Lárus hrósar Styrmi og „litáíska ljúfmenninu“ Valur Páll Eiríksson skrifar 20. júní 2021 11:00 Lárus Jónsson, þjálfari Þórs frá Þorlákshöfn, stýrði sínum mönnum til annars sigursins í röð á Keflavík. Liðið leiðir 2-0 í einvíginu um Íslandsmeistaratitilinn. Vísir/Stöð 2 Sport Lárus Jónsson var í settinu í Domino's körfuboltakvöldi í gærkvöld eftir 88-83 sigur liðs hans Þórs Þorlákshafnar á Keflavík. Þór leiðir einvígið nú 2-0. „Góður varnarleikur í fyrsta, öðrum og fjórða leikhluta, það var eiginlega bara lykillinn. Sóknarleikurinn okkar var góður í fyrri hálfleik en varnarleikurinn í þremur leikhlutunum var góður,“ sagði Lárus helstu ástæðurnar fyrir sigri Þórs í gærkvöld. Það komu þó kaflar þar sem Þórsarar lentu í vandræðum en um það segir Lárus: „Þetta var dálítill æðibunugangur hjá okkur. Callum [Lawson] kom til mín í hálfleik og sagði 'þú ert að reyna of marga hluti'. Þetta var svona, Larry var heitur og við vorum opnir, við gátum fengið opnanir á póstinum, svo bara allt í einu var allt opið og þá reyndum við að gera 3-4 hluti í sömu sókninni.“ „Mér fannst Keflavík sterkari en við í þriðja leikhluta en við héldum okkur inni með góðum skotum. Þannig að við náðum að búa til smá buffer með góðum skotum. En auðvitað hafði ég áhyggjur, þeir eru með frábært lið. Ég hafði mestar áhyggjur af því hvað þeir komust auðveldlega á hringinn,“ segir Lárus. „Litáíska ljúfmennið“ veit hvað til þarf Adomas Drungilas átti góðan leik fyrir Þór þar sem hann skoraði 29 stig, mest allra á vellinum. Lárus hrósaði honum eftir leik. „Litáíska ljúfmennið,“ kallaði Lárus hann í settinu í gær. „Ég held hann viti bara hvað svona leikur þýðir, að hafa náð 1-0 gegn Keflavík á útivelli, að glopra því ekki niður á heimavelli. Hann hefur verið meistari og bikarmeistari í Austurríki og hefur spilað svona leiki. Þannig að ég held að hann hafi komið einbeittur að klára þennan leik.“ sagði Lárus um Drungilas. 19 ára strákur rífst við Milka Hinn 19 ára gamli Styrmir Snær Þrastarson átti einnig góðan leik. Hann skoraði meðal annars 14 stig, tók sex fráköst og gaf fimm stoðsendingar, auk þessa að skila góðri varnarframmistöðu. „Hann er að sýna bara hvað hann er fjölhæfur. Hann gefur liðinu fráköst, hann rífst við Milka, og góða vörn.“ segir Lárus um Styrmi sem þáttastjórnandinn Kjartan Atli Kjartansson tók undir. „Það sem ég er svo ánægður með, við höfum hrósað honum fyrir hugarfarið hans í vetur, þó hann sé svona ljúfur drengur, að þá er samt töggur í honum. Eins og þarna, hann horfir á Milka, hann horfði upp í stúkuna í Keflavík. Hann lætur ekki valta yfir sig,“ sagði Kjartan og beindi orðum sínum til sérfræðingins Teits Örlygssonar. „Nei, og þessi tilþrif þarna, þetta er svona á góðri íslensku 'next-level shit', eins og við segjum,“ sagði Teitur Örlygsson. Viðtalið við Lárus frá því í gærkvöld má sjá í spilaranum að neðan. Klippa: Lalli Jóns eftir leik Domino's-deildirnar í körfubolta eru á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Domino's-deildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur. Dominos-deild karla Þór Þorlákshöfn Mest lesið Ómar Ingi skaut Evrópumeisturunum áfram eftir vítakeppni Handbolti FH fékk tvær sektir frá KSÍ Íslenski boltinn Bucks í sögubækurnar eftir sigurinn á Pacers Körfubolti Dortmund leiðir þökk sé þrumuskoti Füllkrug Fótbolti Fengið nóg af því að vera ruslakista fyrir viðbjóð frá fólki Körfubolti Uppgjörið: ÍBV - FH 39-38 | ÍBV tryggði sér oddaleik eftir vítakastkeppni Handbolti Elín Jóna færir sig á milli félaga á Jótlandi Handbolti „Féllu dómar í dag sem voru að mér fannst ansi augljósir“ Handbolti Dagskráin í dag: Stórleikir og stórstjörnur út um allt Sport Óheflaði Eyjapeyinn Kári Kristján: „Töpum aldrei í vítakeppnum“ Handbolti Fleiri fréttir Bucks í sögubækurnar eftir sigurinn á Pacers PlayAir leiksins var Dedrick Deon Basile Ein af stóru Sólunum gæti fært sig yfir í Stóra eplið Uppgjörið, viðtöl og myndir: Stjarnan - Keflavík 85-82 | Hvolpasveitin jafnaði einvígið „Ansi erfitt fyrir Grindvíkinga að hann hagi sér svona og fái mögulega leikbann“ Magnaður Maxey bjargaði Sixers frá sumarfríi Guðni stal senunni í Smáranum: „Sástu forsetann þarna?“ LeBron gæti fengið sig lausan frá Lakers og verið án félags í sumar Remy Martin ekki meira með í þessari úrslitakeppni „Breytir einvíginu ansi mikið“ „Af hverju þurfa þeir meiri athygli, er þetta ekki bara fínt?“ Uppgjör: Grindavík - Keflavík 102-94 | Gulir unnu fyrsta bardagann Martin meiddist og á leið upp á sjúkrahús Lakers lætur Ham líklega fara Fengið nóg af því að vera ruslakista fyrir viðbjóð frá fólki LeBron James gæti hafa spilað kveðjuleik sinn „Þeir voru bara miklu betri í kvöld og áttu sigurinn skilið“ „Skákin er bara byrjuð“ Uppgjör: Valur - Njarðvík 84 - 105 | Deildarmeistararnir fengu kjaftshögg „Gæinn væri Alpha hundur í öllum liðum“ Tók sinn tíma að jafna sig Landsliðsmaður blandar sér í umræðuna um umdeilda sigurkörfu Njarðvíkinga Liðsfélagarnir í sumarfríi en hann að vinna tólf tíma á dag á Íslandi Fyrstir áfram en þjálfarinn meiddist alvarlega þegar leikmaður hans lenti á honum „Hver karfa skiptir máli þannig að ég varð smá reiður“ Uppgjör: Grindavík - Njarðvík 79-83 | Grænar stálu heimavellinum í Smáranum Brunson skaut Philadelphia í kaf LeBron og Davis köstuðu líflínu til Lakers Bucks líklega án beggja ofurstjarna sinna í leik fjögur Góður leikur Tryggva skilaði engu Sjá meira
„Góður varnarleikur í fyrsta, öðrum og fjórða leikhluta, það var eiginlega bara lykillinn. Sóknarleikurinn okkar var góður í fyrri hálfleik en varnarleikurinn í þremur leikhlutunum var góður,“ sagði Lárus helstu ástæðurnar fyrir sigri Þórs í gærkvöld. Það komu þó kaflar þar sem Þórsarar lentu í vandræðum en um það segir Lárus: „Þetta var dálítill æðibunugangur hjá okkur. Callum [Lawson] kom til mín í hálfleik og sagði 'þú ert að reyna of marga hluti'. Þetta var svona, Larry var heitur og við vorum opnir, við gátum fengið opnanir á póstinum, svo bara allt í einu var allt opið og þá reyndum við að gera 3-4 hluti í sömu sókninni.“ „Mér fannst Keflavík sterkari en við í þriðja leikhluta en við héldum okkur inni með góðum skotum. Þannig að við náðum að búa til smá buffer með góðum skotum. En auðvitað hafði ég áhyggjur, þeir eru með frábært lið. Ég hafði mestar áhyggjur af því hvað þeir komust auðveldlega á hringinn,“ segir Lárus. „Litáíska ljúfmennið“ veit hvað til þarf Adomas Drungilas átti góðan leik fyrir Þór þar sem hann skoraði 29 stig, mest allra á vellinum. Lárus hrósaði honum eftir leik. „Litáíska ljúfmennið,“ kallaði Lárus hann í settinu í gær. „Ég held hann viti bara hvað svona leikur þýðir, að hafa náð 1-0 gegn Keflavík á útivelli, að glopra því ekki niður á heimavelli. Hann hefur verið meistari og bikarmeistari í Austurríki og hefur spilað svona leiki. Þannig að ég held að hann hafi komið einbeittur að klára þennan leik.“ sagði Lárus um Drungilas. 19 ára strákur rífst við Milka Hinn 19 ára gamli Styrmir Snær Þrastarson átti einnig góðan leik. Hann skoraði meðal annars 14 stig, tók sex fráköst og gaf fimm stoðsendingar, auk þessa að skila góðri varnarframmistöðu. „Hann er að sýna bara hvað hann er fjölhæfur. Hann gefur liðinu fráköst, hann rífst við Milka, og góða vörn.“ segir Lárus um Styrmi sem þáttastjórnandinn Kjartan Atli Kjartansson tók undir. „Það sem ég er svo ánægður með, við höfum hrósað honum fyrir hugarfarið hans í vetur, þó hann sé svona ljúfur drengur, að þá er samt töggur í honum. Eins og þarna, hann horfir á Milka, hann horfði upp í stúkuna í Keflavík. Hann lætur ekki valta yfir sig,“ sagði Kjartan og beindi orðum sínum til sérfræðingins Teits Örlygssonar. „Nei, og þessi tilþrif þarna, þetta er svona á góðri íslensku 'next-level shit', eins og við segjum,“ sagði Teitur Örlygsson. Viðtalið við Lárus frá því í gærkvöld má sjá í spilaranum að neðan. Klippa: Lalli Jóns eftir leik Domino's-deildirnar í körfubolta eru á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Domino's-deildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.
Domino's-deildirnar í körfubolta eru á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Domino's-deildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.
Dominos-deild karla Þór Þorlákshöfn Mest lesið Ómar Ingi skaut Evrópumeisturunum áfram eftir vítakeppni Handbolti FH fékk tvær sektir frá KSÍ Íslenski boltinn Bucks í sögubækurnar eftir sigurinn á Pacers Körfubolti Dortmund leiðir þökk sé þrumuskoti Füllkrug Fótbolti Fengið nóg af því að vera ruslakista fyrir viðbjóð frá fólki Körfubolti Uppgjörið: ÍBV - FH 39-38 | ÍBV tryggði sér oddaleik eftir vítakastkeppni Handbolti Elín Jóna færir sig á milli félaga á Jótlandi Handbolti „Féllu dómar í dag sem voru að mér fannst ansi augljósir“ Handbolti Dagskráin í dag: Stórleikir og stórstjörnur út um allt Sport Óheflaði Eyjapeyinn Kári Kristján: „Töpum aldrei í vítakeppnum“ Handbolti Fleiri fréttir Bucks í sögubækurnar eftir sigurinn á Pacers PlayAir leiksins var Dedrick Deon Basile Ein af stóru Sólunum gæti fært sig yfir í Stóra eplið Uppgjörið, viðtöl og myndir: Stjarnan - Keflavík 85-82 | Hvolpasveitin jafnaði einvígið „Ansi erfitt fyrir Grindvíkinga að hann hagi sér svona og fái mögulega leikbann“ Magnaður Maxey bjargaði Sixers frá sumarfríi Guðni stal senunni í Smáranum: „Sástu forsetann þarna?“ LeBron gæti fengið sig lausan frá Lakers og verið án félags í sumar Remy Martin ekki meira með í þessari úrslitakeppni „Breytir einvíginu ansi mikið“ „Af hverju þurfa þeir meiri athygli, er þetta ekki bara fínt?“ Uppgjör: Grindavík - Keflavík 102-94 | Gulir unnu fyrsta bardagann Martin meiddist og á leið upp á sjúkrahús Lakers lætur Ham líklega fara Fengið nóg af því að vera ruslakista fyrir viðbjóð frá fólki LeBron James gæti hafa spilað kveðjuleik sinn „Þeir voru bara miklu betri í kvöld og áttu sigurinn skilið“ „Skákin er bara byrjuð“ Uppgjör: Valur - Njarðvík 84 - 105 | Deildarmeistararnir fengu kjaftshögg „Gæinn væri Alpha hundur í öllum liðum“ Tók sinn tíma að jafna sig Landsliðsmaður blandar sér í umræðuna um umdeilda sigurkörfu Njarðvíkinga Liðsfélagarnir í sumarfríi en hann að vinna tólf tíma á dag á Íslandi Fyrstir áfram en þjálfarinn meiddist alvarlega þegar leikmaður hans lenti á honum „Hver karfa skiptir máli þannig að ég varð smá reiður“ Uppgjör: Grindavík - Njarðvík 79-83 | Grænar stálu heimavellinum í Smáranum Brunson skaut Philadelphia í kaf LeBron og Davis köstuðu líflínu til Lakers Bucks líklega án beggja ofurstjarna sinna í leik fjögur Góður leikur Tryggva skilaði engu Sjá meira