„Vægast sagt farið fram með kostulegum óheilindum“ Valur Páll Eiríksson skrifar 25. mars 2023 14:00 Þórður Snær sakar Ómar Smárason um óheilindi. Vísir/Vilhelm Þórður Snær Júlíusson ritstjóri Heimildarinnar gagnrýnir ummæli Ómars Smárasonar samskiptastjóra KSÍ harðlega í tengslum við fréttaflutning af meintu kynferðisofbeldi leikmanna íslenska landsliðsins.
Ummæli Ómars birtust í lokaritgerð Jóhanns Inga Hafþórssonar blaðamanns en 433.is fjallaði fyrst um málið í gær. Þar er rætt við Ómar um stöðuna innan KSÍ í kjölfar umfjöllunar fjölmiðla um meint kynferðisbrot landsliðsmanna. Hann segist meðal annars hafa verið ósáttur með ráðgjafafyrirtækið KOM sem Guðni Bergsson, fyrrum formaður KSÍ, vildi starfa með og þá gagnrýnir hann umfjöllun fjölmiðla um málið. „Það var á einu bretti sem allir fóru að sparka í okkur. Enginn stóð með okkur, ekki einn einasti maður. Það sem var svo sárt við það, var hversu einhliða fréttaflutningur þetta var. Það var enginn að spyrja hvort það væri einhver önnur hlið á þessu. Það stukku bara allir á vagninn. Meira að segja þekktir fjölmiðlamenn á Twitter. Gísli Marteinn til dæmis og Þórður á Kjarnanum. Þeir fullyrtu alls konar hluti. Af hverju spyrja þeir ekki? Þetta eru fjölmiðlamenn. Spyrjið þið, ekki bara vaða í einhliða umfjöllun,“ er haft eftir Ómari í ritgerðinni. Svar barst ekki fyrr en „KSÍ hafði brókað sig sjálft nánast daglega í mánuð“ Nú hefur Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Heimildarinnar, sem Ómar vísaði til í ummælunum að ofan, stigið fram á samfélagsmiðlinum Twitter. Hann fer hörðum orðum um þessi ummæli Ómars. Þórður Snær segir að margsinnis hafi verið haft samband við KSÍ vegna málsins og lagðar fyrir sambandið spurningar. „Var bent á þessi ummæli Ómars samskiptastjóra KSÍ í nýlegri lokaritgerð og sé að þau hafa orðið að smellubeitufóðri á þar til gerðum miðlum. Hér er, vægast sagt, farið fram með kostulegum óheildinum og gegn betri vitund,“ skrifar Þórður Snær og fer svo ítarlega yfir málið. Þórður Snær birtir skjáskot af spurningum sem Þórður Snær segir að Kjarninn, sem hann starfaði hjá áður en Kjarninn sameinaðist Stundinni, hafi sent á KSÍ. „Í fimm vikur fengust þvælusvör við spurningum sem KSÍ gat svarað. Í áðurnefndri úttektarskýrslu kom fram að KOM hafi aftur verið kallað til hjálpa að svara okkur í nafni KSÍ. Sem þó var með samskiptastjóra á launum,“ skrifar Þórður Snær og birtir skjáskot af svörum Ómars fyrir hönd KSÍ. Þórður Snær segir að þrátt fyrir svörin hafi Kjarninn haldið áfram að spyrja spurninga. „Og KSÍ hélt áfram að svara með hjálp almannatengla, sem vildu „eyða umræðunni“ frekar en að svara.“ skrifar Þórður Snær ennfremur. „Það var ekki fyrr en 23. september 2021, eftir að KSÍ hafði brókað sig sjálft nánast daglega í mánuð, sem efnislegt og raunverulegt svar barst. Svar sem var hægt að veita 18. ágúst, þegar Ómar var fyrst spurður. En svaraði ekki.“ Var bent á þessi ummæli Ómars samskiptastjóra @footballiceland í nýlegri lokaritgerð og sé að þau hafa orðið að smellubeitufóðri á þar til gerðum miðlum. Hér er, vægast sagt, farið fram með kostulegum óheilindum og gegn betri vitund. (Og ég heiti Snær, ekki Snævar) Þráður. 1/11 pic.twitter.com/o3xUSYLIwt— Þórður Snær Júlíusson (@thordursnaer) March 24, 2023
KSÍ Landsliðsmenn sakaðir um kynferðisofbeldi Fjölmiðlar Mest lesið Barcelona þarf tæplega tuttugu milljarða fyrir lok júnímánaðar Fótbolti McIlroy í baráttunni þrátt fyrir yfirvonandi skilnað Golf Uppgjör: Keflavík - Njarðvík 94-91 | Tvíframlengdur spennutryllir Körfubolti „Ég táraðist smá“ Sport „Frábært að ná sigri í fyrsta leik og í svona svakalegum leik“ Körfubolti Uppgjörið, viðtöl og myndir: Valur - Haukar 28-25 | Valskonur Íslandsmeistarar Handbolti „Svíður mjög mikið að við séum ekki nógu klókar til að klára“ Körfubolti Uppgjör: Stjarnan - KR 5-3 | Endurkoma KR-inga hófst of seint gegn Stjörnunni Íslenski boltinn Börsungar styrktu stöðu sína í öðru sæti Fótbolti Leeds í úrslit um sæti í ensku úrvalsdeildinni Enski boltinn Fleiri fréttir Barcelona þarf tæplega tuttugu milljarða fyrir lok júnímánaðar Börsungar styrktu stöðu sína í öðru sæti Bikarmeistarar Víkings í næstu umferð ásamt Keflavík og Fylkir Uppgjör: Stjarnan - KR 5-3 | Endurkoma KR-inga hófst of seint gegn Stjörnunni Leeds í úrslit um sæti í ensku úrvalsdeildinni Sverrir Ingi á toppinn í Danmörku Kolbeinn lagði upp jöfnunarmark Gautaborgar Viðar Ari skoraði og lagði upp í ótrúlegum sigri Stefán Teitur skoraði þegar Silkeborg lagði AGF annað sinn UEFA setur pressu á City Football Group Fyrirliði 21 árs landsliðs Svía skiptir um landslið Tímabilið búið hjá Ederson og City treystir á Ortega í síðustu tveimur leikjunum Margrét Lára: Mér finnst hún hafa verið stórkostleg Chelsea sló spjaldametið í deildinni Hjólaði frá Mongólíu og grét af gleði þegar hann hitti hetjuna Þriðji markahæsti landsliðsmaðurinn leggur skóna á hilluna Umboðsmaður Olise dæmdur í sex mánaða bann Rashford reiður og reifst við áhorfanda fyrir leik Fabiana brýtur blað í sögunni áður en Jói Kalli tekur við Man. United sagði konunum ekki frá ákvörðuninni Allegri afklæddist á hliðarlínunni „Sá að þeim leið aldrei illa“ Mætti á þing FIFA úr fangaklefanum Rooney segir United losa sig við nær allan leikmannahópinn Gerir sér grein fyrir erfiðu tímabili: „Þið eruð bestu stuðningsmenn í heimi“ „Þetta var ótrúlega erfitt“ Vlahovic tryggði Juventus bikarmeistaratitilinn United lyfti sér upp að hlið Newcastle Evrópudraumurinn lifir góðu lífi eftir fjórða sigurinn í röð KA sneri taflinu við í seinni hálfleik Sjá meira