Barst tilkynning um reyk úr bíl í Laugardal

Slökkviliðið er að störfum í Laugardal.
Slökkviliðið er að störfum í Laugardal. Ljósmynd/Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins

Slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning um reyk sem lagði úr bíl í Laugardal uppúr klukkan þrjú í dag.

Varðstjóri slökkviliðs segir að reykurinn hafi að endingu ekki fundist og er aðgerðum því lokið. 

Spurður um önnur verkefni slökkviliðs í dag segir varðstjóri að ekkert stórfenglegt hafi komið upp, mikið hafi þó verið að gera í sjúkraflutningum eins og undanfarið hefur verið, nú sérstaklega í Covid-tengdum verkefnum.

Fréttin hefur verið uppfærð.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert