur frá almannatryggingum, þegar við horfum til þess að við hækkuðum húsnæðisstuðning og jukum barnastuðning, þá erum við í raun og sann að beita ríkissjóði til að verja tekjulægstu hópana fyrir áhrifum verðbólgunnar á sama tíma og við tryggjum það að þessi gjöld, sem voru hvað mest rædd hérna fyrir áramót, rýrni ekki að raungildi,“ sagði Katrín.
Verðlag Fjármál heimilisins Íslenska krónan Alþingi Viðreisn Samfylkingin Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur Tengdar fréttir Væntingar um 50 punkta vaxtahækkun farnar að myndast Sérfræðingar á skuldabréfamarkaði eru byrjaðir að gera ráð fyrir 50 punkta vaxtahækkun á næsta fundi peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands í febrúar. Verðbólgan er orðin víðtæk, krónan hefur átt erfitt uppdráttar og einkaneysla verður líklega meiri en spár Seðlabankans hafa gert ráð fyrir. 31. janúar 2023 13:30 Verðbólga mælist 9,9 prósent Verðbólga síðustu tólf mánaða er enn á uppleið. Mælist hún nú 9,9 prósent en stóð í 9,6 prósent í síðasta mánuði og 9,3 próent í mánuðinum þar á undan. 30. janúar 2023 09:16 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Fengu aðstoð sérsveitar og Gæslunnar við handtöku við Grímsvötn Innlent Arnar Þór vantaði sex meðmæli upp á Innlent Karlremba sé komin í tísku Innlent Svakalegt að sjá fylgisaukningu Höllu Hrundar Innlent Mennirnir tóku annan starfsmannanna hálstaki Innlent Voru með stæla og neituðu að fara upp úr fyrr en löggan mætti Innlent Fundu hræ fimm hvolpa í Mosfellsbæ Innlent Lögregla kölluð út vegna ungmenna til leiðinda í sundlaug Innlent Gefur lítið fyrir útskýringar fréttastjórans Innlent Íslandsferðin sem breyttist í martröð Innlent Fleiri fréttir Íslandsferðin sem breyttist í martröð Fundu hræ fimm hvolpa í Mosfellsbæ Fengu aðstoð sérsveitar og Gæslunnar við handtöku við Grímsvötn Sigurvin dró smábát í land Vill að fréttastofa RÚV biðji Maríu Sigrúnu afsökunar Lögreglan lofar góðu vegaeftirliti á Suðurlandi í sumar Landskjörsstjórn tilkynnir á morgun hvaða listar eru gildir Mögulega að hægjast á landrisi í Svartsengi Karlremba sé komin í tísku Voru með stæla og neituðu að fara upp úr fyrr en löggan mætti Arnar Þór vantaði sex meðmæli upp á Sprengisandur: Peningastefna, ESB og lagareldi Lögregla kölluð út vegna ungmenna til leiðinda í sundlaug Svakalegt að sjá fylgisaukningu Höllu Hrundar Minni lyfjanotkun og meiri vellíðan í sérstöku heilabilunarþorpi Mennirnir tóku annan starfsmannanna hálstaki Líklegt að það styttist í brotmörk Helga lenti einnig í vandræðum Eiríkur og Ástþór fá frest til að bæta við undirskriftum Hættuástand í Grindavík og æsispennandi forsetakosningar Gefur lítið fyrir útskýringar fréttastjórans Handteknir á hlaupum eftir vopnað rán í Reykjavíkurapóteki Björk varar við frumvarpi um sjókvíeldi Uppgangur Höllu Hrundar fari fyrir brjóstið á „valdastéttinni“ Mikil gleði þegar Bergur komst í mark Segir engin annarleg sjónarmið að baki ákvörðun RÚV Hraun mjakast yfir varnargarð Ný gossprunga geti opnast fyrirvaralaust á næstunni Allt að gerast í Vík í Mýrdal um helgina Stór gossprunga gæti opnast fyrirvaralaust Sjá meira
Væntingar um 50 punkta vaxtahækkun farnar að myndast Sérfræðingar á skuldabréfamarkaði eru byrjaðir að gera ráð fyrir 50 punkta vaxtahækkun á næsta fundi peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands í febrúar. Verðbólgan er orðin víðtæk, krónan hefur átt erfitt uppdráttar og einkaneysla verður líklega meiri en spár Seðlabankans hafa gert ráð fyrir. 31. janúar 2023 13:30
Verðbólga mælist 9,9 prósent Verðbólga síðustu tólf mánaða er enn á uppleið. Mælist hún nú 9,9 prósent en stóð í 9,6 prósent í síðasta mánuði og 9,3 próent í mánuðinum þar á undan. 30. janúar 2023 09:16