Álagstíminn orðinn að gæðastund í eldhúsinu Matseðill.is 11. október 2021 13:18 Lamba kebab með feta-agúrku jógúrtsósu Matseðill.is er nýr valkostur í heimsendum matarpökkum með hráefni í fjölbreyttar máltíðir. „
Kvöldmatartíminn er orðinn að gæðastund sem allir á heimilinu taka þátt í og læra um leið að elda fjölbreytta rétti. Við heyrum það frá viðskiptavinum okkar að þeim finnst gaman að geta eldað með börnunum sínum sem þurfa ekki einu sinni að kunna að lesa til að geta hjálpað til, þau fylgjast bara með uppskriftinni í myndbandinu okkar, ýta á pásu og lýsa því sem á að gera næst“, segir Karitas Kjartansdóttir McCrann sem rekur fyrirtækið Matseðill ásamt Þorkatli Andréssyni matreiðslumanni, oftast kallaður Keli. Nýr valkostur með matarpökkum Matseðill er matreiðslufyrirtæki sem útbýr og sendir matarpakka heim að dyrum með hráefni í fjölbreyttar og góðar máltíðir sem fólk eldar sjálft heima. Uppskriftirnar að réttunum eru aðgengilegar á myndböndum á heimasíðunni þeirra sem Karítas segir að hafi slegið í gegn hjá viðskiptavinum og gert alla aldurshópa heimilisins spennta fyrir eldamennskunni. Sleppa búðarferð með þreytt börn Mottó Mateðils eru góðir réttir sem fljótlegt er að elda svo meiri tími skapist í samveru með fjölskyldunni. „Þegar við Keli hittumst fyrst þá er hann með eina eins árs og aðra 6 ára og ég með eins árs tvíbura. Við erum bæði mikið áhugafólk um mat og við vorum bæði í þeirri stöðu að sjá um kvöldmatinn á okkar heimilum. Hann var kominn aðeins af stað með þessa hugmynd og þetta small hjá okkur. Svaraði okkar eigin þörf á að einfalda lífið og taka út tímann í umferðinni, búðarferðina með þreytt börn og ná að rigga upp næringarríkri máltíð,“ segir Karítas. Nauta Enchilada með avókadó og pico de gallo. Í stað þess að þurfa að versla í matinn eftir langan vinnudag velja viðskiptavinir sér matarpakka sem hentar sínu heimili á Matsedill.is og fá hann sendan heim í hverri viku. Innblásturinn að réttunum er fenginn frá öllum heimshornum – meðal annars Ítalíu, Marokkó, Grikklandi, Mexíkó, Tælandi og Indlandi. Í boði er einnig barnamatseðill sem inniheldur þrjá einfalda rétti sem krökkum finnst góður og þarf einungis að hita upp. Þeim fylgir einnig box með ávöxtum og grænmeti sem búið er að skera niður, sem sparar tíma og fyrirhöfn. Óskir viðskiptavina skipta þau miklu máli og til að koma til móts við íslensk heimili, sem eru fjölbreytt og mismunandi samsett, er hægt að panta mismunandi skammtastærðir fyrir hvern dag. Þannig er hægt að panta fyrir fjóra einn daginn, tvo hinn og svo kannski átta þriðja daginn. Einnig er hægt að velja „Kassa vikunnar“ og þá sér Matseðill um að velja matarpakkann fyrir heimilið. Tómat- og basilpasta með milanese kjúklingi Framleiða matinn sjálf Matseðill fór í gang seinasta apríl og hafa viðtökurnar verið framar vonum. Mikil vinna er lögð í hráefni, krydd og marineringu af matreiðslumanninum Kela sem hefur margra ára reynslu úr veitingageiranum, meðal annars sem matreiðslumaður á Rok og Apótekinu. „Maturinn okkar er heimilislegur og fjölbreyttur í bragði. Við framleiðum matinn sjálf, sósur og marineringar, hummus, salöt, kimtchi og fleira,“ útskýrir Karítas. Það er ekki nóg með að allt sé útbúið af þeim heldur smíðuðu þau iðnaðareldhúsið sjálf. „Við fengum Önnu Svövu og Gylfa, eigendur Valdísar ísbúðar með okkur inn í fyrirtækið en Gylfi og Keli smíðuðu og flotuðu í sex mánuði með iðnaðarmönnunum meðan ég vann í heimasíðunni og sópaði gólfið. Svo fór allt í gang hjá okkur í apríl. Við skemmtum okkur mjög mikið í vinnunni og höfum lært mikið af þessu, til dæmis að taka myndir og klippa myndbönd. Við merkjum allar umbúðirnar sjálf og reynum að nota sem minnst af plasti og óþarfa pappír“ segir Karitas. Sósur og salöt eru framleidd frá grunni af þeim Karítas og Þorkeli. Sífellt eru að bætast við nýjir og spennandi réttir og nú til dæmis erum við að vinna að Ketó réttum sem munum koma á matseðilinn. Matseðillinn er í stöðugri þróun og segir Karitas að þau vilji leyfa viðskiptavinum að hafa áhrif. „Við bjuggum til dæmis til leik þar sem viðskiptavinir velja milli nokkurra hráefna og við búum svo til nýjan rétt úr þeim. Þannig getur fólk haft áhrif á matseðilinn. Fyrsti rétturinn sem við unnum með þessari aðferð er þegar kominn inn á síðuna og margar spennandi nýjungar framundan.“ Matarráð Matseðils - Miðjarðarhafskjúklingur með pasta skeljum. „Við bjuggum til dæmis til leik þar sem viðskiptavinir velja milli nokkurra hráefna og við búum svo til nýjan rétt úr þeim. Þannig getur fólk haft áhrif á matseðilinn." Nánari upplýsingar er að finna á matsedill.is
Matur Hús og heimili Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Base parking gjaldþrota Viðskipti innlent Fyrsta flugi Icelandair til Pittsburgh fagnað Viðskipti innlent Dagar Workplace eru taldir Viðskipti erlent Fóru í fyrsta flugið milli Calgary og Keflavíkurflugvallar Viðskipti innlent Snillingur í útlöndum: „Þegar vinirnir keyptu sér nammi keypti ég mér diskókúlur“ Atvinnulíf Fyrirtæki hvött til að halda upp á daginn í dag og gera sér dagamun Atvinnulíf Rauf sátt vegna Max-málsins og gæti átt yfir höfði sér refsimál Viðskipti erlent Segir að Play sé og verði áfram með höfuðstöðvar á Íslandi Viðskipti innlent Forstjóri Play íhugar að fljúga frekar til Íslands en frá Viðskipti innlent Greiðsluáskorun Samstarf Fleiri fréttir Bein útsending: Opinn kynningarfundur vegna útboðs Íslandshótela Greiðsluáskorun VÍS gefið yfir 1.100 fjölskyldum barnabílspegla í sængurgjöf Hraðhleðslur spretta upp sem gorkúlur - tvær opna á Þórshöfn Nýjung í bílaviðskiptum á netinu – Bland og Frágangur í samstarf Polestar 4 kominn í Polestar Reykjavík – umhverfisvænasti bíll Polestar Einstakt tækifæri til að sjá einn merkasta sportbíl sögunna - Porsche 911 Dakar Hver verður Iðnaðarmaður ársins 2024 - kosning Kolefnasporlausir bílar fyrir 2030? Polestar er með plan Neytendur kunna að meta Landlaxinn og Landbleikjuna Dýrmætustu og sjaldgæfustu Mustang bílar landsins á afmælissýningu Mustang Tölum um neytendamál! Mættu tímanlega í pallaráðgjöf hjá BYKO Bíllinn leggur meðan ég fæ mér drykk - smart #3 reynsluakstur GreenCoat er umhverfisvænasta litaða stálklæðningin sem völ er á Nú er hægt að elta góða veðrið um landið með kortavef Já.is Einblína á trausta ávöxtun til langs tíma Fjölbreytt vöruúrval og ein bestu verð hérlendis Toyota sýnir úrvals fyrirtækjabíla á Verk og vit Nýr Toyota Yaris Hybrid frumsýndur á laugardag Leið eins og stjórnanda geimskips Hver verður iðnaðarmaður ársins 2024? Sjá meira