Meistararnir unnu án gríska skrímslisins

Khris Middleton átti stórleik í nótt.
Khris Middleton átti stórleik í nótt. AFP

Ríkjandi meistarar Milwaukee Bucks unnu sterkan 133:127-sigur á Sacramento Kings þegar liðin mættust í NBA-deildinni í körfuknattleik í nótt. Grikkinn ógnarsterki Giannis Antetokounmpto lék ekki með Milwaukee en það kom ekki að sök.

Í fjarveru hans steig Khris Middleton upp svo um munaði og skoraði 34 stig. Jrue Holiday samherji hans bætti við 26 stigum.

Í liði Sacramento var Harrison Barnes stigahæstur með 29 stig og þá náði Tyrese Haliburton tvöfaldri tvennu með því að skora 24 stig og gefa 12 stoðsendingar.

Alls fóru þrír leikir fram í NBA-deildinni í nótt.

Öll úrslit næturinnar:

Milwaukee - Sacramento 133:127

Phoenix - Indiana 113:103

Cleveland - Oklahoma 94:87

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert