Jón Daði tengir við eineltið í Sjálandsskóla: „Þú ert hæfileikaríkur og flottur gæi“ Anton Ingi Leifsson skrifar 23. október 2020 20:34 Joe Gomez og Jón Daði Böðvarsson í leik á Laugardalsvelli á dögunum. VÍSIR/GETTY
Jón Daði Böðvarsson, landsliðsmaður í knattspyrnu, segist tengja við eineltið sem ungur Garðbæingur hefur orðið fyrir en Vísir fjallaði í dag um barn sem hætti nýverið í Sjálandsskóla í Garðabæ sökum eineltis. Sigríður Elín Ásmundsdóttir, móðir barnsins, tjáði sig um málið á Facebook í gærkvöldi þar sem hún lýsti grimmu einelti í garð sonar síns í bæjarfélaginu, bæði í skólanum og á íþróttaæfingum hjá Stjörnunni. Hún segir skólakerfið eiga erfitt með að taka á eineltismálum. Ekki stóð á viðbrögðunum en Jón Daði, leikmaður Millwall í ensku B-deildinni, er einn af þeim sem tjáði sig undir færslu Sigríðar á Facebook. #Fokkeinelti ,,Hatar þú Ólíver? ,,Já ,,Hatar þú Ólíver? ,,Já allir viðstaddir (10-11 ára bekkjarfélagar) sögðust...Posted by Sigríður Elín Ásmundsdóttir on Thursday, October 22, 2020 „Hvað segiru félagi? Eru strákar sem eru með minnimáttarkennd að stríða þér og leggja þig í slæmt einelti? Láttu mig þekkja það vinur. Ég lenti nákvæmlega í því sama og þú á þínum aldri. Ég var líka alltaf í boltanum. Þannig að það má segja að við séum kannski smá líkir,“ skrifaði Jón Daði. „Þegar ég var á sama stað og þú hvað eineltið varðar, þá leið mér heldur ekki vel. Ég var kallaður öllum illum nöfnum og allskonar ljótum athugasemdum voru hreytt í mig. EN ég minnti sjálfann mig á eitt. Strákarnir sem lögðu mig í einelti, þeim leið SJÁLFUM illa. Sennilega verr en mér.“ Framherjinn skrifaði drengnum ekki aðeins hvatningarorð heldur gaf hann honum einnig góð ráð. Þá segir hann að strákunum í landsliðinu þyki hann flottur og að hann sé hæfileikaríkur og flottur gæi. „Ég fókusaði bara á mig. Varð minn eigin keppinautur og vildi gera það besta sem ég gat gert úr MÉR og ekki pæla í því hvað öðrum finnst. Og veistu.. meirihlutinn af þessum strákum sem lögðu mig í einelti eru ekkert merkilegir í dag og urðu að engu sjálfir.“ „Þú veist innst inni Ólíver að þú ert hæfileikaríkur og flottur gæi. Ég meina, mér finnst þú vera það og okkur öllum í landsliðinu,“ sagði Jón Daði enn fremur en færslu hans í heild sinni má sjá hér að neðan. Fréttastofa reyndi að ná tali af skólastjórnendum við Sjálandsskóla. Þær upplýsingar fengust á skrifstofu skólans að stjórnendur væru á fundi hjá sveitarfélaginu. Í yfirlýsingu frá stjórnendum Sjálandsskóla og stjórnendum á fræðslusviði Garðabæjar er fullyrt að einelti sé tekið alvarlega og lögð áhersla á að leysa slík mál. Skólinn geti þó ekki tjáð sig um einstök mál. Færsla Jóns Daða í heild sinni: Hæ Ólíver. Hvað segiru félagi? Eru strákar sem eru með minnimáttarkennd að stríða þér og leggja þig í slæmt einelti? Láttu mig þekkja það vinur. Ég lenti nákvæmlega í því sama og þú á þínum aldri. Ég var líka alltaf í boltanum. Þannig að það má segja að við séum kannski smá líkir 😉 Þegar ég var á sama stað og þú hvað eineltið varðar, þá leið mér heldur ekki vel. Ég var kallaður öllum illu nöfnum og allskonar ljótum athugasemdum voru hreytt í mig. EN ég minnti sjálfann mig á eitt. Strákarnir sem lögðu mig í einelti, þeim leið SJÁLFUM illa. Sennilega verr en mér. Ég fókusaði bara á mig. Varð minn eigin keppnisnautur og vildi gera það besta sem ég gat gert úr MÉR og ekki pæla í því hvað öðrum finnst. Og veistu.. meirihlutinn af þessum strákum sem lögðu mig í einelti eru ekkert merkilegir í dag og urðu að engu sjálfir. Þú veist innst inni Ólíver að þú ert hæfileikaríkur og flottur gæi. Ég meina, mér finnst þú vera það og okkur öllum í landsliðinu 👏🏻 Og haltu áfram að æfa þig í boltanum og vera duglegur. Fyrir þig ❤️ Þinn félagi Jón Daði Böðvarsson
Garðabær Fótbolti Börn og uppeldi Mest lesið „Auðvitað voru þetta ekki gleðifréttir“ Íslenski boltinn Liverpool nær samkomulagi um Slot Enski boltinn Stólpagrín gert að Terry vegna stjörnustæla hans Enski boltinn Stjarnan skellti tvisvar á Belichick: „Það er eins gott að þetta sé ekki grín“ Sport Leicester í úrvalsdeildina eftir rassskellingu Leeds Enski boltinn „Þá á bara að gefa tilkynningu út af hálfu HSÍ“ Handbolti Aþena sendi sterk skilaboð í fyrsta leik Körfubolti Þórey Anna mögnuð og Valur sigri frá úrslitum Handbolti „Það var ekkert annað í hausnum á mér“ Handbolti Davíð Tómasi bárust ljót skilaboð eftir leik: „Fokking mongolitið þitt“ Körfubolti Fleiri fréttir „Auðvitað voru þetta ekki gleðifréttir“ Leicester í úrvalsdeildina eftir rassskellingu Leeds Stólpagrín gert að Terry vegna stjörnustæla hans Liverpool nær samkomulagi um Slot Ungstirnið nýtti tækifærið og skaut Real nær titlinum Íslendingarnir nálgast fallið Titilbaráttan endanlega úti eftir tap Söru og stallna Íslendingarnir áberandi í jafntefli Fékk prófessorsnafnið frá Gaupa: „Ég er bölvaður nörd“ Marta hættir í landsliðinu eftir Ólympíuleikana Víkingar fengu góða sumargjöf Leikmaður Newcastle tók meirapróf Amnesty segir að FIFA rúlli út rauða dreglinum fyrir Sádana Stórleikur í Garðabænum og Fram mætir þriðju deildarliðinu Rashford: Nú er nóg komið Sjáðu og heyrðu sjónvarpslýsanda sturlast yfir Brynjólfi Berglind Björg komin með félagaskipti í Val Finnst De Bruyne betri en Gerrard og Lampard Slot staðfestir að hann vilji taka við Liverpool Virk sprengja úr seinni heimsstyrjöldinni undir leikvangi Mainz „Frábær úrslit fyrir okkur og félagið“ „Fyrst og fremst var þetta vinnuframlag frá öllum“ Ivan Toney á innkaupalista Manchester United Júlíus Magnússon með sitt fyrsta mark fyrir Fredrikstad Magnaðasta mark sumarsins á fyrsta degi þess? Einstefna í Brighton Uppgjörið: Keflavík - Breiðablik 2-1| Sami Kamel afgreiddi Blika KR fékk ungan Svía fyrir gluggalok Bikarmeistararnir örugglega áfram eftir smá hikst 350 þúsund krónur i sektir og tveir fá þriggja mánaða bann Sjá meira