Bjarni: Ég hef aldrei lent í öðrum eins veikinda- og meiðslapakka eins og við erum búin að vera í Jakob Snævar Ólafsson skrifar 25. janúar 2023 23:15 Bjarni Magnússon segir mikið um veikindi og meiðsli í herbúðum Hauka. Vísir/Hulda Margrét Bjarni Magnússon þjálfari liðs Hauka í Subway deild kvenna í körfubolta var ekki yfirgengilega óánægður eftir tuttugu og eins stigs tap, 83-62, fyrir Keflavík í Subway-deild kvenna fyrr í kvöld. Hann var þó að sjálfsögðu ekki sáttur með ýmislegt í frammistöðu liðsins. „
Þær voru betri en við í dag og við vorum betri en þær í síðasta leik. Það var meiri orka í þeim dag og það var meiri orka í okkur síðast. Við vorum flatar. Við fengum voða lítið framlag frá öðrum en Keiru. Við vorum að skjóta boltanum illa. Ekkert alslakur leikur þannig séð. Við vorum duglegar í sóknarfráköstum sérstaklega í fyrri hálfleik. En boltaflæðið var oft á tíðum ekki nógu gott. Við skutum illa. Keflavík voru bara betri en við í dag.“ Bjarni var ekki eingöngu ánægður með að hans liði hefði gengið nokkuð vel að ná sóknarfráköstum en alls náðu Haukar sautján slíkum í leiknum á móti sjö hjá Keflavík. „Nei, nei. Það voru punktar sem við vorum að gera vel. Opna og fá færin sem við vildum fá. Við vorum ekki að setja boltann niður. En mér fannst við bara vera of litlar í okkur. Það var Keira sem hélt okkur gangandi sóknarlega. Aðrar urðu bara of litlar í sér og þorðu ekki. Ef þú hikar þá bara taparðu.“ Þótt um væri að ræða annan tapleikinn í röð í deildinni gegn helstu andstæðingum Hauka í toppbaráttunni, fyrst Val og nú Keflavík sagðist Bjarni ekki hafa áhyggjur af komandi leikjum gegn sérstaklega þessum liðum. „Við erum bara á útivelli á móti toppliðinu Keflavík og það er ekkert eitthvað „disaster“ þótt maður tapi leik hérna. Við þurfum bara að gera betur næst.“ Bjarni nefndi það sérstaklega að vonandi yrði Eva Margrét Kristjánsdóttir, sem lék ekki með í kvöld vegna meiðsla, leikfær sem fyrst. Það væri mikil orka sem fylgdi henni og hún væri leiðtogi fyrir liðið í bæði vörn og sókn. Hann hafði vonast til að einhver annar leikmaður hefði stigið inn í hennar hlutverk í þessum leik en það hefði því miður ekki gengið eftir. Þrátt fyrir tapið í kvöld er Bjarni ánægður með stöðu Haukaliðsins nú þegar komið er fram í seinni hluta deildarkeppninnar en ellefu umferðum er ólokið. „Ég er búinn að þjálfa hérna í helvíti mörg ár, afsakaðu orðbragðið. Ég hef aldrei lent í öðrum eins veikinda- og meiðslapakka eins og við erum búin að vera í bara í allan vetur. Lovísa spilar svo sem of mikið í dag og við verðum bara að þakka henni fyrir. Hún er ekki orðin nærri því nógu góð í öxlinni.“ „Við erum búin að vera með fimm til átta leikmenn meidda í allan vetur hjá okkur. Þess vegna er ég ánægður. Við erum í topp fjórum eins og við stefndum að. Við ætluðum að vinna bikarinn og erum búin að ná því markmiði. Það er slæmt að lenda sex stigum á eftir Keflavík og eiginlega átta stigum af því þær standa betur í innbyrðis viðureignum. Við ætlum að reyna að ná þessu öðru sæti og það er fullt af leikjum eftir. Bara áfram gakk,“ sagði Bjarni Magnússon þjálfari Hauka að lokum.
Subway-deild kvenna Haukar Keflavík ÍF Mest lesið „Ég sakna hennar á hverjum degi“ Handbolti Bakgarðshlaupið í beinni útsendingu Sport „Hún er með hjartagalla en í góðum höndum núna og vonandi fer allt vel“ Íslenski boltinn „Þetta er ekki boðlegt finnst mér“ Körfubolti DeAndre Kane sleppur við bann og spilar í kvöld Körfubolti Lið Aþenu og Brynjar Karl einum leik frá Subway-deildinni eftir spennutrylli Körfubolti Hætti óvænt: Fannst hann skulda fjölskyldunni smá tíma Handbolti Aron Einar og Arnór minnast systur sinnar sem lést langt fyrir aldur fram Sport Clattenburg hættur og segist hafa verið skotmark sérfræðinga Enski boltinn „Varhugavert er að ætla starfsmanni Stöðvar 2 að hafa brugðið talsvert“ Körfubolti Fleiri fréttir „Varhugavert er að ætla starfsmanni Stöðvar 2 að hafa brugðið talsvert“ Kyrie kann að loka einvígum og Dallas sló loksins út Clippers DeAndre Kane sleppur við bann og spilar í kvöld „Þetta er ekki boðlegt finnst mér“ Lið Aþenu og Brynjar Karl einum leik frá Subway-deildinni eftir spennutrylli „Þurfum að fá fleiri hjól undir bílinn“ „Það er búið að vera okkar merki í allan vetur að spila vörn“ Uppgjörið: Njarðvík - Valur 69-78 | Deildarmeistararnir læstu vörninni Báðir þjálfarar Skallagrímsliðsins hætta Kastaði bolta í áhorfanda eftir tap Geta unnið fjóra í röð í fyrsta sinn í heilan áratug Jaka áfram í Keflavík næstu þrjú árin „Of mörg tilfelli sem hafa komið upp“ Knicks og Pacers hefja nýtt einvígi á mánudag Eigendur 76ers gefa miða svo Knicks aðdáendur taki ekki aftur yfir „Vörnin í dag, það er það sem vann þetta“ „Virkilega léleg frammistaða heilt á litið“ Uppgjörið: Njarðvík - Grindavík 66-58 | Njarðvíkingar einum sigri frá úrslitum Emil tekur við Haukum af Ingvari Sló í myndavél og gæti fengið bann Harma auglýsingar á gólfi og vilja banna þær eftir meiðsli Martins Veikur og meiddur Doncic fór á kostum og Boston flaug áfram Bucks í sögubækurnar eftir sigurinn á Pacers PlayAir leiksins var Dedrick Deon Basile Ein af stóru Sólunum gæti fært sig yfir í Stóra eplið Uppgjörið, viðtöl og myndir: Stjarnan - Keflavík 85-82 | Hvolpasveitin jafnaði einvígið „Ansi erfitt fyrir Grindvíkinga að hann hagi sér svona og fái mögulega leikbann“ Magnaður Maxey bjargaði Sixers frá sumarfríi Guðni stal senunni í Smáranum: „Sástu forsetann þarna?“ LeBron gæti fengið sig lausan frá Lakers og verið án félags í sumar Sjá meira