Hlutdeildarlán: Sótt um að byggja 2.333 íbúðir, búið að samþykkja 468 Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 5. desember 2020 11:23 Vinna í kerfinu vegna hlutdeildarlána er komin á fullt. Vísir/Vilhelm Alls hafa 78 byggingaraðilar skráð sig í samstarf við Húsnæðis- og mannvirkjastofnun um að byggja hagkvæmar íbúðir sem fjármagna má með hlutdeildarláni.
Alls hyggjast þessir aðilar byggja 2.333 íbúðir, en þar af er ríflega helmingurinn á höfuðborgarsvæðinu. Þegar er búið að samþykkja 468 íbúðir sem uppfulla skilyrði hlutdeildarlánanna. Fjöldi íbúða sem sótt hefur verið um að byggja í tengslum við hlutdeildarlánin, flokkað eftir landshlutum. Lánin eru hluti af stuðningi stjórnvalda vegna lífskjarasamninga og er þeim ætlað að auðvelda ungum og tekjulágum að kaupa sína fyrstu eign. Lánið getur numið um fimmtungi af kaupverði og ekki þarf að greiða af því í allt að tuttugu ár. Lánið þarf hins vegar að greiða upp þegar íbúð er seld. Í tilkynningu frá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun, HMS, segir að af þeim 2.333 hagkvæmu íbúðum sem byggingaraðilarnir hyggjast reisa eru 1.368 á höfuðborgarsvæðinu og 965 á landsbyggðinni, flestar á Suðurnesjum og Suðurlandi. Fjöldi þeirra íbúa sem búið er að samþykkja, flokkað eftir sveitarfélögum. Nú þegar sé búið að gefa út samþykki fyrir 468 íbúðum sem uppfylla skilyrði hlutdeildarlána, af þeim eru 200 íbúðir á höfuðborgarsvæðinu og 268 á landsbyggðinni, flestar í Reykjanesbæ og Akureyri. Í tilkynningunni segir að hlutdeildarlánin muni að mati HMS stuðla að auknu framboði íbúða sem henti tekjulægri hópum, ýta undir að sveitarfélög bjóði ódýrari lóðir og hvetja til nýsköpunar í byggingaraðferðum. Mikil eftirspurn sé eftir minni íbúðum en byggingaraðilar hafi hingað til séð sér meiri hag í byggingu stærri dýrari íbúða eða minni lúxusíbúða. Tilkoma hlutdeildarlánanna muni því verða þeim hvatning til að byggja meira fyrir þann hóp sem á rétt á nýju lánunum. HMS gerir ráð fyrir að veita lán til kaupa á um 500 íbúðum á næstu 12 mánuðum, en lánunum verður úthlutað sex sinnum á ári. Umsóknarfrestur fyrir síðustu úthlutun ársins 2020 rennur út þann 13. desember næstkomandi.
Húsnæðismál Tengdar fréttir Hverfi á stærð við Grafarvog fyrirhugað í borginni Í umfangsmiklum breytingum á Aðalskipulagi Reykjavíkur eru yfir 100 svæði skilgreind fyrir nýja íbúðabyggð. Forseti borgarstjórnar segir að gert sér ráð fyrir uppbyggingu á stærð við Grafarvog sitt hvoru megin við Elliðaár. 14. nóvember 2020 19:01 Hátt í eitt hundrað umsóknir um hlutdeildarlán á einni viku Áttatíu og níu umsóknir um hlutdeildarlán hafa borist Húsnæðis- og mannvirkjastofnun á rúmri viku, eða frá því að opnað var fyrir umsóknir hinn 1. nóvember. 9. nóvember 2020 13:00 Sveitarfélög og verktakar þurfi að draga úr álagningu Ekki kemur til greina að heimila kaup á eldri íbúðum á höfuðborgarsvæðinu með hlutdeildarlánum að sögn félagsmálaráðherra. Sveitarfélög og verktakar þurfi að draga úr álagningu til að byggja megi hagkvæmar íbúðir. 29. október 2020 20:01 Telja hættu á félagslegum aðskilnaði vegna hlutdeildarlána Verulegar athugasemdir hafa verið gerðar við reglur um hlutdeildarlán í umsagnarferli þeirra. Félag arkitekta telur hættu á félagslegum aðskilnaði og Reykjavíkurborg telur að fáir geti nýtt úrræðið í höfuðborginni á næstu misserum. 28. október 2020 21:02 Fáir á höfuðborgarsvæðinu geti nýtt hlutdeildarlán á næstunni Frá og með mánaðarmótum geta þeir sem teljast tekju- eða eignaminni sótt um hlutdeildarlán hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun við kaup á fasteign. Úrræðið er hluti af lífskjarasamningnum og geta þeir sem eru að kaupa sína fyrstu íbúð, eða hafa ekki átt íbúð í fimm ár, sótt um lánið. 27. október 2020 16:13 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Apple biðst afsökunar á auglýsingu fyrir nýjan iPad Viðskipti erlent MAST olli Brúneggjum tjóni en RÚV sýknað Viðskipti innlent Svona getur þú sagt Nei í vinnunni án þess að fá samviskubit Atvinnulíf Hver verður Iðnaðarmaður ársins 2024 - kosning Samstarf Einstakt tækifæri til að sjá einn merkasta sportbíl sögunna - Porsche 911 Dakar Samstarf Rannsaka hvort Tesla hafi blekkt neytendur og fjárfesta Viðskipti erlent Ópíóíða, róandi- og svefnlyf: „Það geta allir orðið háðir þessum lyfjum ómeðvitað“ Atvinnulíf Tilboðið afturkallað og Eik öðlast frelsi til athafna á ný Viðskipti innlent Að endurskapa ásýndina á að vera skemmtileg vinna en ekki kvöð Atvinnulíf Fer frá Deloitte til Góðra samskipta Viðskipti innlent Fleiri fréttir MAST olli Brúneggjum tjóni en RÚV sýknað Tilboðið afturkallað og Eik öðlast frelsi til athafna á ný Brottfarirnar í apríl nokkuð færri en á síðasta ári Engin hópuppsögn í apríl Fer frá Deloitte til Góðra samskipta Mun stýra tæknisviði Carbfix Íslendingar þurfi að gæta hófs í vexti efnahagslífsins Hagnaðist um tæpa ellefu milljarða þrátt slæman búskap Miklar verðbólguvæntingar halda vöxtunum uppi Gera þrjátíu til fjörutíu kaupsamninga á hverjum degi Áhorf á Eurovision hríðfellur Aukið atvinnuleysi Kynning á yfirlýsingu peningastefnunefndar Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum Ráðin aðstoðarforstjóri og fjármálastjóri Sidekick Kaupa Íslensk verðbréf Rekstrarafkoma Sýnar ekki ásættanleg Einar hættir með Grillbúðina Hætta skerðingum til stórnotenda Davíð Tómas ráðinn framkvæmdastjóri Farþegum fjölgaði og sætanýting um 85 prósent Ráðin forstöðumaður hjá OK Snýr aftur til Snjallgagna Ballið búið fyrir fullt og allt á B5 Yfir milljón farþegar fyrstu fjóra mánuði ársins Háttsemi dómara ekki saknæm og Isavia fær því enga milljarða Mímir nýr forstöðumaður hjá Högum Matvöruverslun og íbúðir steinsnar frá Keflavíkurflugvelli Röntgen Domus og Orkuhúsið fá ekki að sameinast Viljinn tekinn til gjaldþrotaskipta Sjá meira
Hverfi á stærð við Grafarvog fyrirhugað í borginni Í umfangsmiklum breytingum á Aðalskipulagi Reykjavíkur eru yfir 100 svæði skilgreind fyrir nýja íbúðabyggð. Forseti borgarstjórnar segir að gert sér ráð fyrir uppbyggingu á stærð við Grafarvog sitt hvoru megin við Elliðaár. 14. nóvember 2020 19:01
Hátt í eitt hundrað umsóknir um hlutdeildarlán á einni viku Áttatíu og níu umsóknir um hlutdeildarlán hafa borist Húsnæðis- og mannvirkjastofnun á rúmri viku, eða frá því að opnað var fyrir umsóknir hinn 1. nóvember. 9. nóvember 2020 13:00
Sveitarfélög og verktakar þurfi að draga úr álagningu Ekki kemur til greina að heimila kaup á eldri íbúðum á höfuðborgarsvæðinu með hlutdeildarlánum að sögn félagsmálaráðherra. Sveitarfélög og verktakar þurfi að draga úr álagningu til að byggja megi hagkvæmar íbúðir. 29. október 2020 20:01
Telja hættu á félagslegum aðskilnaði vegna hlutdeildarlána Verulegar athugasemdir hafa verið gerðar við reglur um hlutdeildarlán í umsagnarferli þeirra. Félag arkitekta telur hættu á félagslegum aðskilnaði og Reykjavíkurborg telur að fáir geti nýtt úrræðið í höfuðborginni á næstu misserum. 28. október 2020 21:02
Fáir á höfuðborgarsvæðinu geti nýtt hlutdeildarlán á næstunni Frá og með mánaðarmótum geta þeir sem teljast tekju- eða eignaminni sótt um hlutdeildarlán hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun við kaup á fasteign. Úrræðið er hluti af lífskjarasamningnum og geta þeir sem eru að kaupa sína fyrstu íbúð, eða hafa ekki átt íbúð í fimm ár, sótt um lánið. 27. október 2020 16:13