Erlent

Þrír lögregluþjónar ákærðir fyrir að skjóta átta ára stúlku til bana

Samúel Karl Ólason skrifar
Fanta Bility var átta ára gömul þegar hún varð fyrir skoti úr byssu lögregluþjóns í ágúst í fyrra og dó.
Fanta Bility var átta ára gömul þegar hún varð fyrir skoti úr byssu lögregluþjóns í ágúst í fyrra og dó. AP/Matt Rourke

Þrír lögregluþjónar í Pennsylvaníu í Bandaríkjunum voru ákærðir fyrir manndráp í vikunni. Það er vegna skothríðar þeirra fyrir utan leikvang framhaldsskóla í bænum Sharon Hill í ágúst þar sem átta ára stúlka varð fyrir skoti og dó.

Lögregluþjónarnir voru meðal annars fyrir manndráp. Þeir heita Devon Smith (34), Sean Dolan (25) og Brian Devaney (41). Þó þeir hafi verið ákærðir fyrr í vikunni voru þeir ekki reknir úr lögreglunni fyrr en í gær. Það var gert á fundi bæjarráðs Sharon Hill.

Þann 27. ágúst í fyrra fóru tveir ungir menn að rífast fyrir utan íþróttavöll þar sem framhaldsskólalið voru að keppa í ruðningi. Þeir Hasein Strand og Angelo Ford byrjuðu fljótt að skiptast á skotum sín á milli.

Lögregluþjónarnir þrír voru á leikvanginum og skutu á mennina tvo. Rannsókn leiddi í ljós að þeir skutu 25 skotum í átt að áhorfendastúku leikvangsins og í átt að bíl því þeir töldu ranglega að verið væri að skjóta að þeim frá honum.

Hér má sjá þá Brian Devaney, Sean Dolan og Devon Smith.AP/Héraðssaksóknari Delaware-sýslu

Eitt skotanna hæfði hina átta ára gömlu Fanta Bility. Hún dó og þrír aðrir særðust en þeir Strand og Ford voru óskaddaðir.

Samkvæmt New York Times var fyrst ákveðið að ákæra þá Strand og Ford fyrir morð. Þær ákærur voru þó felldar niður á endanum og var ekki ákveðið að ákæra lögregluþjónana í staðinn.

Nú segja saksóknarar að ljóst sé að eitt skotanna sem lögregluþjónarnir skutu banaði Bility.

„Þessir lögregluþjónar tóku skyndiákvörðun til að skjóta úr byssum sínum. Við treystum þeim til að taka rétta ákvörðun í aðstæðum sem þessum og þeim mistókst það hræðilega,“ sagði Jack Stollsteimer, saksóknari.

Hér má sjá sjónvarpsfrétt héraðsmiðilsins 6abc um málið.

Segja mennina hetjur sem lentu í erfiðum aðstæðum

Lögmenn lögregluþjónanna fyrrverandi sendu frá sér yfirlýsingu í vikunni þar sem þeir sögðu skjólstæðinga sína hafa hætt eigin lífum til að verja samfélagið. Þeir séu hetjur sem hafi þurft að bregðast við í erfiðum aðstæðum.

Þá sagði forseti verkalýðsfélags lögregluþjóna á svæðinu að það væri sorglegt að lögregluþjónar væru ákærðir fyrir að reyna að vinna vinnu þeirra og verja borgara.

Í frétt CBS, þar sem fjallað er um borgarstjórnarfundinn í gær þar sem ákveðið var að reka lögregluþjónana, segir að sex borgarfulltrúar hafi greitt atkvæði með brottrekstrinum og einn hafi verið á móti. SKiptar skoðanir hafi verið um málið meðal þeirra sem tóku til máls á fundinum.

Einhverjir hafi sagt ákvörðunina rétta og aðrir hafi komið lögregluþjónunum til varnar.

„Það sem þið eruð að gera þessum lögregluþjónum er rangt,“ sagði einn. „Held ég að þeir þurfi í endurþjálfun? Algerlega. Held ég að það þurfi að sækja þá til saka eins og glæpamenn? Nei. Við viljum ekki að lögregluþjónar verði hræddir við að stöðva glæpi.“

Ákærur gegn lögreglujónum mjög sjaldgæfar

Þrátt fyrir að undanfarna mánuði og undanfarin ár hafi komið upp nokkur áberandi tilvik þar sem lögregluþjónar voru ákærðir og sakfelldir fyrir að valda skjóta fólk til bana eða bana því með öðrum hætti, eru slíkar ákærur gífurlega sjaldgæfar í Bandaríkjunum.

NYT vitnar í gagnagrunni sem nær aftur til ársins 2005 þar sem fram kemur að síðan þá hafa einungis 155 lögregluþjónar hafi verið ákærðir fyrir morð eða manndráp fyrir að skjóta einhvern til bana við skyldustörf.

Frá 2015 hafa lögregluþjónar skotið fleiri en fimm þúsund til bana við skyldustörf, samkvæmt gagnagrunni Washington Post.

Met var sett síðasta ár þegar 21 lögregluþjónn var ákærður fyrir að bana einhverjum við skyldustörf. Það ár bönuðu lögregluþjónar þó rúmlega 1.100 manns, samkvæmt gagnagrunni Mapping Police Violence.


Tengdar fréttir

Feðgarnir eiga ekki rétt á reynslu­lausn

Feðgarnir Greg og Travis McMichael voru í dag dæmdir til að verja ævi þeirra í fangelsi. Dómari úrskurðaði að þeir ættu ekki rétt á reynslulausn eftir að þeir voru dæmdir fyrir að myrða hinn 25 ára gamla Ahmaud Arbery árið 2020. Nágranni þeirra og samverkamaður, William Bryan, mun hins vegar geta sótt um reynslulausn eftir þrjátíu ár.

„Dóttir mín dó í fanginu á mér“

Móðir fjórtán ára stúlku sem varð fyrir skoti úr byssu lögregluþjóns og dó í Los Angeles segist ekkert hafa getað gert til að bjarga lífi dóttur sinnar. Þær höfðu leitað skjóls í mátunarklefa verslunar eftir að maður réðst á konur með hjólalás í versluninni.

Birtu myndband af slysaskoti sem banaði fjórtán ára stúlku

Lögreglan í Los Angeles í Bandaríkjunum birti í gær myndband af atviki þar sem fjórtán ára stúlka var skotin til bana fyrir mistök. Stúlkan varð fyrir skoti úr byssu lögregluþjóns sem fór í gegnum vegg og inn í mátunarklefa þar sem hún var í felum með móður sinni.

Lögreglumaðurinn áfrýjar dómi vegna dauða Georges Floyd

Derek Chauvin, lögreglumaðurinn sem var dæmdur í meira en 22 ára fangelsi fyrir að valda dauða George Floyd í Minneapolis í Bandaríkjunum í fyrra hefur áfrýjað dómnum. Chauvin kraup ofan á hálsi Floyd þar til hann lét lífið.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×