Karabatic: Við fundum engar lausnir Sigurður Orri Kristjánsson skrifar 23. janúar 2022 08:02 Nikola Karabatic mátti sín lítils í gær gegn íslensku vörninni EPA-EFE/Zsolt Szigetvary Nikola Karabatic, einn besti og sigursælasti handboltamaður sögunnar, var að vonum niðurlútur í viðtölum við franska fjölmiðla eftir tapið gegn Íslandi.
Karabatic sat fyrir svörum hjá franska íþróttablaðinu L'Equipe eftir leikinn og sagði Frakka ekki getað notað afsakanir eins og að það hafi vantað leikmenn eins og Guillaume Gille og Ludovic Fabregas. „Við getum ekki lagt neina áherslu á að okkur hafi vantað leikmenn í dag því að Íslandi vantaði líka leikmenn. Þeir höfðu engu að tapa á móti ólympíumeisturunum og gáfu allt í leikinn. Við mættum liði sem átti sinn besta leik á mótinu og á sama tíma áttum við okkar versta leik. Við erum núna með bakið upp við vegg og verðum að vinna leikina sem eru eftir ef við ætlum okkur í undanúrslit,“ sagði Karabatic ósáttur við leik sinna manna. Þetta tíst naut mikilla vinsælda í gær þar sem sjá má ungan Teit Örn Einarsson stilla sér upp með Karabatic, og aðra mynd frá leiknum í gær þar sem Teitur er að taka hressilega á Karabatic. 10 ára callenge... #handbolti #hmruv pic.twitter.com/2PDw9uLQMO— Thelma Björk Einarsd (@ThelmaBjorkE) January 21, 2019 Þá sagði Karabatic að liðið hefði einfaldlega ekki fundið lausnir á varnarleik íslenska liðsins. „Við skoruðum ekki nema 21 mark og klikkuðum á alltof mörgum skotum á meðan þeir sóttu vel á okkur. Við vorum í lakari gæðaflokki allan leikinn og það er mjög langt síðan mér leið þannig gegn nokkru liði,“ sagði fyrirliði franska liðsins. Aðspurður hvort hann óttist það að Frakkar komist ekki í undanúrslit var svarið einfalt. „Að sjálfsögðu,“ sagði hann og bætti við að liðið þyrfti að hafa betur gegn Svartfjallalandi og Danmörku. Þá harmaði hann það hversu stórt tapið gegn Íslandi var, enda gæti markatala skorið út um það hvaða lið fer áfram í undanúrslitin, og þar mun stórsigur Íslands vænka hag okkar manna. „Það fór allt úrskeiðis, ég hef ekki reiknað þetta út enn þá en við verðum að berjast,“ sagði Karabatic. Mótshaldarar hafa verið gagnrýndir harðlega fyrir slælegar sóttvarnir og hafa flest lið urðið fyrir barðinu á Covid-19 á mótinu. Var Karabatic spurður álits á því hvort að mótið hefði átt að vera haldið til að byrja með. „Það er önnur spurning sem við svörum seinna. Þetta er mjög sérstakt mót. Á tuttugu ára ferli mínum með landsliðinu hef ég aldrei upplifað annað eins,“ sagði Karabatic. Sem fyrr segir voru Frakkar án þjálfarans og nokkurra lykilmanna auk þess sem að skakkaföll íslenska liðsins eru vel skrásett. Karabatic segir að hverjum degi fylgi óvissa. „Á hverjum degi vöknum og við spyrjum hver er ennþá hér, hver getur haldið áfram, hver getur það ekki, hver er í einangrun og hver ekki.“
EM karla í handbolta 2022 Mest lesið „Hrafninn svífur yfir Vesturbænum“ Íslenski boltinn Óskar hafi sett stjórninni afarkosti Fótbolti Kveðjuleikur Klopp í hættu? | „Meðvitaður um stöðuna“ Enski boltinn Brotthvarf Óskars „eins og þruma úr heiðskíru lofti“ Fótbolti Segja vinslit hjá Tiger Woods og Rory McIlroy Golf Óskar Hrafn hættur hjá Haugesund Fótbolti Fjórtán ára strákur með Man City klásúlu í samningi sínum við annað félag Enski boltinn „Erum ekki á góðum stað sem fótboltalið í augnablikinu“ Fótbolti Dortmund fær meira fyrir að tapa en vinna úrslitaleikinn Fótbolti Bláa flautan hjálpar bæði foreldrum og þjálfurum Íslenski boltinn Fleiri fréttir Einar Bragi skrifaði undir tveggja ára samning í Svíþjóð Slóvakía skellti Póllandi óvænt í umspili HM „Við vorum skugginn af sjálfum okkur“ Uppgjörið og viðtöl: Valur - Haukar 28-27 | Íslandsmeistarnir sluppu með skrekkinn Gagnrýnir lítinn stuðning við afreksíþróttafólk: „Upphæðin ein og sér er grín“ Myndaveisla frá risasigrinum á Eistum Færeyingar hársbreidd frá fyrsta heimsmeistaramótinu Uppgjörið: Ísland - Eistland 50-25 | Stigu bensínið í botn frá fyrstu mínútu „Ánægður að við sýndum þá hlið að við getum verið góðir í sextíu mínútur“ Þakklátur eftir fyrsta landsleikinn: „Tek bara einn dag fyrir í einu“ „Ekkert sjálfgefið að valta yfir lið“ Skyldusigur í kvöld: „Þurfum að koma okkur inn á HM“ Einar Bragi verður einn af strákunum okkar í kvöld „Það er stórmót í húfi“ Stjörnumarkvörðurinn í vandræðum með augað á sér Ísland eignast nýtt EHF dómarapar Bleyjur og klósettpappír áhorfenda kostuðu ÍBV Enn hægt að fá miða á HM-leikinn í kvöld Farangurinn flæktist fyrir Gísla: „Kom beint af flugvellinum“ Undanúrslit í Meistaradeildinni klár „Bara að fara heim og hitta mömmu“ Fjórir frá vegna meiðsla: „Dagurinn ekkert frábær á skrifstofunni“ „Höfum spilað vel án Arons áður“ „Veit ekki hvað Elmar þarf að gera til að komast í landsliðið“ Kostar 600 þúsund að keppa með U18: „Þetta eru þakkirnar fyrir að spila fyrir landsliðið“ Uppgjör og viðtöl: FH - ÍBV 34-27 | Aronslausir FH-ingar tryggðu sér sæti í úrslitum Guðmundur og Íslendingalið Ribe-Esbjerg í undanúrslit Afturelding einum sigri frá úrslitum Magdeburg á toppinn eftir stórleik Íslendinganna Fyrsta tap lærisveina Guðjóns Vals síðan í byrjun mars Sjá meira