Formanni VG í Reykjavík finnst áform um landfyllingu galin Óttar Kolbeinsson Proppé skrifar 25. janúar 2022 21:45 Elín Björk er formaður Reykjavíkurfélags Vinstri grænna. vísir/egill Formaður Vinstri grænna í Reykjavík leggst harðlega gegn áformum meirihlutans í borginni um að gera landfyllingu í náttúrulega fjöru í Skerjafirði. Þetta fari gegn náttúruverndaráherslum flokksins.
Landfyllingin yrði annar áfangi í áformum meirihlutans í borginni um hinn svokallaða Nýja-Skerjafjörð, þar sem á að koma fyrir 1.300 nýjum íbúðum. Hluti þeirra á að rísa á landfyllingunni en sú framkvæmd er nú í skipulags- og umsagnaferli. Göngustígurinn með fram fjörunni er flestum íbúum Skerjafjarðar vel kunnur.vísir/egill Náttúruverndarsinnar eru ekki hrifnir af þessu enda segir í frummatsskýrslu um framkvæmdina að hún muni hafa neikvæð áhrif á allt lífkerfi svæðisins. „Mér finnst alveg galið að ætla að fylla upp í náttúrulega fjöru sem nýtur mikillar verndar fyrir í raun og veru lítinn hluta íbúða í þessu nýja hverfi,“ segir Elín Björk Jónasdóttir, formaður Reykjavíkurfélags Vinstri grænna. Á þessari mynd sést grálitað hvar landfyllingin á að koma við hlið Reykjavíkurflugvallar: Hér sést fyrirhugað framkvæmdasvæðið afmarkað innan gulrar punktalínu. Gráa svæðið er landfyllingin en við hana á að reyna að endurskapa strönd með svipuðu lífkerfi og finnst nú í fjörunni. Ströndin er ein af fáum á höfuðborgarsvæðinu sem eru ósnert og er lífríki hennar í raun einstakt. Þar finnst svokallað klóþangsklungur, sem gerir svæðið að ríkulli matarkistu fyrir fugla. VG stendur alltaf með náttúrunni En hvað finnst Elínu um að hennar flokkur sem stendur fyrir náttúruvernd sé í meirihluta sem talar fyrir framkvæmdinni? „Ja, ég er auðvitað ekki í borginni sjálf en VG auðvitað stendur alltaf með náttúrunni. Það er bara einn borgarfulltrúi frá VG núna, við þurfum að bæta við okkur til að hafa meira að segja um þessi mál,“ segir Elín Björk. Elín Björk Jónasdóttir, formaður Reykjavíkurfélags Vinstri grænna, og íbúi í Skerjafirði.vísir/egill „Ég held það sé bara mjög erfitt að halda þessu á lofti miðað við alla hina því það er auðvitað kannski bara ekki meirihluti fyrir náttúruvernd í núverandi meirihluta. Eða ég veit það ekki...“ heldur hún áfram. Standa víða vörð um náttúruleg kerfi Eini borgarfulltrúi Vinstri grænna segist hafa fullan skilning á þessum sjónarmiðum. „Þetta eru stóru viðfangsefnin okkar, það eru loftslagsbreytingar af mannavöldum og þá þurfum við að standa vörð um náttúrukerfi svo sannarlega. Og það erum við að gera á mörgum öðrum stöðum í borginni,“ segir Líf Magneudóttir, borgarfulltrúi Vinstri grænna. Líf Magneudóttir, borgarfulltrúi Vinstri grænna.vísir/egill Ef landfyllingin verður að raunveruleika verður þar reynt að koma á svipaðri strandlengju til að lífkerfið nái sér aftur með tíð og tíma. „Og ég er sannfærð um að við getum látið þetta spila allt saman; náttúruvernd, umhverfismál, borg sem stækkar og sjálfbær hverfi,“ segir Líf, sem telur flokkinn sannarlega ekki hafa tapað gildum sínum í borginni. Hann hafi meðal annars staðið fyrir gríðarmiklum friðlýsingum á ýmsum ósnertum svæðum á síðustu misserum.
Umhverfismál Vinstri græn Reykjavík Borgarstjórn Skipulag Tengdar fréttir Löngu horfið listaverk gæti litið dagsins ljós á ný Verði landfylling í tengslum við nýja byggð í Nýja-Skerjafirði að veruleika eru hugmyndir uppi um að listaverk sem löngu er horfið ofan í fjöruna verði grafið upp og komið fyrir á nýjum stað. 23. janúar 2022 10:01 Hart tekist á um fyrirhugaða landfyllingu í Skerjafirði Fulltrúar minnihlutans í skipulags- og samgönguráði Reykjavíkurborgar eru mjög gagnrýnir á fyrirhugaða landfyllingu í tengslum við nýja byggð í Nýja-Skerjafirði. 3. desember 2021 13:56 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Lítilsvirðing gagnvart konum eigi ekki að líðast hjá RÚV Innlent Spurningar til Baldurs minni á árið 1980 Innlent Flugvöllur Færeyinga fær að taka við stærri þotum Erlent Veðmálaauglýsingar með stærstu stjörnum landsins „fá að grassera“ Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Hættur við að styðja Höllu Hrund Innlent Þættirnir rími við margt í raunveruleikanum Innlent „Ég held að Landskjörstjórn þurfi að endurskoða sína lögfræðiþekkingu“ Innlent Segir upp hjá RÚV og snýr sér að pólitík Innlent Guðrún á Glitstöðum segir vaðið yfir vilja almennings Innlent Fleiri fréttir Lítilsvirðing gagnvart konum eigi ekki að líðast hjá RÚV Spurningar til Baldurs minni á árið 1980 Veðmálaauglýsingar með stærstu stjörnum landsins „fá að grassera“ Utankjörfundaratkvæðagreiðsla hefst í síðasta lagi á fimmtudag Aðalsöngvari the Commitments stígur á svið í Háskólabíói Samningar við sjómenn til níu ára í höfn Vinstri græn aldrei með minna fylgi Þættirnir rími við margt í raunveruleikanum Ógild framboð, flug í lamasessi og draumaferð í Disney „Ég held að Landskjörstjórn þurfi að endurskoða sína lögfræðiþekkingu“ Hættur við að styðja Höllu Hrund Meðferðarstöðinni Vík lokað í sumar Boða verkfallsaðgerðir á Keflavíkurflugvelli í maí Kjörinn heiðursmeðlimur í bandarísku lista- og vísindaakademíuna Guðrún á Glitstöðum segir vaðið yfir vilja almennings Helmingurinn af búslóðinni í ruslið Fyrstu tilnefningar til Vigdísarverðlauna Evrópuráðsþingsins kynntar á Alþingi Segir upp hjá RÚV og snýr sér að pólitík Ellefu verða í framboði til embættis forseta Íslands Landlæknir fer með ákvörðun Persónuverndar fyrir dóm Stór hópur fanga sem ekki treystir stofnunum Viktor og Kári heltast úr lestinni Ástand hinnar látnu bar þess merki að henni hefði verið ráðinn bani Dramatík þegar tveimur var tilkynnt um ólögleg framboð Best ef forseti hefur ekki verið í stjórnmálastarfi Ráðherra kynnir nýtt mælaborð farsældar barna Skjálfti við Bláfjöll í morgun og óbreytt við Sundhnúk Ætlaði að ganga frá álverinu og upp á Keflavíkurflugvöll Halla Hrund fremst í nýrri könnun og Katrín dottin niður í þriðja sæti Vopnuð rán tíðari en fólk gerir sér grein fyrir Sjá meira
Löngu horfið listaverk gæti litið dagsins ljós á ný Verði landfylling í tengslum við nýja byggð í Nýja-Skerjafirði að veruleika eru hugmyndir uppi um að listaverk sem löngu er horfið ofan í fjöruna verði grafið upp og komið fyrir á nýjum stað. 23. janúar 2022 10:01
Hart tekist á um fyrirhugaða landfyllingu í Skerjafirði Fulltrúar minnihlutans í skipulags- og samgönguráði Reykjavíkurborgar eru mjög gagnrýnir á fyrirhugaða landfyllingu í tengslum við nýja byggð í Nýja-Skerjafirði. 3. desember 2021 13:56