Kolbeinn í botnbaráttu í fyrsta sinn: „Erfitt að vera utan vallar“ Sindri Sverrisson skrifar 14. ágúst 2020 16:30 Kolbeinn Sigþórsson í leiknum við Östersund í fyrrakvöld. VÍSIR/GETTY
Landsliðsframherjinn Kolbeinn Sigþórsson sneri aftur til keppni í gær en náði ekki að koma í veg fyrir enn eitt tap AIK sem er einu stigi frá botnsæti sænsku úrvalsdeildarinnar í fótbolta. Kolbeinn hafði verið frá keppni í rúman mánuð þegar hann lék seinni hálfleikinn í 1-0 tapi gegn Östersund í gær. Í fjarveru Kolbeins hefur AIK gengið allt í óhag, enn verr en fyrr á leiktíðinni, en liðið vann aðeins einn leik af níu þá daga sem Kolbeins naut ekki við. Kolbeinn segir í samtali við Fotbollskanalen að það hafi verið afar erfitt að fylgjast með sínu liði síðustu vikur. „Já, auðvitað. Ég vil vera á vellinum og reyna að hjálpa til og nýta mína reynslu. Þegar þú getur ekki sinnt þínu starfi, ert á hliðarlínunni og sérð að liðið nær ekki að gera það sem að allir vilja, þá er erfitt að vera utan vallar. Það er allt auðveldara þegar hlutirnir ganga vel en svona er boltinn og við verðum að átta okkur á þeirri stöðu sem við erum í. Við verðum að snúa genginu við eins fljótt og hægt er,“ sagði Kolbeinn, feginn að vera farinn að geta spilað aftur. „Það var frábært að komast aftur inn á völlinn. Ég hefði viljað gera það fyrr því ég hef misst af níu leikjum, en ég er ánægður með að vera kominn aftur og vonandi get ég staðið fyrir mínu,“ sagði Kolbeinn. Ný reynsla fyrir mig Kolbeinn kom til AIK í fyrravor eftir leiðindatíma hjá Nantes í Frakklandi þar sem meiðsli og deilur við eiganda félagsins urðu til þess að hann spilaði varla fótbolta í tvö og hálft ár. Hann hefur einnig spilað með Ajax og AZ í Hollandi, þar sem hann raðaði inn mörkum, og aldrei leikið með liði í eins slæmri stöðu og AIK er nú. „Ég hef aldrei verið í botnbaráttu áður svo þetta er ný reynsla fyrir mig. Það hefur samt gengið upp og niður, og pressa verið til staðar, hvar sem ég hef verið en með öðrum hætti en núna. Við erum með nógu gott lið til að snúa genginu við,“ segir Kolbeinn sem er ekki viss um að hann sé kominn í líkamlegt ástand til að byrja leikinn við Falkenberg á sunnudag. „Við verðum að sjá til. Ég spilaði mínar fyrstu mínútur núna og hafði bara viku til að undirbúa mig fyrir þennan leik. Við sjáum til hvernig ég jafna mig en ef það gengur vel eru allar líkur á að ég verði klár í slaginn.“
Sænski boltinn Fótbolti Tengdar fréttir Kolbeinn lék sinn fyrsta leik í rúman mánuð Þrjú Íslendingalið voru í eldlínunni í sænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld. 13. ágúst 2020 19:02 Kolbeinn loksins með AIK sem er í fallbaráttu Kolbeinn Sigþórsson, annar markahæstu landsliðsmanna Íslands frá upphafi, verður á ný í leikmannahópi AIK gegn Östersund annað kvöld. 12. ágúst 2020 16:10 Þjálfari Kolbeins rekinn Rikard Norling hefur verið rekinn sem þjálfari sænska knattspyrnufélagsins AIK, innan við tveimur árum eftir að hafa gert liðið að meistara. Landsliðsframherjinn Kolbeinn Sigþórsson mun því fá nýjan þjálfara. 27. júlí 2020 12:00 Mest lesið „Það er ekkert sem stoppar Remy Martin“ Sport Arna spilar með FH næstu þrjú árin Íslenski boltinn Þórsara dreymir um heimavallarrétt Körfubolti Bjarki Már og félagar í góðri stöðu Handbolti Boehly fær að fjúka 2027 Enski boltinn Umfjöllun og viðtöl: Keflavík - Njarðvík 127-114 | Engin bikarþynnka og sigur sem telur meira en aðrir Körfubolti „Verð dæmdur fyrir þetta restina af ævi minni“ Sport Arnór frá út tímabilið eftir ömurlega tæklingu Ísraelans Fótbolti PSG mætir Lyon í undanúrslitum Fótbolti „Greinilega áherslubreytingar hjá dómurum varðandi ástríðu og tilfinningar“ Körfubolti Fleiri fréttir Boehly fær að fjúka 2027 Arna spilar með FH næstu þrjú árin PSG mætir Lyon í undanúrslitum Barcelona ekki í vandræðum með Brann Arnór frá út tímabilið eftir ömurlega tæklingu Ísraelans Tonali ákærður á Englandi fyrir fimmtíu meint brot Sjáðu mörkin fimm úr úrslitaleik Breiðabliks og ÍA Segir von á mikilvægum tilboðum í Albert Ákærður og horfir fram á fangelsisdóm fyrir kossinn óumbeðna Ætlar að kynna ensku úrvalsdeildina fyrir sundlaug í stúkunni Hulunni svipt af nýrri treyju íslenska landsliðsins „Ég er tilbúinn“ „Bjóst ekki við að þetta myndi enda svona“ „Flottur sigur og heilt yfir fín frammistaða“ Fimmtu undanúrslitin á sjö árum Umfjöllun: Breiðablik - ÍA 4-1 | Blikar unnu Lengjubikarinn með sigri gegn Skaganum Lyon nokkuð örugglega í undanúrslit Grindvíkingar leggja niður yngri flokka Rasmus til Eyja Messi: Ég hætti þegar ég get ekki lengur hjálpað mínum liðsfélögum Skagamenn geta unnið fyrsta titil sinn í meira en tvo áratugi Meiðslavandræði á Man. City fyrir stórleikinn á móti Arsenal Sigurinn á Íslandi var „gjöf til úkraínsku þjóðarinnar“ Man. United sagt vilja fá stjóra Úlfanna í þjálfarateymið sitt Albert átti ekki bara eitt heldur tvö af flottustu mörkum umspilsins Haaland baðst afsökunar eftir leik Myndasyrpa frá tapinu grátlega gegn Úkraínu Þór/KA sækir markvörð til Bandaríkjanna Pólland síðasta þjóðin inn á EM „Mér finnst ég hafa nóg fram að bjóða í þessu liði“ Sjá meira
Kolbeinn lék sinn fyrsta leik í rúman mánuð Þrjú Íslendingalið voru í eldlínunni í sænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld. 13. ágúst 2020 19:02
Kolbeinn loksins með AIK sem er í fallbaráttu Kolbeinn Sigþórsson, annar markahæstu landsliðsmanna Íslands frá upphafi, verður á ný í leikmannahópi AIK gegn Östersund annað kvöld. 12. ágúst 2020 16:10
Þjálfari Kolbeins rekinn Rikard Norling hefur verið rekinn sem þjálfari sænska knattspyrnufélagsins AIK, innan við tveimur árum eftir að hafa gert liðið að meistara. Landsliðsframherjinn Kolbeinn Sigþórsson mun því fá nýjan þjálfara. 27. júlí 2020 12:00
Umfjöllun og viðtöl: Keflavík - Njarðvík 127-114 | Engin bikarþynnka og sigur sem telur meira en aðrir Körfubolti
Umfjöllun og viðtöl: Keflavík - Njarðvík 127-114 | Engin bikarþynnka og sigur sem telur meira en aðrir Körfubolti