Stjórnvöld styrkja Eurovison-safn og heimildaþætti Jóhannesar um faraldurinn Eiður Þór Árnason skrifar 26. febrúar 2021 13:28 Gamanmyndin Eurovision Song Contest: The Story of Fire Saga kom Húsavík á kortið í hugum Eurovison-aðdáenda. Jóhannes Kr. Kristjánsson hefur unnið lengi að nýjum heimildaþáttum um heimsfaraldurinn. Netflix/Vísir Ríkisstjórnin hyggst styrkja gerð heimildaþátta um Covid-19 faraldurinn á Íslandi um fimm milljónir króna. Þá ætlar hún styðja við uppbyggingu Eurovision-safns á Húsavík fyrir tvær milljónir króna. Þetta var ákveðið á ríkisstjórnarfundi í morgun.
Blaðamaðurinn Jóhannes Kr. Kristjánsson og Sævar Guðmundsson leikstjóri standa að gerð þáttanna sem er ætlað að skrásetja útbreiðslu og áhrif faraldursins á íslensku þjóðina sem og viðbrögð stjórnvalda við honum. Vonir standa til að sex þættir verði tilbúnir til sýningar næsta haust. Jóhannes greindi frá því í sumar að þeir Sævar hafi fylgt þríeykinu svokallaða síðasta vor og fengið að vera fluga á vegg að tjaldabaki. Í viðtali við Sölva Tryggvason sagði Jóhannes að hann hafi meðal annars myndað það þegar faraldurinn náði hámarki á Vestfjörðum. „Ég sá lík borið út af hjúkrunarheimilinu. Þú ert kominn alveg að kjarnanum þarna og það tók dálítinn tíma fyrir samfélagið að endurræsa sig eftir þetta,“ sagði Jóhannes, sem hefur einnig tekið viðtöl við ástvini þeirra sem létust og fylgt eftir þeirri atburðarás sem átti sér stað. „Ég ætlaði að vera þarna í þrjá sólarhringa, en endaði á að vera í sautján daga.“ Jóhannes sagði fyrr í samtali við upplýsingaskrifstofu Sameinuðu þjóðanna að hann og Sævar hafi sömuleiðis skrásett sögu hinnar 102 ára gömlu Helgu Guðmundsdóttur í Bolungarvík. Helga komst í fréttirnar í vor þegar hún fagnaði því að vera laus við Covid-19 en hún hafði áður upplifað Spænsku veikina og berklafaraldur á sínum yngri árum. Ætla að nýta sér Eurovision-frægð bæjarins Fram kemur á vef Stjórnarráðsins að stefnt sé að opnun Eurovision-safnsins í maí á 65 ára afmæli Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva. Könnunarsögusafnið á Húsavík stendur fyrir opnun Eurovision-safnsins í samstarfi við Húsavíkurstofu, RÚV, Samband evrópskra sjónvarpsstöðva og Netflix. Húsvíkingar voru ekki lengi að nýta sér nýorðna frægð bæjarins vegna Eurovision-myndar Wills Ferrell sem kom út á síðasta ári en bærinn er helsta sögusvið myndarinnar. Síðasta sumar var þar opnaður Jaja Ding Dong-bar nefndur eftir einu helsta lagi myndarinnar og sett upp lítil álfabyggð í anda þeirrar sem kom við sögu í ræmunni. „Við sjáum eiginlega ekkert nema tækifæri í myndinni. Húsavík er svo skemmtilegur karakter í myndinni og fær að njóta sín svo vel,“ sagði hótelstjórinn Örlygur Hnefill Örlygsson, sem átti frumkvæðið að safninu, í fréttum Stöðvar 2 síðasta sumar. Hann taldi myndina gefa sóknarfæri inn í Evrópu og að aðdáendur Eurovision, sem hafi séð á eftir keppninni í fyrra, hafi fengið myndina í staðinn. „Og eru núna að skoða Húsavík og vilja koma hér næsta sumar og næstu tvö þrjú ár, held ég.“
Norðurþing Eurovision Eurovision-mynd Will Ferrell Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Kvikmyndagerð á Íslandi Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Betra að fá óþægilegu málin fram fyrr en seinna Innlent Íslendingur í gæsluvarðhaldi vegna Hamraborgarmálsins Innlent Hundruð lögreglumanna í viðbragðsstöðu vegna mótmæla í UCLA Erlent Eldur í ruslageymslu í Hafnarfirði Innlent Icelandair flýgur til Færeyja að nýju Innlent Stutt í næsta gos komi til gosloka Innlent Viðbrögð Hamas við vopnahléstillögunum „neikvæð“ Erlent „Það er hart sótt að okkar fólki“ Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Úrskurðurinn felldur úr gildi Innlent Fleiri fréttir Hefja sölu á íbúðum á Orkureitnum Halla vill að hér verði tekin upp samfélagsþjónusta Íslendingur í gæsluvarðhaldi vegna Hamraborgarmálsins Betra að fá óþægilegu málin fram fyrr en seinna Eldur í ruslageymslu í Hafnarfirði Seinni umferð biskupskjörs hefst á hádegi í dag Icelandair flýgur til Færeyja að nýju Stutt í næsta gos komi til gosloka „Það er hart sótt að okkar fólki“ Nemendur Flóaskóla slá í gegn með Langspilin sín Háskólanemar halda lautarferð og stofna hreyfingu fyrir Palestínu Jarðhræringar á Reykjanesi, flug til Færeyja og verkalýðsdagurinn Úrskurðurinn felldur úr gildi Vill hinn almenna launamann á þing Sinueldur í Munaðarneslandi Íslensk stjórnvöld haldin „sjúkri undirgefni“ Barn á Akureyri greindist með kíghósta Íslensk fjara á lista yfir bestu strendur heims Beint: Hátíðarhöld á verkalýðsdaginn 2024 Sniglar hægja á umferð Yrði gagnkynhneigður maður spurður sömu spurningar? Verkalýðsbaráttan aldrei verið jafn mikilvæg Einkamálefni forsetaframbjóðanda, verkalýðsdagurinn og háskólamótmæli „Hinsegin fólk þekkir vel að vera smættað niður í einkalíf sitt“ Hátíðardagskrá víða um land á verkalýðsdaginn Litaðir seðlar til skoðunar og málið á mjög viðkvæmu stigi Sagðist ætla að nota tíu milljón króna kókaín allt sjálfur Arnór Sighvatsson settur varaseðlabankastjóri fjármálastöðugleika Sér eftir Landsdómsmálinu: „Ég myndi aldrei gera þetta svona aftur“ Íslenskar stjörnur fái peninga að gjöf til að leggja undir í veðmálum Sjá meira