Blasir við að stefni í afléttingar Snorri Másson skrifar 23. janúar 2022 11:51 Már Kristjánsson yfirlæknir á smitsjúkdómadeild Landspítalans. Vísir/Vilhelm Heilbrigðisráðherra kveðst hafa allar mögulegar afléttingar á samkomutakmörkunum til skoðunar. Forstjóri Landspítalans segir að ef farið verði í afléttingar þurfi að gera það í fáum en öruggum skrefum. Ástandið hefur batnað á spítalanum að sögn yfirlæknis.
Lokametrar þessarar bylgju faraldursins eru fram undan, segir í grein Willums Þórs Þórssonar heilbrigðisráðherra og Guðlaugar Rakelar Guðjónsdóttur forstjóra Landspítala sem birtist á Vísi í morgun. Allar mögulegar afléttingar séu nú í skoðun, í samráði við Þórólf og með hliðsjón af skynsemi og öryggi. „Þetta er skoðað út frá mjög morgum vinklum, ekki bara út frá spítalanum heldur líka samfélaginu og smitdreifingu og svo framvegis. En við erum enn þá með ótrúlega mörg smit. Þannig að það þarf að vanda vel til og taka þetta í fáum en öruggum skrefum,“ segir Guðlaug Rakel í samtali við fréttastofu. Fjórir eru á gjörgæslu á spítalanum vegna veirunnar en aðeins einn þeirra sem er enn með virkt Covid-smit. Að sögn Más Kristjánssonar yfirlæknis á smitsjúkdómadeildinni er klárt mál að álagið er í rénun. Það gefi tilefni til endurskoðaðra aðgerða innan spítalans. En í samfélaginu? „Það eru aðrir sem taka ákvarðanir um það en mér finnst mjög líklegt að það takmörkunum í samfélaginu verði aflétt og mér finnst það bara blasa við að það muni vera gert,“ segir Már. Hópsýking varð á lyflækningadeild sjúkrahússins um helgina, þar sem fleiri en tíu greindust, bæði sjúklingar og starfsfólk. „Þetta þýðir það að það er ekki hægt að leggja inn á deildina á meðan,“ segir Már. Sá hópur sem verði verst úti séu eftir sem áður óbólusettir. „Það er alltaf brýnt að þeir sem eru óbólusettir eða vanbólusettir þurfa að halda áfram og klára sína bólusetningu. Það er okkar besta vörn,“ segir Már.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Landspítalinn Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Stöðugt landris og hugað að rýmingu Innlent Skjálftavirkni aukist í kjölfar gosloka Innlent Færeyingar áforma 4.500 króna aðgangseyri á alla ferðamenn Erlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Fylgi Höllu hrundi eftir kappræðurnar á RÚV Innlent Dýrin séu dauð, veik, horuð og í miklum vanhöldum Innlent Börnum safnað saman og þau skotin Erlent María Sigrún birtir tölvupósta Dags Innlent Meintur fjárdráttur mikið áfall fyrir starfsfólk skólans Innlent Ræktar 95 tegundir af túlípönum í Mosfellsdal Innlent Fleiri fréttir Skjálftavirkni aukist í kjölfar gosloka Stöðugt landris og hugað að rýmingu Ræktar 95 tegundir af túlípönum í Mosfellsdal Dýrin séu dauð, veik, horuð og í miklum vanhöldum Ríkisstjórn þurfi að gera meira í þágu vopnahlés Dauð lömb á túni, árás á Rafah og Eurovision Maður sem áreitir börn í Hafnarfirði til rannsóknar Sýknaður af nauðgun en enginn vafi að konan telji á sér brotið Fylgi Höllu hrundi eftir kappræðurnar á RÚV Sinubruni við Hellisskóg á Selfossi 150 þolendum sinnt vegna ofbeldis í nánu sambandi Meintur fjárdráttur mikið áfall fyrir starfsfólk skólans Stóra Svört bar fimm svörtum lömbum Eldgosinu lokið, meintur fjárdráttur og manndrápsrannsókn Eldvörp líkleg næst Rannsókn vegna meints manndráps í Kiðjabergi miðar vel Samanburður við lóðamál olíufélaganna eins „fjarri sannleikanum og hægt er“ Guðríður Hrund skipuð skólameistari MK Eldgosinu lokið eftir 54 daga Leggja aftur fram tillögu um að selja húsnæði MÍR Facebook bannar Ástþóri að auglýsa Býður þjóðarhöll Færeyja undir landsleiki Íslands Reykjavík lækkar gjaldskrár vegna þjónustu við barnafjölskyldur Fylgjast grannt með gangi mála Margt bendi til þess að gosinu sé lokið María Sigrún birtir tölvupósta Dags „Á endanum snýst þetta allt um peninga“ Sækja veikan sjómann Eldur í iðnaðarhúsnæði á Höfða Efstar með ómarktækan mun á milli sín Sjá meira