Sakbitinn Boris hætti í blaðamennsku en var enginn kórdrengur sem pistlahöfundur Hólmfríður Gísladóttir skrifar 23. febrúar 2021 20:56 Þegar Johnson hætti að skrifa pistla fyrir Daily Telegraph var hann að fá 800 krónur fyrir orðið. epa/Andy Rain Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, hætti í blaðamennsku af því að honum leið illa með að „misnota eða ráðast að fólki“ án þess að setja sig í þeirra spor. Þetta sagði ráðherrann þegar hann heimsótti grunnskóla í Lundúnum í dag. „
Ég var eins og blaðamaður í langan tíma, og er það raunar ennþá; ég er enn að skrifa,“ sagði Johnson. Blaðamennska væri frábær atvinnugrein en vandinn væri sá að stundum stæði maður sjálfan sig að því að misnota eða ráðast að fólki. „Það er ekki þannig að þú viljir misnota það eða ráðast að þeim en þú ert að vera gagnrýninn... kannski finnur þú stundum til sektarkenndar vegna þess því þú hefur ekki sett þig í spor þess sem þú ert að gagnrýna.“ Fjölmiðlafulltrúi forsætisráðherrans sagði að hann hefði verið að vísa til þess hluta starfsins að veita stjórnvöldum aðhald; gagnrýnin gerði leiddi til betri stjórnarhátta. Guardian rifjar hins vegar upp nokkur skipti þar sem Johnson gerðist sekur um að ráðast gegn einstaklingum eða hóp án þess að setja sig í spor viðkomandi. Í pistli sem birtist í Daily Telegraph árið 2018 sagði forsætisráðherrann til dæmis konur í búrkum líkjast póstkössum eða bankaræningjum. Þá talaði hann meðal annars um „vatnsmelónubros“ í tengslum við Afríku og talaði um homma sem „hlýrabolaklædda bossastráka“ í pistli árið 1998. Johnson var, eins og frægt er orðið, sagt upp hjá Times fyrir að hafa skáldað tilvitnun. Þá er hann sagður hafa kunnað því illa að fá neikvæða umfjöllun. „Ég á handskrifaða orðsendingu frá mögulegum næsta forsætisráðherra þar sem hann hótar alvarlegum afleiðingum ef ég held áfram að gagnrýna hann,“ sagði ristjórinn Max Hastings árið 2019.
Fjölmiðlar Bretland Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Sagðist ætla að nota tíu milljón króna kókaín allt sjálfur Innlent Sér eftir Landsdómsmálinu: „Ég myndi aldrei gera þetta svona aftur“ Innlent Íslenskar stjörnur fái peninga að gjöf til að leggja undir í veðmálum Innlent Gæti dregið til tíðinda á næstu klukkustundum Innlent Rúður skotnar í spað í verslun innflytjenda Innlent Hjólastólinn í „tengdamömmuboxi“ á toppi bílsins Innlent Arnór Sighvatsson settur varaseðlabankastjóri fjármálastöðugleika Innlent Allt að fimm milljóna króna sekt á hvern fisk Innlent Hver er Kári Hansen? Innlent Quang Le hakkaður á Facebook Innlent Fleiri fréttir Trump sektaður um meira en milljón króna Rússar sagðir nota skotflaugar frá Norður-Kóreu Þrettán ára drengur stunginn til bana með sverði Særði minnst fimm með sverði í Lundúnum Íslendingur sem lúbarði lögreglumenn í Varsjá þarf að borga brúsann Fjórir lögreglumenn skotnir til bana í Charlotte Rostungur sem fannst í fyrra drapst af völdum fuglaflensu Hvetur Hamas til að ganga að rausnarlegum tillögum Ísrael Flugvöllur Færeyinga fær að taka við stærri þotum Yousaf segir af sér sem ráðherra og formaður Skoska þjóðarflokksins Sánchez hættir við að segja af sér Grafið undan fjölmiðlafrelsinu víða í Evrópu Vopnahlé í sjónmáli? Tveir látnir eftir að bíll hafnaði í sjónum við Stokkhólm Fjölmenn mótmæli vegna ofbeldisbylgju í Ástralíu Vasaúr ríkasta manns Titanic seldist á 210 milljónir Þúsundir hvöttu Sánchez til að segja ekki af sér Skoða að færa Mónu Lísu í eigið herbergi Harvey Weinstein lagður inn á spítala Þingmaður hleypti af skoti fyrir utan skemmtistað Rýma dómshús vegna sprengjuhótunar Dómstóll fyrirskipar handtöku landbúnaðarráðherra Selenskís Ákvörðun áfrýjunardómstólsins áfall og stórt skref aftur á bak Trump líklegur til að græða á úrskurði Hæstaréttar Dómi Harvey Weinstein snúið við Tekur fyrir að hafa verið „hermaður Hitlers“ Maður á sextugsaldri sagður hafa stungið grunnskóladreng Sánchez íhugar að segja af sér vegna meintrar spillingar Spaðar Rauðu myllunnar hrundu til jarðar í nótt Skipulögðu árásir í Þýskalandi og víðar í nafni ISKP Sjá meira