Arion banki hækkar vexti um 0,4 prósentustig – Breytilegir vextir nú 4,29 prósent

Tveir af þremur stærstu bönkum landsins hafa hækkað íbúðarlánavexti í gær og í dag. Sá þriðji mun líklega fylgja á eftir fyrir vikulok. Ástæðan er stýrivaxtahækkun Seðlabanka Íslands í síðustu viku.

Arion banki
Auglýsing

Arion banki hefur hækkað óverð­tryggða breyti­lega íbúða­lána­vexti sína um 0,4 pró­sentu­stig í 4,29 pró­sent. Bank­inn hefur sömu­leiðis hækkað óverð­tryggða fasta vexti til þriggja ára um 0,6 pró­sentu­stig í 5,24 pró­sent. 

Bank­inn fylgir þar með í fót­spor Lands­bank­ans, stærsta banka lands­ins, sem til­kynnti um hækkun vaxta í gær. Þetta ger­ist í kjöl­far þess að Seðla­banki Íslands ákvað í síð­­­ustu viku að hækka stýri­vexti um 0,5 pró­­sent­u­­stig upp í tvö pró­­sent, en þeir vextir hafa nú hækkað um 1,25 pró­­sent­u­­stig úr 0,75 pró­­sentum í maí. 

Við­­búið var að allir lán­veit­endur á íbúða­lána­­mark­aði myndu hækka óverð­­tryggða vexti sína vegna þessa og Lands­­bank­inn varð fyrstu til þess. Hann að til­kynnti í gær að breyt­i­­legir vextir á óverð­­tryggðum íbúða­lánum Lands­­bank­ans myndu hækka um 0,35 pró­­sent­u­­stig. Þeir verða eftir breyt­ing­una 4,20 pró­­sent. 

Auglýsing
Fastir vextir á óverð­­tryggðum íbúða­lánum bank­ans til þriggja ára hækka um 0,30 pró­­sent­u­­stig og um 0,25 pró­­sent­u­­stig á óverð­­tryggðum íbúða­lánum til fimm ára. Lægstu fastir vextir á óverð­­tryggðum íbúða­lánum verða eftir breyt­ing­una 4,65 pró­­sent.

Búast má við því að Íslands­banki til­kynnti um vaxta­hækkun fyrir viku­lok. 

Hækkar útgjöld heim­ila strax

Ljóst er að hækkun á vöxtum Lands­­bank­ans, og hinna stóru bank­anna sem munu án efa fylgja í kjöl­farið á næstu dög­um, mun bíta í buddu lands­­manna. Stóru bank­­arnir þrír hafa sópað til sín íbúða­lánum frá síð­­asta vori sam­hliða því að hús­næð­is­verð hefur hækkað skarpt og upp­­hæðir lána sam­hliða hækkað mik­ið. Hlut­­deild banka í útistand­andi íbúða­lánum er nú um 70 pró­­sent en var 55 pró­­sent í byrjun árs 2020. 

Á sama tíma og þessi þróun hefur átt sér stað hefur orðið eðl­is­breyt­ing á lán­­tökum lands­­manna við það að hlut­­fall óverð­­tryggðra lána af öllum íbúða­lánum hefur hækkað gríð­­ar­­lega. Það var 27,5 pró­­sent í byrjun árs 2020 en er nú komið yfir 50 pró­­sent.

Hagn­aður stóru bank­anna þriggja: Lands­­bank­ans, Íslands­­­banka og Arion banka var 60 millj­­arðar króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins. Það er meiri hagn­aður en þeir hafa skilað innan heils árs frá 2015. Hagn­að­­ur­inn er drif­inn áfram af vaxta­­tekj­um, aðal­­­lega vegna íbúða­lána, og hærri þókn­ana­­tekj­­um. Vaxta­munur stóru bank­anna, sem er umtals­vert hærri en í sam­an­­burð­­ar­lönd­um, hefur hald­ist til­­­tölu­­lega stöð­ugur þrátt fyrir að banka­skattur hafi verið lækk­­aður umtals­vert.

Á mark­aðs­degi Arion banka sem fór fram fyrr í þessum mán­uði kom fram að bank­inn ætlar sér að greiða um og yfir 60 millj­arða króna til hlut­hafa í arð og með end­ur­kaup á bréfum á næst­unni. Sú upp­hæð bæt­ist við 25,5 millj­arða króna sem þeir hafa fengið á fyrstu níu mán­uðum árs­ins. Alls verða allt að 88 millj­arðar króna los­aðir til hlut­hafa frá byrjun yfir­stand­andi árs og þangað til að útgreiðslu­á­formum bank­ans er lok­ið.

Líf­eyr­is­­sjóð­irnir með bestu kjörin

Sem stendur bjóða líf­eyr­is­­sjóðir upp á hag­­stæð­­ustu óverð­­tryggðu íbúða­lán­in. Það gæti þó breyst í nán­­ustu fram­­tíð þegar næstu ákvarð­­anir um vaxta­töflu lána þeirra verða tekn­­ar. 

Gildi, þriðji stærsti líf­eyr­is­­­­sjóður lands­ins, býður bestu óverð­­­­tryggðu kjörin sem stend­­­­ur, 3,45 pró­­­­sent vexti, og Brú líf­eyr­is­­­­sjóður býður upp á 3,8 pró­­­­sent vext­i. 

Líf­eyr­is­­­­sjóður verzl­un­ar­manna, næst stærsti líf­eyr­is­­­­sjóður lands­ins, ákvað í síð­­­asta mán­uði að stofna nýjan lána­­­­flokk sjóðs­­­­fé­laga­lána og lánar nú óverð­­­­tryggð lán til íbúð­­­­ar­­­­kaupa með breyt­i­­­­legum vöxt­­­­um. Vextir hans eru nú 3,85 pró­­sent.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent