Landsvirkjun greiðir út 6,34 milljarða arð

Landsvirkjun greiðir út 6,34 milljarða í arð.
Landsvirkjun greiðir út 6,34 milljarða í arð. mbl.is/Ómar Óskarsson

Landsvirkjun greiðir 6,34 milljarða króna í arð til íslenska ríkisins fyrir árið 2020 samkvæmt samþykkt eigenda á aðalfundi félagsins. Kemur þetta fram í tilkynningu frá félaginu.

Á aðalfundi skipaði fjármála- og efnahagsráðherra einnig í stjórn Landsvirkjunar samkvæmt lögum um fyrirtækið en engar breytingar voru gerðar á skipan stjórnar frá fyrra starfsári.

Stjórnina skipa því enn þau Jónas Þór Guðmundsson, formaður, Álfheiður Ingadóttir, varaformaður, Jón Björn Hákonarson, Guðfinna Jóhanna Guðmundsdóttir og Gunnar Tryggvason.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert