Allir flokkarnir vilja kynjafræði kennda í skólum Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar 24. september 2021 22:01 Formenn allra flokkanna, sem tóku þátt í leiðtogakappræðum RÚV í kvöld, voru sammála um að kynjafræði eigi að vera kennd í framhaldsskólum sem skyldufag. Vísir/Vilhelm Síðustu leiðtogaumræður fyrir Alþingiskosningar fóru fram í kvöld þar sem leiðtogar allra þeirra flokka, sem bjóða fram á öllu landinu, komu saman og deildu um stærstu kosningamálin.
Þrátt fyrir að vera sammála um fátt þá var einn hlutur sem allir gátu sammælst um: að kynjafræði skuli kennd í skólum. „Menntamálin voru mikið nefnd hérna, einhverjir komu inn á kynferðisbrotamál og MeToo bylgjan hún einmitt reis upp á þessu kjörtímabili og afhjúpaði mjög alvarlegt kynjamisrétti í flestum kimum samfélagsins. Í framhaldinu hefur komið ákall, meðal annars frá Sambandi íslenskra framhaldsskólanema um að kynjafræði verði skyldufag í öllum framhaldsskólum,“ sögðu þularnir og gengu svo á línuna. Hvað segðu formennirnir: Já, eða nei? Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknarflokksins og samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, byrjaði og sagði það skynsamlegt. „Já, ekki spurning, við lögðum einmitt fram tillögu þess efnis. Jón Steindór Valdimarsson hefur lagt áherslu á þetta í þinginu. Það er ekki spurning,“ sagði Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar. Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, tók undir og sagðist telja að kynjafræði hlyti að eiga að vera hluti af einhvers konar lífsleikni. „Mér finnst að kynjafræðin hljóti að vera hluti af lífsleikni í einhverju víðara samhengi. Ef sá vinkill er ekki með í lífsleikniáföngum þá skortir mikið upp á.“ „Nú svara ég sem fyrrverandi kynjafræðinemandi við Háskóla Íslands“ Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, sagðist hjartanlega sammála og Gunnar Smári Egilsson, formaður Sósíalistaflokksins, sagði þetta einmitt hluta af stefnu flokksins sem nefnist „Stöðvum ofbeldisfaraldurinn.“ „Nú svara ég sem fyrrverandi kynjafræðinemandi við Háskóla Íslands, þó ég hafi ekki tekið próf í greininni, en hefur þótt áhugavert. En þetta er allt spurning um innihaldið, og ef þetta snýst um að kenna börnum og unglingum mikilvægi jafnréttis þá já, að sjálfsögðu,“ sagði Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins. Guðmundur Franklín Jónsson, formaður Frjálslynda lýðræðisflokksins, tók undir þetta og sagði heiminn vera að breytast ansi hratt. Málið þurfi að taka alvarlega. Sama sagði Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, þingmaður Pírata, en tók fram að við kynjafræði þyrfti að bæta því við að uppræta ætti fordóma gegn fötluðu fólki, innflytjendum, flóttamönnum og fleiri breytum í samfélaginu. Logi Einarsson, formaður Samfylkingarinnar, svaraði eins og aðrir játandi. Hann tók það þó fram að þó lög væru uppfærð væri það samfélagið sem þyrfti að breytast. „Það er fyrst og fremst okkar hegðun og menning sem þarf að taka stakkaskiptum.“ Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs, svaraði síðust og var eins og aðrir fylgjandi þessari fræðslu.
Alþingiskosningar 2021 Skóla - og menntamál Jafnréttismál Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Grunaður um að hafa ráðið konu sinni bana Innlent Biðst afsökunar á að hafa kallað skemmdarvarginn „fífl“ Innlent Segja valdarán framið og kirkju aðventista klofna Innlent Berst gegn kvíaeldi á jörð sem hann telur sína Innlent Réðst á barn sem gerði dyraat Innlent Óttast mikinn skaða sem seint yrði fyrirgefinn Innlent Steinunn Ólína skýtur föstum skotum á Katrínu Innlent Segja baráttuna bara rétt að hefjast Innlent Vill geta vísað flóttafólki úr landi innan tveggja sólarhringa Innlent Tíðni manndrápa í takt við fjölgun mannfjölda Innlent Fleiri fréttir Tvö manndráp á skömmum tíma „Það er ástæða fyrir því að farið er í að rannsaka þetta andlát“ Vill geta vísað flóttafólki úr landi innan tveggja sólarhringa Réðst á barn sem gerði dyraat Grunaður um að hafa ráðið konu sinni bana Myndaði annan mann í sturtuklefanum Tíðni manndrápa í takt við fjölgun mannfjölda Segja valdarán framið og kirkju aðventista klofna Pétur Guðfinnsson er látinn Biðst afsökunar á að hafa kallað skemmdarvarginn „fífl“ Rafmagnslaust á Blönduósi Segja baráttuna bara rétt að hefjast Berst gegn kvíaeldi á jörð sem hann telur sína Óttast mikinn skaða sem seint yrði fyrirgefinn Úrskurðaður í vikulangt gæsluvarðhald á Akureyri Mikilvægt skref en megi gera betur Katrín og Baldur takast enn á um forystuna Fjögurra milljarða króna tekjur á ári af spilakössum Katrín, Halla og Steinunn Ólína mætast í Pallborðinu Bæjarstjórn fundaði með Þórkötlu Morðrannsókn á Akureyri og sundgestir í uppnámi Vonast til að afgreiða hvalveiðileyfi eins hratt og mögulegt er Tveimur sleppt úr haldi á Suðurlandi Átta hundrað milljóna afgangur í Hafnarfirði Halla telur langt í að fólk sé búið að ákveða sig Sjö sóttu um embætti skólameistara Íbúar sváfu vært meðan á öllu gekk á jarðhæðinni Ásdís Rán búin að safna undirskriftum Kristrún segir ríkisstjórnina vilja gefa auðlindir þjóðarinnar Þjófnaðurinn áfall fyrir reynslumikla öryggisverði Sjá meira