Þurfti að rjúka til að fara yfir nýjasta skjálftann Kristín Ólafsdóttir og Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifa 2. mars 2021 11:01 Jarðskjálftamælir á Reykjanesi. Skjálfti að stærð 4 varð klukkan 10:12 sem fannst vel á suðvesturhorninu. Vísir/Vilhelm Ríflega þúsund jarðskjálftar hafa mælst á Reykjanesskaga frá því um miðnætti. Sá síðasti stóri, skjálfti að stærð 4, reið yfir snemma á ellefta tímanum. Viðtal fréttastofu við náttúrvársérfræðing um stöðuna á jarðhræringunum var einmitt við það að ljúka þegar skjálftinn reið yfir. Sérfræðingurinn þurfti þá að rjúka af stað að fara yfir skjálftann.
Nóg var að gera hjá starfsfólki Veðurstofunnar í nótt, að sögn Bryndísar Ýrar Gísladóttur náttúruvársérfræðings, en ríflega þúsund skjálftar hafa mælst frá því um miðnætti. Þegar Bryndís ræddi við fréttastofu höfðu mælst átján skjálftar yfir þremur og af þeim fjórir yfir fjórum. Einn bættist þó við fyrrnefndu töluna í lok viðtalsins, skjálfti að stærð 4 sem reið yfir klukkan 10:12. Stærsti skjálftinn frá miðnætti er enn sá sem mældist 4,6 um þrjúleytið í nótt. Bryndís sagði virknina nokkurn veginn á pari við síðustu daga. Þá sagði hún ekki merki um að kvika sé að færa sig ofar. „Nei ekki eins og staðan er núna, það er verið að rýna í gögn og fylgjast vel með en eins og er er sama staða og í gærkvöldi,“ sagði Bryndís. Fram kom í tilkynningu vísindaráðs almannavarna í gær, sem telur líklegustu skýringu jarðskjálftavirkninnar undanfarna daga vera þá að kvikugangur sé að myndast undir svæðinu þar sem mest jarðskjálftavirkni hefur verið. Svipaðar líkur á stóra skjálftanum og áður Þá sagði Bryndís svipaðar líkur á hinum títtnefnda „stóra skjálfta“, þ.e. skjálfta yfir 6, og verið hefur. „Við erum með þessa miklu hrinu í gangi, stóra skjálfta hér og þar, og erum að fylgjast með hvort virknin sé eitthvað að færa sig. Ef hún fer að færa sig nær Brennisteinsfjöllum og Bláfjöllum er alltaf hætta á þessum stóra skjálfta eins og er verið að tala um. En við getum því miður ekki sagt til um hvort verði af því eða ekki.“ Og um klukkan 10:12 reið skjálfti að stærð 4 yfir sem átti upptök sín skammt frá Keili. Þá var jafnframt komið að lokum viðtalsins. „Ég held líka að ég þurfi að fara,“ sagði Bryndís létt í bragði. „Það var að koma skjálfti núna ágætlega stór sem ég fann allavega fyrir. Þannig að ég þarf að fara að yfirfara hann.“
Eldgos og jarðhræringar Jarðhræringar á Reykjanesi Tengdar fréttir Skjálfti að stærð 4 fannst vel á suðvesturhorninu Jarðskjálfti að stærð 4 varð um 1,5 kílómetra suðvestur af Keili klukkan 10:12 í morgun. Skjálftinn fannst vel á suðvesturhorninu, að því er segir í tilkynningu frá Veðurstofunni. 2. mars 2021 10:28 Fylgjast sérstaklega vel með merkjum um gosóróa Engin merki sjást um gosóróa á Reykjanesskaga en vísindamenn Veðurstofu Íslands fylgjast sérstaklega vel með mögulegum merkjum þar um eftir tilkynningu vísindaráðs almannavarna í gær. Þetta segir Einar Hjörleifsson, náttúruvársérfræðingur á Veðurstofunni, í samtali við fréttastofu. 2. mars 2021 08:28 Nokkrir öflugir skjálftar í nótt Þrír skjálftar yfir fjórum að stærð urðu á Reykjanesskaga í nótt. Einn skjálfti varð klukkan 02.53 og mældist 4,3 að stærð. Upptök hans voru á þriggja kílómetra dýpi 1,3 kílómetra suðvestur af Keili. 2. mars 2021 06:11 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Svakalegt að sjá fylgisaukningu Höllu Hrundar Innlent Fengu aðstoð sérsveitar og Gæslunnar við handtöku við Grímsvötn Innlent Arnar Þór vantaði sex meðmæli upp á Innlent Mennirnir tóku annan starfsmannanna hálstaki Innlent „Það er enginn sem verndar son okkar“ Innlent Karlremba sé komin í tísku Innlent Gefur lítið fyrir útskýringar fréttastjórans Innlent Langt í að þeir nái sér að fullu Innlent Uppgangur Höllu Hrundar fari fyrir brjóstið á „valdastéttinni“ Innlent Ók blindfullur við Grímsvötn og hótaði að drepa alla Innlent Fleiri fréttir Vopnuð rán tíðari en fólk gerir sér grein fyrir Óttast að saga slökkviliða á Íslandi glatist Plokkdagurinn mikli haldinn hátíðlegur um land allt Á ofsahraða undir áhrifum fíkniefna Efnahagsstefnan sé að ýta fólki í verðtryggð lán Ók blindfullur við Grímsvötn og hótaði að drepa alla Langt í að þeir nái sér að fullu Lögregla með eftirför í Vogahverfi Íslandsferðin sem breyttist í martröð Fundu hræ fimm hvolpa í Mosfellsbæ Fengu aðstoð sérsveitar og Gæslunnar við handtöku við Grímsvötn Sigurvin dró smábát í land Vill að fréttastofa RÚV biðji Maríu Sigrúnu afsökunar Lögreglan lofar góðu vegaeftirliti á Suðurlandi í sumar Landskjörsstjórn tilkynnir á morgun hvaða listar eru gildir Mögulega að hægjast á landrisi í Svartsengi Karlremba sé komin í tísku Voru með stæla og neituðu að fara upp úr fyrr en löggan mætti Arnar Þór vantaði sex meðmæli upp á Sprengisandur: Peningastefna, ESB og lagareldi Lögregla kölluð út vegna ungmenna til leiðinda í sundlaug Svakalegt að sjá fylgisaukningu Höllu Hrundar Minni lyfjanotkun og meiri vellíðan í sérstöku heilabilunarþorpi Mennirnir tóku annan starfsmannanna hálstaki Líklegt að það styttist í brotmörk Helga lenti einnig í vandræðum Eiríkur og Ástþór fá frest til að bæta við undirskriftum Hættuástand í Grindavík og æsispennandi forsetakosningar Gefur lítið fyrir útskýringar fréttastjórans Handteknir á hlaupum eftir vopnað rán í Reykjavíkurapóteki Sjá meira
Skjálfti að stærð 4 fannst vel á suðvesturhorninu Jarðskjálfti að stærð 4 varð um 1,5 kílómetra suðvestur af Keili klukkan 10:12 í morgun. Skjálftinn fannst vel á suðvesturhorninu, að því er segir í tilkynningu frá Veðurstofunni. 2. mars 2021 10:28
Fylgjast sérstaklega vel með merkjum um gosóróa Engin merki sjást um gosóróa á Reykjanesskaga en vísindamenn Veðurstofu Íslands fylgjast sérstaklega vel með mögulegum merkjum þar um eftir tilkynningu vísindaráðs almannavarna í gær. Þetta segir Einar Hjörleifsson, náttúruvársérfræðingur á Veðurstofunni, í samtali við fréttastofu. 2. mars 2021 08:28
Nokkrir öflugir skjálftar í nótt Þrír skjálftar yfir fjórum að stærð urðu á Reykjanesskaga í nótt. Einn skjálfti varð klukkan 02.53 og mældist 4,3 að stærð. Upptök hans voru á þriggja kílómetra dýpi 1,3 kílómetra suðvestur af Keili. 2. mars 2021 06:11