Kamerúninn knái í essinu sínu

Joel Embiid er illviðráðanlegur.
Joel Embiid er illviðráðanlegur. AFP/Tim Nwachukwu

Kamerúninn öflugi, Joel Embiid, var samur við sig og fór fyrir Philadelphia 76ers þegar liðið hafði betur gegn San Antonio Spurs, 137:125, í NBA-deildinni í körfuknattleik í nótt.

Embiid skoraði 33 stig og tók tíu fráköst og var stigahæstur í leiknum. Liðsfélagi hans, Tyrese Maxey, kom afar sterkur inn af varamannabekknum og skoraði 25 stig.

Malaki Branham var stigahæstur í liði San Antonio með 26 stig.

Portland Trail Blazers vann góðan sigur á Washington Wizards, 124:116.

Anfernee Simons var stigahæstur hjá Portland með 33 stig og skammt undan var skotmaðurinn magnaði, Damian Lillard, með 29 stig.

Bradley Beal fór fyrir Washington með því að skora 34 stig og Lettinn Kristaps Porzingis bætti við 32 stigum og átta fráköstum.

Öll úrslit næturinnar:

San Antonio – Philadelphia 125:137

Washington – Portland 116:124

Detroit – Charlotte 118:112

Indiana – Sacramento 107:104

Boston – Phoenix 94:106

Houston – Toronto 111:117

Minnesota – Orlando 120:127

Utah – Atlanta 108:115

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert