Fyrsta liðið síðan KA 2002 til að komast í oddaleik 2-0 undir Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 31. maí 2023 10:31 Haukar 2023 og KA 2002 eru einu liðin í sögu úrslitakeppninnar sem hafa knúið fram oddaleik eftir að hafa lent 2-0 undir í úrslitaeinvígi. vísir/hulda margrét/þórir tryggvason Haukar eru fyrsta liðið í 21 ár sem tryggir sér oddaleik eftir að hafa lent 2-0 undir í einvígi um Íslandsmeistaratitilinn í handbolta karla.
Það blés ekki byrlega fyrir Haukum eftir að hafa tapað fyrstu tveimur leikjunum gegn ÍBV í einvíginu um Íslandsmeistaratitilinn. Haukar voru þó ekki af baki dottnir og minnkuðu muninn í 2-1 með sigri í Eyjum á föstudaginn, 28-34. Strákarnir hans Ásgeirs Arnar Hallgrímssonar fylgdu því svo eftir með því að vinna fjórða leik liðanna á Ásvöllum í fyrradag, 27-24. Haukar eru því aðeins einum sigri frá Íslandsmeistaratitlinum eftir að hafa verið komnir með bakið þétt upp að veggnum fræga. Oddaleikur Hauka og ÍBV fer fram í Eyjum í kvöld. Síðan úrslitakeppnin var tekin upp tímabilið 1991-92 hefur það aðeins tvisvar sinnum gerst að lið komi til baka eftir að hafa lent 2-0 undir í úrslitaeinvígi. KA lenti 2-0 undir gegn Val í úrslitaeinvíginu 2002 en jafnaði metin og tryggði sér svo Íslandsmeistaratitilinn með sigri í oddaleik í Valsheimilinu. Ekkert lið hafði síðan komið til baka úr 2-0 stöðu og knúið fram oddaleik þar til Haukar gerðu það í fyrradag. Þeir geta svo leikið sama leik og KA með sigri í Eyjum á morgun. Haukar hafa þegar brotið blað í sögu úrslitakeppninnar en þeir eru fyrsta liðið sem endar í 8. sæti deildakeppninnar til að komast í úrslit um Íslandsmeistaratitilinn. Haukar unnu aðeins níu leiki í Olís-deildinni en hafa þegar unnið sjö leiki í úrslitakeppninni. Þeir slógu Val út í átta liða úrslitum, 2-0, og Aftureldingu í undanúrslitunum, 3-2. Leikur ÍBV og Hauka hefst klukkan 19:00 í kvöld og verður sýndur beint á Stöð 2 Sport. Upphitun Seinni bylgjunnar hefst klukkan 18:00.
Olís-deild karla Haukar ÍBV KA Mest lesið Kvaddi stuðningsmennina og kenndi þeim lag um nýja stjórann Fótbolti Kristján Guðmundsson: Aldrei brot og mjög slök frammistaða hjá dómurum leiksins Íslenski boltinn „Þetta einvígi er rétt að byrja“ Handbolti Uppgjör: FH - Afturelding 29-32 | Mosfellingar taka forystuna Handbolti Indiana Pacers í úrslit Austurdeildarinnar eftir sigur í oddaleik Körfubolti Schauffele hélt út og tryggði sér sigur með fugli á átjándu Golf Lærisveinar Freys einum leik frá því að takast hið ómögulega Fótbolti „Þetta eru tvö dúndurlið“ Körfubolti Meistararnir köstuðu frá sér þriggja marka forystu Fótbolti „Þarf að sjá eld í staðinn fyrir einhverja hræðslu“ Körfubolti Fleiri fréttir „Þetta einvígi er rétt að byrja“ Bjarki og félagar bikarmeistarar fjórða árið í röð Uppgjör: FH - Afturelding 29-32 | Mosfellingar taka forystuna Gummersbach heldur í Evrópuvon eftir sigur í Íslendingaslag Haukur og félagar lentir undir í úrslitaeinvíginu eftir vítakeppni Strákarnir hans Gumma komu til baka í öðrum spennutrylli Mættust síðast í úrslitum fyrir aldarfjórðungi Uppgjörið, viðtöl og myndir: Valur - Olympiacos 30-26 | Einum leik frá Evróputitli Ómar og Viggó röðuðu inn mörkum í sigrum Bjarki og félagar í úrslit eftir öruggan sigur „Umgjörðin er bara engu lík, gæsahúð að hlaupa inn á völlinn“ „Þurfum bara okkar besta leik í vetur“ Tíunda tapið í röð hjá Íslendingaliði Balingen Grín sem snerist mjög fljótt upp í alvöru Uppgjörið, viðtöl og myndir: Valur - Haukar 28-25 | Valskonur Íslandsmeistarar Íslendingarnir gerðu lítið þegar Skara féll úr leik Jafnt í Íslendingaslag í undanúrslitum Blaðamannafundur fyrir úrslitaleik Vals í Evrópubikarnum Úr húsvarðarstarfi í atvinnumennsku Uppgjörið og viðtöl: Valur - Afturelding 27-29 | Mosfellingar í úrslit Teitur skoraði fimm og Flensburg heldur naumlega í við toppliðin „Okkur dauðlangar í meira“ Íslendingaliðið tryggði sér oddaleik Ólafur Gústafsson aftur heim í FH: „Gleðidagur fyrir okkur FH-inga“ Einar hættir með kvennalið Fram „Við erum alveg róleg“ Uppgjör: Haukar - Valur 22-30 | Meistararnir í 2-0 Algjör niðurlæging sveina Dags sem hafa aldrei tapað stærra Vonar að pabbi sinn komist ekki á ÓL Heimsmeistararnir stöðvaðir á síðustu stundu Sjá meira