Fari hjól atvinnulífsins ekki að taka hratt við sér gæti þurft að ráðast í opinberar fjárfestingar Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar 9. maí 2021 13:01 Sigurður Ingi Jóhannsson Vísir/Vilhelm Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra segir að þúsund ráðningarsamningar hafi orðið til og um fjögur þúsund séu í ferli vegna verkefnisins Hefjum störf. Fari hjól atvinnulífsins ekki að taka hratt við sér gæti þurft að ráðast í opinberar fjárfestingar.
Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra segir atvinnulífið hægt og rólega að taka við sér. Sjáanlegur árangur sé af verkefni félagsmálaráðherra, Hefjum störf. „Þessi ákvörðun ríkisstjórnarinnar hefur mælst mjög vel fyrir og þetta verkefni gengur eiginlega betur en maður hefði getað trúað. Ég held að um daginn hafi það verið um fjögur þúsund sem voru komin í einhvern feril og tæpir þúsund ráðningarsamningar orðnir,“ Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, í þættinum Sprengisandi í morgun. Leggja þurfi áherslu á grænar fjárfestingar og fjárfestingar í fólki. „Síðan er engin spurning í mínum huga að við erum að fara að leggja miklu, miklu meiri áherslu á hinar skapandi greinar. Það verður undirstaða næstu meginatvinnugreinar Íslands og það er búið að tala um það lengi en við erum búin að vinna okkur í haginn þangað. En ég held að nákvæmlega hvernig við ætlum að komast þangað, muni að einhverju leyti kosningarnar í haust snúast um.“ Það gæti þó komið til skoðunar að stjórnvöld þurfi að grípa inn í fari hjól atvinnulífsins sjálfkrafa ekki að snúast hratt. „Það getur alveg komið til þess að ef hið almenna atvinnulíf höktir í uppbyggingunni á næstu mánuðum að þar þurfi einfaldlega að taka af skarið um enn frekari opinbera fjárfestingu þó svo að við þurfum að taka lán fyrir því,“ sagði Sigurður Ingi. Í spilaranum hér að neðan má hlusta í heild sinni á viðtal Kristjáns Kristjánssonar við Sigurð Inga Jóhannesson.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Vinnumarkaður Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur Efnahagsmál Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Innlent Gantz hótar að segja af sér vegna ósættis við Netanjahú Erlent Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Innlent Ástand Fico enn alvarlegt Erlent Með vopn og fíkniefni í útistöðum við dyravörð Innlent Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Innlent „Nú á dögunum tók sonur minn líf sitt innan veggja fangelsisins“ Innlent Býst við aukinni sókn Rússa Erlent Fleiri fréttir Með vopn og fíkniefni í útistöðum við dyravörð Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra 40 tungumál eru töluð í leik- og grunnskólum Árborgar Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Þungar áhyggjur af þyngdarstjórnunarlyfjum Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Slasaður eftir hestaslys í Ölfusi Nauðsynlegt að fresta atkvæðagreiðslu um umdeilda verksmiðju Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Segja grafalvarlegt mál að fresta atkvæðagreiðslu „Það er miður að það falli til kostnaður vegna þessa“ Átök í Ölfusi og offitulyf Ákærður fyrir að pissa daginn eftir Fiskidaginn mikla Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Nauðugur sá kostur að fresta atkvæðagreiðslunni „Engu okkar er boðið að koma þarna og sjá“ Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Of þung en annars hraust á Ozempic Slagsmálahundar afþökkuðu aðstoð lögreglu Útgjöld ríkissjóðs vegna Grindavíkur hátt í hundrað milljarðar Fresta íbúakosningu í Ölfusi um mölunarverksmiðju Lífleg og skrautleg kosningabarátta að mati forsætisráðherra Dregur saman með efstu frambjóðendum Mesta kvika frá því að kvikugangurinn myndaðist Nota sykursýkislyf til að léttast og Rottweilerhundar bjóða í partý Látin móðir ekki dæmd í tugmilljóna lyfjasölumáli sonarins Sendiherra, sveitarstjóri og bæjarstjóri skipuð í nefnd Ætlar alla leið í baráttu fyrir nafninu sínu Stuðningslán með ríkisábyrgð fyrir grindvísk fyrirtæki Skipið leggur úr höfn Sjá meira