Ríkissaksóknari áfrýjar dómi Brynjars Creed Ólafur Björn Sverrisson skrifar 22. júní 2022 13:34 Kolbrún Benediktsdóttir varahéraðssaksóknari sótti málið fyrir Héraðsdómi Reykjaness. Vísir/Rakel Ríkissaksóknari mun áfrýja dómi Héraðsdóms Reykjaness í máli Brynjars Creed til Landsréttar. Að sögn Kolbrúnar Benediktsdóttur, varahéraðssaksóknara sem rak málið fyrir héraðsdómi, snýr áfrýjunin að því að Brynjar verði jafnframt sakfelldur fyrir nauðgun, með því að hafa fengið stúlkur undir lögaldri til þess að framkvæma ýmsar kynferðislegar athafnir í gegnum netið.
Brynjar var meðal annars verið sakfelldur fyrir að nauðga þremur stúlkum undir lögaldri, í þeim tilfellum sem Brynjar hitti stúlkurnar. Fyrir að hafa fengið stúlkurnar til að senda sér myndbönd af sér í kynferðislegum athöfnum, til dæmis með því að stinga fingri í endaþarm og hafa kynferðismök með gervilim var Brynjar sakfelldur fyrir kynferðislega áreitni. „Það voru þrír ákæruliðir þar sem hann var ákærður fyrir nauðgun með því að láta stúlkurnar gera eitthvað við sjálfar sig og senda myndbönd af því. Það var ekki fallist á að það væri nauðgun þannig þess er óskað Landsréttur endurskoði þá niðurstöðu.“ Kolbrún segir sambærilegt mál ekki hafa áður komið upp og ekki hafi látið reyna á nauðgunarákvæðið með þessum hætti. „Við höfum dæmi um sakfellingu manna fyrir nauðgun sem láta brotaþola gera eitthvað með öðrum mönnum og horfa á. En svona dæmi þar sem brotið fer fram í gegnum netið en viðkomandi er ekki á staðnum, við teljum nauðsynlegt að fá Landsréttardóm um það.“ Fjölmörg önnur brot rannsökuð Greint var frá því í maí síðastliðnum að Lögreglustjórinn á Suðurnesjum væri með fjölmörg önnur brot Brynjars til rannsóknar. Ástæða þess að ákæra var gefin út í málinu sem dæmt í 19. maí, var sú að ákæruvaldið getur aðeins haldið sakborningi í gæsluvarðhaldi í tólf vikur án ákæru. Því var aðeins gefin út ákæra fyrir hluta þeirra brota sem eru til rannsóknar. Kolbrún segir rannsókn þeirra brota vera á lokametrunum en gat þó ekki staðfest hve mörg fleiri brot séu til rannsóknar. Hún bætir því við að hún telji nauðsynlegt að taka reglur um takmörk gæsluvarðhalds til endurskoðunar. „Það er rosalega íþyngjandi að þurfa að gefa út ákæru innan svo skamms tíma. Áður en svona takmörk á gæsluvarðhald voru sett árið 2008 voru dómstólarnir þröskuldurinn. Dómstólar voru alveg harðir við lögreglu og ákæruvald, þannig ef það var ekkert að gerast á milli krafna um gæsluvarðhald þá slepptu þeir bara mönnum. Ég held að það hafi alveg verið nægilegt aðhald.“
Dómsmál Lögreglumál Kynferðisofbeldi Ofbeldi gegn börnum Tengdar fréttir Brynjar dæmdur fyrir þrjár nauðganir og margvísleg önnur brot gegn ungum stúlkum Brynjar Joensen Creed, sem ákærður var í umfangsmiklu kynferðisbrotamáli, hefur verið dæmdur í sex ára óskilorðsbundið fangelsi. Dómur í málinu gegn Brynjari var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjaness á þriðja tímanum. 19. maí 2022 15:35 Ákærður fyrir að hafa keypt kynlífstæki fyrir fimm stúlkur og svo nauðgað þeim Karlmaður hefur verið ákærður fyrir að hafa nauðgað fjórum ólögráða stúlkum, sumum oftar en einu sinni, ítrekað og beitt þær allar, auk þeirrar fimmtu, ítrekuðu kynferðisofbeldi og -áreiti. Aðalmeðferð í málinu er lokið fyrir Héraðsdómi Reykjaness og er dómsuppsaga á dagskrá 19. maí næstkomandi. Þinghald í málinu er lokað. 11. maí 2022 12:50 Meintur barnaníðingur grunaður um miklu fleiri brot Rúmlega fimmtugur karlmaður sem bíður dóms í umfangsmiklu kynferðisbrotamáli gegn börnum, er grunaður um fleiri brot en þau sem hann hefur verið ákærður fyrir. Dómur fellur í málinu í næstu viku. 13. maí 2022 16:23 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Þrjátíu ár fyrir árásina á mann þingforsetans Erlent Heyrði mikla skruðninga í Hítárdal fyrir miðnætti á föstudag Innlent Veiðiþjófar stálu frá barni við Hítarvatn Innlent Dregur saman með efstu frambjóðendum Innlent Ætlar alla leið í baráttu fyrir nafninu sínu Innlent Fresta íbúakosningu í Ölfusi um mölunarverksmiðju Innlent „Nú á dögunum tók sonur minn líf sitt innan veggja fangelsisins“ Innlent Útgjöld ríkissjóðs vegna Grindavíkur hátt í hundrað milljarðar Innlent Látin móðir ekki dæmd í tugmilljóna lyfjasölumáli sonarins Innlent Helga aðeins 15 mínútur að landa fyrsta laxinum Innlent Fleiri fréttir Útgjöld ríkissjóðs vegna Grindavíkur hátt í hundrað milljarðar Diskóstemming í Bíóhöllinni á Akranesi Fresta íbúakosningu í Ölfusi um mölunarverksmiðju Lífleg og skrautleg kosningabarátta að mati forsætisráðherra Dregur saman með efstu frambjóðendum Mesta kvika frá því að kvikugangurinn myndaðist Nota sykursýkislyf til að léttast og Rottweilerhundar bjóða í partý Látin móðir ekki dæmd í tugmilljóna lyfjasölumáli sonarins Sendiherra, sveitarstjóri og bæjarstjóri skipuð í nefnd Ætlar alla leið í baráttu fyrir nafninu sínu Stuðningslán með ríkisábyrgð fyrir grindvísk fyrirtæki Skipið leggur úr höfn „Alls ekki svo að við tútturnar séum að taka yfir“ Framkvæmdir hafnar við brú yfir Fjarðarhornsá Segist kallaður „stríðsæsingarmaður“ vegna fyrirhyggju Sjúklingum Landspítala fjölgaði um 4.500 milli ára Skólastjóradrama í Kóraskóla fær óvæntan endi Bein útsending: Ársfundur Landspítala Mótfallinn sjálfsafgreiðslu á Bessastöðum Boða til blaðamannafundar vegna Grindavíkur Fordæma brottvísun mansalsþolenda og vilja nýja stefnu Slökktu eld á Seltjarnarnesi Mögulegt umboðsleysi stjórnar Aðventista gæti skipt Ölfyssinga máli Fara fram á farbann Sjómenn í haldi og ÁTVR í bobba Bréf First Water veldur ringulreið í bæjarstjórn Ölfuss Konráð nýr efnahagsráðgjafi ríkisstjórnarinnar Umhverfis- og loftslagsmálin „Icesave okkar tíma“ Boða sérstakan bæjarstjórnarfund vegna bréfs Eggerts Skipstjórinn og stýrimaðurinn fluttir til Reykjanesbæjar Sjá meira
Brynjar dæmdur fyrir þrjár nauðganir og margvísleg önnur brot gegn ungum stúlkum Brynjar Joensen Creed, sem ákærður var í umfangsmiklu kynferðisbrotamáli, hefur verið dæmdur í sex ára óskilorðsbundið fangelsi. Dómur í málinu gegn Brynjari var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjaness á þriðja tímanum. 19. maí 2022 15:35
Ákærður fyrir að hafa keypt kynlífstæki fyrir fimm stúlkur og svo nauðgað þeim Karlmaður hefur verið ákærður fyrir að hafa nauðgað fjórum ólögráða stúlkum, sumum oftar en einu sinni, ítrekað og beitt þær allar, auk þeirrar fimmtu, ítrekuðu kynferðisofbeldi og -áreiti. Aðalmeðferð í málinu er lokið fyrir Héraðsdómi Reykjaness og er dómsuppsaga á dagskrá 19. maí næstkomandi. Þinghald í málinu er lokað. 11. maí 2022 12:50
Meintur barnaníðingur grunaður um miklu fleiri brot Rúmlega fimmtugur karlmaður sem bíður dóms í umfangsmiklu kynferðisbrotamáli gegn börnum, er grunaður um fleiri brot en þau sem hann hefur verið ákærður fyrir. Dómur fellur í málinu í næstu viku. 13. maí 2022 16:23