Marta, ein af bestu knattspyrnukonum sögunnar, hefur tilkynnt að hún leggi skóna á hilluna að yfirstandandi tímabili loknu með Orlando Pride í Bandaríkjunum.
Tímabilinu í Bandaríkjunum lýkur í lok ársins og lætur sóknarmaðurinn þá staðar numið.
Marta er 38 ára gömul og hefur leikið með Orlando frá árinu 2017. Áður hafði hún gert garðinn frægan í heimalandinu og Svíþjóð, þar sem hún er með ríkisborgararétt.
Hún er markahæsti leikmaður í sögu brasilíska kvennalandsliðsins með 116 mörk í 175 landsleikjum og hefur sex sinnum verið valin besti leikmaður heims af FIFA.
Þá varð Marta fyrsti leikmaðurinn í sögunni til þess að skora á fimm heimsmeistaramótum og sömuleiðis á fimm Ólympíuleikum.