Neville: Sýndu smá andskotans virðingu

Phil Neville á hliðarlínunni í Bandaríkjunum.
Phil Neville á hliðarlínunni í Bandaríkjunum. AFP

Phil Neville, knattspyrnustjóri Inter Miami í bandarísku MLS-deildinni, var í vondu skapi á blaðamannafundi liðsins á dögunum.

Liðið hefur ekki farið vel af stað í deildinni á tímabílinu og situr sem stendur í 12. sæti Austurdeildarinnar með 15 stig eftir 13 leiki.

Liðið hefur aðeins unnið fimm leiki til þessa og tapað átta en liðið hefur nú tapað tveimur leikjum í röð.

„Má ég klára að tala,“ sagði Neville þegar að blaðamaður greip fram í fyrir honum um helgina eftir tap gegn Orlando City á heimavelli.

„Ég gríp ekki fram í fyrir þér þegar að þú ert að spyrja þinna spurninga. Sýndu smá andskotans virðingu,“ sagði Neville meðal annars.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert