Lærisveinar Dags Sigurðssonar í króatíska karlalandsliðinu tapaði fyrir Noregi, 32:26, í Arendal í Noregi í gærkvöldi.
Var leikurinn liður í alþjóðlegu móti, Golden League, sem Króatar eru á ásamt Norðmönnum, Dönum og Argentínu. Mótið er kærkominn undirbúningur fyrir Ólympíuleikana í París þar sem öll liðin verða í sumar.
Dagur fór afskaplega vel af stað með króatíska landsliðinu en Króatar unnu sinn riðil í undankeppni Ólympíuleikana og tryggðu sér sæti á leikunum.