Van Gaal að taka við hollenska landsliðinu í þriðja sinn Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 22. júlí 2021 10:30 Van Gaal þarf eflaust að skrifa nýjan kafla í ævisögu sína þar sem hann er að taka við hollenska landsliðinu enn á ný. EPA-EFE/ROBIN VAN LONKHUIJSEN Hollenski fjölmiðillinn De Telegraaf segir að Louis van Gaal, fyrrum þjálfari Barcelona og Manchester United sé að taka við hollenska landsliðinu á nýjan leik. Hann stýrði liðinu frá 2000 til 2002 og frá 2012 til 2014.
Frank de Boer stýrði Hollendingum á Evrópumótinu í knattspyrnu í sumar en hann tók við liðinu eftir að Ronald Koeman var ráðinn þjálfari Barcelona sumarið 2020. De Boer hefur ekki heillað sem þjálfari og þó liðið hafi spilað vel í riðlakeppni mótsins þá steinlá það gegn Tékklandi í 16-liða úrslitum og í kjölfarið var De Boer látinn taka poka sinn. Hollenska knattspyrnusambandið leitar nú að eftirmanni og virðist ætla að treysta á Van Gaal enn eina ferðina. Hann stýrði liðinu eins og áður sagði rétt eftir aldamót og á HM 2014 þar sem Holland féll úr leik eftir vítaspyrnukeppni gegn Argentínu í undanúrslitum. Holland nældi þó í brons þar sem liðið vann öruggan 3-0 sigur á Brasilíu í því sem reyndist síðasti leikur liðsins undir stjórn Van Gaal. Á þeim tíma allavega. Virðist sem áætlun hollenska sambandsins sé að fá Van Gaal inn í 18 mánuði með þá Henk Fraser og Danny Blind með sér. Van Gaal á að stýra liðinu þangað til HM í Katar er lokið í árslok 2022 og þá ætti Fraser að taka við starfinu. DONE DEAL: Louis van Gaal takes charge of the Dutch national team for a third spell pic.twitter.com/wlt73DDJX0— 433 (@433) July 21, 2021 Fraser hefur þjálfað lið á borð við Ado den Haag, Vitesse og Sparta Rotterdam í Hollandi ásamt því að hafa verið aðstoðarþjálfari U-21 árs landsliðs Hollands undnafarin tvö ár. Van Gaal er orðinn 69 ára gamall og hefur ekkert þjálfað síðan hann var látinn fara frá Manchester United árið 2016. Hann virðist nú vera að snúa aftur í þjálfun.
Fótbolti HM 2022 í Katar Mest lesið Schauffele heldur forystunni en Tiger langt frá niðurskurðinum Golf Íhuga að reka Xavi sem hætti við að hætta Fótbolti Rekinn tveimur dögum eftir bikarmeistaratitilinn Fótbolti Snorri Barón um Söru: „Ógeð sem enginn á að þurfa að ganga í gegnum“ Sport Valsmenn síðastir inn í átta liða úrslit Fótbolti Klopp myndi kjósa með afnámi VAR Fótbolti Vill komast hjá því að afhenda City bikarinn Enski boltinn Kristinn: Varnarleikur, varnarleikur og varnarleikur Körfubolti Jóhann: Brotnuðum auðveldlega Körfubolti Southampton leikur um laust sæti í ensku úrvalsdeildinni Fótbolti Fleiri fréttir Íhuga að reka Xavi sem hætti við að hætta Klopp myndi kjósa með afnámi VAR Rekinn tveimur dögum eftir bikarmeistaratitilinn Valsmenn síðastir inn í átta liða úrslit Southampton leikur um laust sæti í ensku úrvalsdeildinni Jón Dagur kom inn af bekknum og bjargaði stigi Van Dijk með þrennu og Diljá tvennu í stórsigri Leuven Kristín Dís lék allan leikinn er Brøndby komst í úrslit Meiðslapésarnir fara frá Liverpool Infantino segir samtökunum að hætta „tilgangslausu þrasi“ um leikjaálag Slot staðfestir að hann taki við Liverpool Vill komast hjá því að afhenda City bikarinn „Það eru alltaf einhverjar leiðir sem opnast í pressu“ Nýliðinn í íslenska landsliðinu er markahæst í dönsku úrvalsdeildinni Þorsteinn valdi þrjá nýliða fyrir mikilvæga leiki Svona var blaðamannafundur Þorsteins fyrir mikilvæga leiki Allt í skrúfunni hjá Bæjurum: Tuchel fer eftir allt saman Fjórir af tíu launahæstu íþróttamönnum heims spila í Sádi-Arabíu Fyrsta HM stelpnanna okkar verður vonandi í Brasilíu 2027 Klopp enn fúll út í Maddison eftir að Liverpool missti af titlinum 2019 Barcelona þarf tæplega tuttugu milljarða fyrir lok júnímánaðar Börsungar styrktu stöðu sína í öðru sæti Bikarmeistarar Víkings í næstu umferð ásamt Keflavík og Fylki Uppgjör: Stjarnan - KR 5-3 | Endurkoma KR-inga hófst of seint gegn Stjörnunni Leeds í úrslit um sæti í ensku úrvalsdeildinni Sverrir Ingi á toppinn í Danmörku Kolbeinn lagði upp jöfnunarmark Gautaborgar Viðar Ari skoraði og lagði upp í ótrúlegum sigri Stefán Teitur skoraði þegar Silkeborg lagði AGF annað sinn UEFA setur pressu á City Football Group Sjá meira