Fann örlagaríkan gítar 45 árum síðar: „Ég brast í grát“ Ólafur Björn Sverrisson skrifar 3. júlí 2022 00:01 Randy Bachmann hélt tónleika með gítarnum í Tokyo, borginni sem gítarinn fannst loks í. AP Meðlimur hljómsveitarinnar Guess Who hefur loks fengið uppáhalds gítarinn sinn aftur í hendurnar, 45 árum eftir að honum var stolið. Aðdáandi hljómsveitarinnar rakst á gítarinn í Tokyo borg og kom honum til skila.
45 ára leit Randy Bachmann að Gretsch gítarnum sínum er lokið en gítarinn notaði Bachmann meðal annars til að semja American Woman, sem er vinsælasta lag hljómsveitarinnar Guess Who. Gítarnum var stolið á hóteli í Toronto árið 1977. „Kærastan mín er hérna með mér,“ sagði Bachmann þegar hann fékk gítarinn afhentan frá japönskum tónlistarmanni sem hafði keypt gítarinn í Tokyo árið 2014. Randy Bachmann er nú 78 ára að aldri og búinn að segja skilið við hljómsveitina frægu Guess Who. Hann segir alla sína gítara einstaka á sinn hátt en hinn appelsínuguli Gretsch 6120 frá árinu 1957, sem hann keypti á unglingsárum, er í sérstöku uppáhaldi. Bachmann segist hafa safnað lengi fyrir gítarnum og unnið við ýmis konar störf til að eiga fyrir honum. Grét í þrjá daga „Gítarinn var líf mitt. Hann var hamarinn minn og verkfærið til að semja lög, búa til tónlist og pening,“ sagði Bachmann þegar hann fékk gítarinn loks í hendurnar í kanadíska sendíráðinu í Tokyo. „Þegar honum var stolið frá mér, grét ég í þrjá daga - hann var hluti af mér. Þetta var mikið áfall.“ Hann hafi í kjölfarið keypt um 300 gítara til að reyna að finna einhvern sem gæti fyllt í skarðið, en án árangurs. Bachmann hefur í viðtölum oft talað um söknuðinn við að missa gítarinn. Árið 2020 heyrði aðdáandi sögu Bachmanns og hóf leit á netinu sem endaði með því að gítarinn fannst í búð í Tokyo tveimur vikum síðar. Aðdáandinn, William Long, notaði skrámu á gítarnum, sem sést vel á gömlum myndum til að bera kennsl á þann rétta.
Tónlist Mest lesið Ekki með mönnum á hennar aldri því „þeir eru allir látnir“ Lífið Potter-stjarna harmar hvernig fór með Rowling Bíó og sjónvarp Minningar um líf sem er að hverfa Lífið Sígó eftir hvern hring og undir lokin þurfti að lyfta Mari upp úr stólnum en hún hljóp af stað Lífið Sagan á bak við djarft listaverk Ásdísar Ránar Lífið Óstundvísi Steina sögð kosta tugi milljóna dollara Lífið „Kveiktum næstum í öllu sumarbústaðalandinu“ Lífið Swing og hópkynlíf fyrir byrjendur! Lífið Lolla í Litlu hryllingsbúðinni:„Þetta er auðvitað geggjað hlutverk“ Lífið MANOWAR til Íslands í fyrsta sinn Tónlist Fleiri fréttir Ekki með mönnum á hennar aldri því „þeir eru allir látnir“ Minningar um líf sem er að hverfa Lolla í Litlu hryllingsbúðinni:„Þetta er auðvitað geggjað hlutverk“ Jón Daði og María Ósk eignuðust dreng Tíu ár og aukin meðvitund í bransanum Hvetur fólk til þess að leika sér Sígó eftir hvern hring og undir lokin þurfti að lyfta Mari upp úr stólnum en hún hljóp af stað Annie Mist og Frederik eignuðust dreng Hljómborðsleikari ELO fallinn frá Engir palestínskir fánar í Eurovision-höllinni Mikið fjör á opnun kosningaskrifstofu Gnarr Sjarmerandi og seiðandi á sjötugsaldri Nemendur Flóaskóla slá í gegn með Langspilin sín „Kveiktum næstum í öllu sumarbústaðalandinu“ „Nútíminn er trunta“ Sagan á bak við djarft listaverk Ásdísar Ránar Rithöfundurinn Paul Auster er látinn „Eurovision mamman“ með gleði og kærleika að vopni Múgur og margmenni fylgdust með ótrúlegu ostakúluáti „Hin raunverulegu stólaskipti fóru fram í dag“ Óstundvísi Steina sögð kosta tugi milljóna dollara Gerða og glæsilegar gellur á Edition Swing og hópkynlíf fyrir byrjendur! Snorri og Harpa selja á Njálsgötu Halda samstöðutónleika á sama tíma og Ísland keppir í Eurovision Una Torfa negldi slagara með Fleetwood Mac Maikai-hjónin eignuðust stúlku Bitcoin fjárfestar gerðu sér glaðan dag í Grósku Hvernig á að kenna hundi að rekja spor og slaka á Disneydraumurinn varð loks að veruleika Sjá meira