Fyrrum landsliðsmaðurinn Rúrik Gíslason lenti í leiðinlegri uppákomu er hann var á Ítalíu á dögunum.
Rúrik var á göngu heim af bar um miðja nótt í Mílanó er einstaklingur réðst að honum með brotna glerflösku. Maðurinn reyndi að stela úrinu sem Rúrik var með.
Fyrrum landsliðsmaðurinn segir frá þessu í sögu sinni (e. story) á samfélagsmiðlinum Instagram.
„Mjög gott að vera kominn aftur í ræktina eftir stórkostlegan tíma í Mílanó," segir Rúrik við 870 þúsund fylgjendur sína.
„Ég er reyndar mjög ánægður að ég er búinn að vera í ræktinni svona mikið upp á síðkastið því að um miðja nótt - þegar ég var að ganga heim af bar - vildi manneskja stela af mér úrinu sem ég var með. Sá aðili kom með brotna flösku, sagðist vilja úrið og reyndi að ráðast á mig en mér tókst að afgreiða það."
„Farið í ræktina, gott fólk," segir Rúrik að lokum í myndbandinu sem hann birtir.
Rúrik í Mílanó pic.twitter.com/hEML75HYHR
— Vilhjálmur Freyr (@Vilhjalmurfreyr) September 26, 2022
Athugasemdir