Zlatan sagður brjóta siðareglur FIFA og gæti fengið langt bann Sindri Sverrisson skrifar 14. apríl 2021 12:01 Zlatan lék með sænska landsliðinu gegn Georgíu og Kósovó í undankeppni HM í lok síðasta mánaðar. EPA/Janerik Henriksson Zlatan Ibrahimovic gæti átt yfir höfði sér háa sekt og langt keppnisbann fyrir brot á siðareglum FIFA. Þetta fullyrðir sænski miðillinn Aftonbladet í dag.
Zlatan, sem sneri aftur í sænska landsliðið í síðasta mánuði, er sagður hafa brotið siðareglur FIFA með því að vera hluthafi í veðmálafyrirtækinu Bethard. Í siðareglunum kemur skýrt fram að leikmenn megi ekki, með beinum né óbeinum hætti, eiga hlut í veðmálafyrirtæki sem bjóði upp á veðmál tengd fótboltaleikjum. Bethard bauð meðal annars upp á veðmál tengd landsleikjum Svíþjóðar gegn Georgíu og Kósovó í síðasta mánuði, og veðmál tengd leikjum AC Milan. Zlatan hefur því spilað fjölda leikja sem fyrirtækið sem hann á hlut í hagnast á að fólk veðji á. Samkvæmt siðareglum FIFA gæti Zlatan fengið bann frá fótbolta í allt að þrjú ár, sem og sekt upp á tæplega 15 milljónir íslenskra króna. Mátti ekki spila á HM Aftonbladet segir að í gegnum félag sitt, Unknown AB, hafi Zlatan orðið meðeigandi í Bethard árið 2018. Þess vegna hefði hann ekki átt möguleika á að snúa aftur í landsliðið og fara á HM í Rússlandi það ár, jafnvel þó að hann hefði viljað það. Nú þegar Zlatan er aftur farinn að spila landsleiki, sem eru á vegum FIFA, kannaði Aftonbladet hvort að afskiptum hans af Bethard væri lokið. Svo reyndist ekki vera. Framkvæmdastjóri Bethard, Erik Skarp, staðfesti það í tölvupósti að Zlatan ætti enn hlut í fyrirtækinu. Aftonbladet segir að félag Zlatans eigi 10 prósenta hlut í Gameday Group PLC, sem sé eini eigandi Bethard. Hagnaður Bethard eftir skatt, á árinu 2019, nam samkvæmt sænska miðlinum tæplega 4,5 milljörðum íslenskra króna.
Fótbolti HM 2022 í Katar Svíþjóð Auglýsinga- og markaðsmál Mest lesið Klökkur Jóhann Berg beygði af í viðtali Enski boltinn Jóhann Berg fer frá Burnley í sumar Enski boltinn Reykti tvo pakka, át fjögur súkkulaðistykki og drakk tvær kókdósir á fyrsta hringnum Golf Koddaslagur sjónvarpsstjörnu endaði með ósköpum Sport Íhuga að reka Xavi sem hætti við að hætta Fótbolti Efsti maður heimslistans tók upphitunina í fangaklefanum Golf Schauffele heldur forystunni en Tiger langt frá niðurskurðinum Golf Rekinn tveimur dögum eftir bikarmeistaratitilinn Fótbolti Snorri Barón um Söru: „Ógeð sem enginn á að þurfa að ganga í gegnum“ Sport Valsmenn síðastir inn í átta liða úrslit Fótbolti Fleiri fréttir Tvisvar sinnum rekinn á sama deginum Arteta vonast eftir hjálp frá Moyes: „Vonandi gerist eitthvað dásamlegt“ Klökkur Jóhann Berg beygði af í viðtali Jóhann Berg fer frá Burnley í sumar Íhuga að reka Xavi sem hætti við að hætta Klopp myndi kjósa með afnámi VAR Rekinn tveimur dögum eftir bikarmeistaratitilinn Valsmenn síðastir inn í átta liða úrslit Southampton leikur um laust sæti í ensku úrvalsdeildinni Jón Dagur kom inn af bekknum og bjargaði stigi Van Dijk með þrennu og Diljá tvennu í stórsigri Leuven Kristín Dís lék allan leikinn er Brøndby komst í úrslit Meiðslapésarnir fara frá Liverpool Infantino segir samtökunum að hætta „tilgangslausu þrasi“ um leikjaálag Slot staðfestir að hann taki við Liverpool Vill komast hjá því að afhenda City bikarinn „Það eru alltaf einhverjar leiðir sem opnast í pressu“ Nýliðinn í íslenska landsliðinu er markahæst í dönsku úrvalsdeildinni Þorsteinn valdi þrjá nýliða fyrir mikilvæga leiki Svona var blaðamannafundur Þorsteins fyrir mikilvæga leiki Allt í skrúfunni hjá Bæjurum: Tuchel fer eftir allt saman Fjórir af tíu launahæstu íþróttamönnum heims spila í Sádi-Arabíu Fyrsta HM stelpnanna okkar verður vonandi í Brasilíu 2027 Klopp enn fúll út í Maddison eftir að Liverpool missti af titlinum 2019 Barcelona þarf tæplega tuttugu milljarða fyrir lok júnímánaðar Börsungar styrktu stöðu sína í öðru sæti Bikarmeistarar Víkings í næstu umferð ásamt Keflavík og Fylki Uppgjör: Stjarnan - KR 5-3 | Endurkoma KR-inga hófst of seint gegn Stjörnunni Leeds í úrslit um sæti í ensku úrvalsdeildinni Sverrir Ingi á toppinn í Danmörku Sjá meira