„Við höfum ekki fengið sanngjarna gagnrýni“ Atli Arason skrifar 19. mars 2023 21:30 Kristjana Eir Jónsdóttir, þjálfari Fjölnis. Vísir/Diego. Kristjana Eir Jónsdóttir, þjálfari Fjölnis, var bæði ánægð og svekkt eftir 18 stiga tap gegn Haukum í Subway-deild kvenna í körfubolta í kvöld. „
Ég er svekkt með margt en ánægð með eitthvað,“ sagði Kristjana í viðtali við Vísi eftir leik. „Við hættum ekki að berjast, við vorum að gera ákveðnar varnarfærslur vel og þegar við hlupum kerfin okkar rétt þá gekk það upp. Við vorum hins vegar að gefa þeim [Haukum] allt of mikið af opnum skotum og ég er minnst ánægð með það og orkuna sem við spiluðum með varnarlega á löngum köflum,“ svaraði Kristjana, aðspurð út í hvaða atriði hún væri ánægð með. Brittany Dinkins dróg vagninn í stigaskorun fyrir Fjölni í kvöld en Kristjana vill beina athyglinni að ungu stelpunum í liði Fjölnis en hún telur þær hafa fengið ósanngjarna gagnrýni á tímabilinu. „Ég er spurð út í Dinkins eftir hvern einasta leik. Svarið mitt breytist ekki neitt, það er gífurlegur munur að hafa hana í liðinu. Það sem mér finnst hins vegar verið minnst talað um í vetur eru ungu stelpurnar hjá okkur. Við erum með þrjá atvinnumenn og svo erum við með Shönnu [Dacanay] sem er eldri. Síðan eru allar hinar í 12. flokki eða yngri. Mér finnst eins og við höfum ekki fengið sanngjarna gagnrýni miðað við það. Við erum með Heiði [Karlsdóttur] sem er búin að vera frábær í síðustu leikjum, Stefanía [Hansen] er ekki hérna í kvöld en hún er búin að vera að stíga upp og svo er Bergdís [Anna Magnúsdóttir] búin að vera að koma inn með þvílíkan kraft. Þetta eru allt stelpur sem eru nýorðnar 18 ára.“ „Það er ekki oft sem lið eru að byggja svona mikið upp á varamönnum. Heiða [Ella Ásmundsdóttir] er 16 ára, hún er ekki einu sinni komin með æfingarakstur. Hún er að spila fullt af mínútum í dag og búinn að spila fullt af mínútum í vetur. Mér finnst þær vera búnar að fá ósanngjarna gagnrýni. Ég veit að Keflavík gerði þetta fyrir einhverjum árum en þegar Keflavík gerði þetta þá voru þær stelpur allar einum til tveim árum eldri heldur en þessar stelpur [í Fjölni] eru núna. Það sem hefur farið mest í mig er að ungu stelpurnar í Fjölni eru ekki að fá það kredit sem þær eiga skilið,“ sagði Kristjana Næsti leikur Fjölnis er á heimavelli gegn Val á miðvikudaginn. Kristjana telur sína stelpur vera vel undirbúnar fyrir þá viðureign. „Það sem við getum tekið jákvætt úr þessum leik er að við héldum áfram að berjast. Urté hélt áfram að skjóta og hún fór að hitta í lokin, sem er mjög gott. Það hefur svolítið háð henni að ef hún byrjar illa þá verður hún allt of pirruð en hún gerði það ekki í kvöld.“ „Við héldum áfram að berjast og það er það sem við ætlum að taka með okkur í næsta leik. Við ætlum samt frekar að byggja á fjórða leikhluta gegn Val úr síðasta leik, frekar en að byggja ofan á eitthvað frá þessum leik [gegn Haukum]. Það er ekki nema mánuður síðan við spiluðum á móti Val síðast, þannig við eigum að vera vel undirbúnar fyrir það verkefni,“ sagði Kristjana Eir Jónsdóttir, þjálfari Fjölnis, að endingu.
Subway-deild kvenna Fjölnir Körfubolti Tengdar fréttir Leik lokið: Haukar – Fjölnir 90-74 | Heimakonur ekki í vandræðum Haukar lentu ekki í teljandi vandræðum með Fjölni í Subway-deild kvenna í körfubolta. Leik lauk með 16 stiga sigri Hauka sem eru áfram í 2. sæti deildarinnar. Umfjöllun og viðtöl væntanleg. 19. mars 2023 20:15 Mest lesið Sara hrundi niður listann eftir leiðréttingar Sport Virk sprengja úr seinni heimsstyrjöldinni undir leikvangi Mainz Fótbolti „Tel mjög vafasamt að klukkan hafi verið sett af stað á réttum tíma“ Körfubolti Sjáðu ótrúlegan flautuþrist Þorvaldar Orra Körfubolti Magnaðasta mark sumarsins á fyrsta degi þess? Fótbolti LA Rams velja nýliðana í 16 milljón dollara glæsivillu Sport „Frábær úrslit fyrir okkur og félagið“ Fótbolti „Vakna í hádeginu á morgun og fer að hugsa um Valsarana“ Körfubolti Slot staðfestir að hann vilji taka við Liverpool Enski boltinn „Fyrst og fremst var þetta vinnuframlag frá öllum“ Fótbolti Fleiri fréttir Sjáðu ótrúlegan flautuþrist Þorvaldar Orra „Tel mjög vafasamt að klukkan hafi verið sett af stað á réttum tíma“ „Vakna í hádeginu á morgun og fer að hugsa um Valsarana“ Uppgjörið: Njarðvík - Þór Þ. 98-97 | Þorvaldur Orri tryggði Njarðvík sigur með flautukörfu í framlengingu Friðrik Ingi sæmdur gullmerki Njarðvíkur Þórsarar hafa spilað þrjá oddaleiki síðan Njarðvík var síðast í oddaleik Sjokkeruðu Celtics menn með þriggja stiga skotsýningu „Heldur betur búinn að vinna hjörtu Keflvíkinga“ Tekið á móti Tryggva eins og Hollywood stjörnu Hristir hausinn yfir „glórulausum“ og „smásálarlegum“ ummælum Uppgjörið og viðtöl: Haukar 73-75 Stjarnan | Stjarnan áfram eftir naglbít Martin frábær í öruggum sigri „Við erum ekki með stráka sem þurfa að vera hetjur“ Sjáðu mömmu Remy Martin syngja og dansa á hliðarlínunni Luka og félagar jöfnuðu: „Þetta var 90s körfubolti eins og hann gerist bestur“ Sérfræðingarnir ekki sammála og mikil spenna fyrir oddaleikinn „Ég er bara mjög spenntur, þeir eru klárlega ‘the team to beat’“ „Maður hugsar ekki þannig sem þjálfari“ Uppgjör og viðtöl: Álftanes - Keflavík 85-114 | Sjóðheit Keflavíkursókn blés nýliðana burt Murray kramdi Lakers-hjörtun Viðar Örn: Stoltur af liðinu fyrir að skilja allt eftir á gólfinu Einar Árni hættur hjá Hetti „Erfitt að vinna þá þrisvar sinnum í röð“ Aþena er komið í úrslitaeinvígi um sæti í Subway-deild kvenna „Fannst að við hefðum átt að ná þessum mómentum fyrr“ Uppgjör: Þór Þ. - Njarðvík 84-91 | Gestirnir tryggðu sér oddaleik Uppgjör og viðtöl: Höttur - Valur 97-102 | Valsmenn í undanúrslit eftir framlengdan leik á Egilsstöðum Losnar stjarna Aþenu úr frystiklefa Brynjars Karls? Skoraði 35 stig í fyrri hálfleik „Mér finnst þetta fullmikið“ Sjá meira
Leik lokið: Haukar – Fjölnir 90-74 | Heimakonur ekki í vandræðum Haukar lentu ekki í teljandi vandræðum með Fjölni í Subway-deild kvenna í körfubolta. Leik lauk með 16 stiga sigri Hauka sem eru áfram í 2. sæti deildarinnar. Umfjöllun og viðtöl væntanleg. 19. mars 2023 20:15
Uppgjörið: Njarðvík - Þór Þ. 98-97 | Þorvaldur Orri tryggði Njarðvík sigur með flautukörfu í framlengingu
Uppgjör og viðtöl: Höttur - Valur 97-102 | Valsmenn í undanúrslit eftir framlengdan leik á Egilsstöðum