Viggó skoraði níu í Íslendingaslag

Viggó Kristjánsson
Viggó Kristjánsson Ljósmynd/Ein­ar Ragn­ar Har­alds­son

Viggó Kristjánsson átti stórleik fyrir Stuttgart sem vann 30:29-sigur á Magdeburg í þýsku efstu deildinni í handknattleik í dag. Viggó skoraði níu mörk úr tólf skotum.

Ómar Ingi Magnússon skoraði eitt mark fyrir heimamenn en Gísli Þorgeir Kristjánsson komst ekki á blað. Þá kom Elvar Ásgeirsson við sögu fyrir Stuttgart sem er búið að vinna þrjá af fyrstu fimm leikjum sínum og er í áttunda sæti deildarinnar.

Ýmir Örn Gíslason skoraði eitt mark fyrir RN Löwen sem vann 26:20-útisigur á Erlangen og lærisveinar Guðmundar Þórðar Guðmundssonar í Melsungen unnu 33:25-sigur á Wetzlar. Arnar Freyr Arnarsson skoraði eitt marka Melsungen.

Löwen er á toppnum, ásamt Flensburg, með fjóra vinninga úr fyrstu fimm leikjunum. Melsungen er í 7. sæti með sjö stig, eins og Stuttgart.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert